← Table of contents
Alaska

VIII. KAFLI.

Reading edition

SKÝRSLA ÍNNAR ÍSLENZKU SENDINEFNDAR UM FERD HENNAR TIL ALASKA.

Landar góðir!

Vér[15] undirskrifaðir, er kjörnir vorum á fundi Íslendinga í Wisconsin til að ferðast til Alaska, eðr sér í lagi Kadíak-eyja, til að skoða landið þar og skýra frá, hvort það mundi eigi vel fallið til nýlendustaðar fyrir Íslendinga, og hvort lýsing sú, er W.H. Dall hefir gefið á landinu, sé sönn og rétt, fullnœgjum hér með loforði voru um, að skýra yðr frá árangri ferðar vorrar, með því að gefa yðr fylgjandi skýrslu, er vér höfum í skyndi samið í dag og sem við Ólafr og Páll felum Jóni að flytja ykkr og birta.

Eftir 24 daga ferð með stöðugu andviðri sáum vér land 9. október. Það var Kadíak; og vorum við um hádegis-bil austr af St. Paul. Þá er við komum á þiljur upp á laugardags-morguninn, inn 10. okt., vorum við komnir í mynnið á Cooks-flóa og höfðum Barren-eyjar skáhalt að baki, en Elizabetar-höfða á hœgri hönd. Fjöllin að austan voru þakin snjó á tindum, og var það gamall snjór; sýndust oss þau mjög lík fjöllunum á Íslandi einkum á norðrlandi og austrlandi. Vindr var á móti og urðum við að beita og gekk seigt. Merki sáum vér til bygðar á austrströndinni, 3 timbrhús; þar voru skógar miklir á land að sjá. Þó sýndust oss stœrri skógarnir á vestrströndinni; þar mœndi við himin ið mikla eldfjall Iliāmna 12 066 feta hátt, og var skýkápa á tindinum hæsta, líkt sem einatt er á Heklu. Miklu minni snjór var í fjöllum þessa megin flóans; þeim megin er og undirlendi miklu minna, en austanmegin, og sumstaðar varla neitt.

Sunnudag, 11. okt., vorum við um 40 mílur suðr af Nikulásar-vígi; var fagrt land á hœgri hönd að sjá (sunnan og austan megin). Við urðum enn að beita og miðaði lítið þann dag; við gátum séð yfir landið til beggja handa; var það alt skógi þakið og meira undirlendi austan megin. Við lögðumst um kvöldið undan bygð þeirri, er Munina heitir; þar eru nokkur býli.

Mánudag, 12. okt., var þoka og dimt uppi yfir; vér gátum því lítið á fram haldið og lítið af landi séð. Regn um kvöldið.

Þriðjud., 13. okt. Vér höfðum austrströndina á hœgri hönd, en Kalgin-ey á vinstri. Vér gátum lítið siglt áðr vér urðum að leggjast sakir rigningar, myrkrs og andstreymis. Straumr er gríðar-harðr hér. Kalgin-ey er öll þakin stórviðar-skógi.

Miðvikud., 14. okt., hélzt sama veðr. Náðum að leggjast undan Nikulásar-vígi.

Fimtudag, 15. okt., var kalt, 32-33° Fahr. (um 0° á Réaumur) á þiljum uppi um morguninn. Snjór féll um nóttina, en þó festi eigi á þiljum né á jörðinni á landi. Þennan morgun var hreinviðri og fagrt haustveðr. Kl. 12, 15' e.m. fórum við frá skipi í inum litla gufubát, er við höfðum, og komum á land í Nikulásar-vígi kl. 2. Komu skrælingjar á mót oss í skinnbátum; en sumir biðu vor í fjörunni. Þar mœtti oss Wilson, amerískr maðr, er hefir verzlun þar og umsjón yfir húsum þeim, er stjórnin á. Hann fylgdi oss ½ mílu austr til bygða skrælingja og útvegaði oss skrælingja einn fyrir fylgdarmann. Buðum við honum að vera til taks næsta morgun er sól roðaði.

Wilson sagði oss að yfir undirlendið upp til fjalla væru 40 mílur, og mundi það taka langan tíma, ef til vill hálfan mánuð, að fara þangað fram og aftr, sakir þess að vegr væri illr og ógreiðfœr; en háskaför væri nú að fara upp eftir Kaknu-á á skinnbát, þareð vatn væri svo lítið í ánni. Vér höfðum tekið með oss vistir af skipinu, og fengum eitt af húsum stjórnarinnar til íbúðar; hvorki var eldstó, ofn né stólar í húsinu; en vér höfðum ullar-ábreiður og bjarnarfeldi nokkra, er Wilson léði oss.—Vér hittum að máli Rússa einn; mælti hann tiltakanlega vel á enska tungu; hann hefir verið í Alaska um nærfelt 20 ár; mest í Sitka og á Kadíak. Á yngri árum hafði hann farið víðast um Ameríku; hann var gullnemi, og mátti það á honum sjá. Hann sagði lítið um dýr og fugla í nágrenninu, fyrr en 10 mílur frá; fœlast dýrin skot Vígis-manna. Þó var gnœgð þar af villigásum. Hann sagði oss, að enginn sjófiskr gengi í Cooks-flóa; kemr það líklega til af því, að svo mikið jökulvatn fellr í hann; svo er og botn leirugr og sjór oftast gruggaðr af straumum eða vindi, er rótar upp sandi og gruggi frá botninum. Lax fyllir öll vötn, ár og lœki á sumrin, og vegr frá 60 til 50 pund að meðallagi. Maðr getr staðið á bökkunum og stungið þá, og fengið svo marga, sem maðr vill. Fyrsti lax kemr í byrjun apríl-mánaðar; er laxinn beztr og feitastr ina fyrstu mánuði. Eigi fer hann burtu fyrri en í lok ágúst-mánaðar. Vetr sagði hann oss væri talinn að byrja í miðjum nóvember, eða enda 1. nóv., og endaði í miðjum marz eða í marz-mánaðar lok. Eigi kvað hann nú annað rœktað við Nikulásar-vígi, en kartöflur, kálhöfuð og aðra garðávexti; væri engin tilraun gjörð með annað. Naut voru þar og voru vel útlítandi. 40 mílum sunnar sagði hann væri bygð sú, er hann nefndi Noodshick; mun það vera Munina öðru nafni; þar kvað hann rúg yrktan.—Rússi þessi var í húsi hjá sœnskum Finna og konu hans. Þeir eru gullnemar báðir og eru komnir til að ransaka gullnámana í Kaknu-fljóti, er rennr rétt hjá Nikulásar-vígi, og einkum, hvort eigi muni meira gull í legi árinnar uppi í fjöllum. Finni þess hafði komið í haust eðr sumar, er leið. Hann hafiði farið upp um fjöll á Kenai-skaga; hann sagði, að þá er hann fór ofan eftir ánni á skinnbát, hefði verið svo fult af laxi í henni, að bátrinn hefði sumstaðar mist skrið í torfunum. Áin kemr úr inu mikla stöðuvatni, er kallað er Skillokh. Wilson, sem þó gerði sér far um, að draga úr öllum kostum landsins, sagði oss, að hann hefði eittsinn á minna en klukkustund stungið 63 laxa í ánni; og inn stœrsti 95 pund, en meðalvigtin upp til hópa varð 51¼ pund. Rússinn (Tom Jones) sagði land-gœði miklu betri í Noodshik. Finninn (Fred. Holm) sagði að uppi í fjallinu hefði gras verið víða á brjóst upp og í öxl, og sumstaðar meira en hæð hans.—Við áttum kalda nótt í einhýsinu. Næsta morgun kl. 6½ ,

föstud., 16. okt., var 26° á Fahr. (-2.7 R.) inni þar sem við sváfum, en 18° Fahr. (-6.2 R.) úti. Við fórum og hittum leiðsögumann vorn, og lögðum á stað austr með ánni, en þó nokkuð frá henni. Var land fyrst stórhæðótt og óslétt og þakið þykkum skógi; jarðvegr var mosakendr og graslítill, en talsvert af lyngi og buska. Trén eru allhá, sum um 80 fet og yfir það og 2 fet og meira að þvermáli. Þá er við höfðum gengið 4 eða 5 mílur komum við að mýrar-flóum skóglausum. Eigi var þar grasmikið, en þó var vatnið eigi djúpt; jarðvegr var 8 til 12 þuml. djúpr, ef til vill sumstaðar dýpri. Auðsætt er af landslaginu að þessar mýrar má vel skera fram allar, og mundi þar þá grasvöxtr góðr. Við gengum nokkrar mílur út í mýrarnar og snérum þá við; var vatn tekið að dýpka og fœrð að verða ill.—Á heimleiðinni fórum við norðar og því um lengra veg gegn um skóginn; gjörðum við bál í skóginum og tókum miðdegisverð. Mestr viðrinn í skóginum var skrúðfura; þó var nokkur pílviðr og baðmr. Meiri var undirskógr þar, en verið hafði þar er við fórum um morguninn; mosi var og minni; en þó var lítið um gras, og gróðr allr mjög fábreyttr. Nóttin var mjög köld.

Laugardaginn, 17. okt, kl. 6½ um morguninn, var 16° Fahr. (-7.1 Réaumur) úti. Þennan dag gengum við norðr á við, og gengum enn í gegn um skóg; hér voru tré stœrri, undirskógr jafnmeiri, jarðvegr þurrari, mosaminni og grasgefnari, en í austr frá víginu. Vér beygðum út úr skóginum niðr til strandar; þar var rjóðr og gras hátt. Vér gengum niðr í fjöruna og svo inn fjörur unz vér komum að lœk þeim eðr á, er Salamākha heitir. Eftir eitthvað 7 mílna gang gjörðum vér bál og tókum snœðing og hvíld. Þá snérum við aftr, en eigi sama veg; gengum við upp úr fjörunni sunnan við lœkinn; var þar stórt rjóðr og mikið gras; enda þótt grasið væri þá sölnað tók það oss í brjóst og sumstaðar vel það. Gengum við nú gegn um skóginn nokkrar mílur, áðr við snérum út úr til sjávar og niðr í fjörur. Bakkarnir eru hér fjarska-háir. Skoðuðum við jarðlögin í bakkanum og var efst fúið jurta-efni um fet eða 1½ fet á dýpt; þar undir kom svört mold og blandin ofr smágjörðum sandi; það lag var 6 þuml. til 1 fet á dýpt; þar undir er lag af rauðbrúnum límkendum leir, ljósari en kaffibrúnum; þar undir kemr sandr sams konar og er í fjörunni; þar undir er oftast sandberg eða móhella, og þar undir deigulmór; deigulmór er mjög blandaðr innan um öll lögin meira og minna og milli þeirra. Víða fundust merki til kola og surtarbrands, en hvervetna í mjög þunnum lögum. Bakkinn var hér margar mannhæðir. Síðan gengum við heim yfir fjörurnar.

Sunnudag, 18 okt., var veðr kalt og ilt og snjófall talsvert; kom enginn bátr í land. Vér héldumst eigi við í húsi voru, en gengum í ina fornu virkisbygging. Þar var gamall ofn brotinn; og gjörðum við eld í honum, matreiddum rjúpur handa oss, sem bezt við kunnum, og hituðum te-vatn.

Á mánudag fórum við á skip út; var þá snjóbleyta, dimt og ilt veðr. Á sunnudags-nóttina höfðum vér mist eimbát vorn; hafði hann sokkið í sjógangi; en eimvélin var laus í honum, og hvolfdi hann henni úr sér, svo við héldum bátnum, en mistum vélina.

Bezta landið við Cooks-flóa virðist vera með ströndunum fram, og aftr fyrir ofan mýrlendið, næst fjöllunum og uppi í þeim. Mýrarnar má þurka með því að skera þær fram. Minna undirlendi er vestanmegin flóans, og er það sameiginleg ætlun vor allra, að þar muni heldr betra land. En eigi var oss kostr yfir um að fara eftir að vér mistum eimbátinn. Als konar dýr eru í fjöllunum: björn, refr, land-otr, hermelín, mörðr og safali, o.s.fr.

Alit vort á landinu við Cooks-flóa er, að það mundi víðast vel fallið til bygðar fyrir Íslendinga; en að það sé þó eigi hentugr staðr til að byrja nýlendustofnun á. Byrjunin yrði þar erviðari fyrir frumbýlinginn, en á Kadíak. Laxveiðin yrði að vera aðalbjargræði nýlendumansins, áðr hann fengi ágróða af jörðinni; en til að hafa þeirrar veiðar full not ætti nýlendumaðr að koma þangað í apríl eða maí. Í öðru lagi, þó að eigi sé efi á að kvikfjárrœkt og akryrkja hljóti vel að gefast með tímanum þar, þá þarf þó jörðin undirbúning af manna höndum áðr en mikils árangrs verðr vænzt. Sumur verða hér afar-heit, þó stutt sé; mælt er að Fahrenheit hafi komizt yfir 100 mælistig (yfir 30° á Réaumur); en á vetrum koma grimdir miklar (alt að -40° Fahr., þ.e. -32° Réaum.). 6 feta snjór kvað falla á láglendinu, en 12 til 14 feta á fjöllum.

Kenai-skagi og öll löndin kring um Cooks-flóa eru líka svo lítt kunn enn, og þarf að kanna þau gaumgæfilega, til að kynnast öllum kostum og ókostum þeirra. En þetta mundi skjótt verða, er bygð mentaðra manna kemr á Kadíak.

Suðr- og austr-strönd Kenai-skaga er metamorfisk; ströndin austanmegin flóans fram með Chugachik-firði og norðr að Kaknu-fljóti er tertiary, og eru þar kola-námar. Fyrir norðan Kaknu-fljót finst deigulmókent töflugrjót með æðum af gullblöndnum diorit.

Eftir 3 daga ferð komum vér inn 24. október til

Kadíak.

Eftir miðdegisverð fórum við í land og hittum tollheimtumann stjórnarinnar-Sendi yfirforingi skipsins einn af undirforingjum í land með oss ásamt bréfi til tollheimtumans, til að tjá honum vort erindi og biðja hann að vera oss innan handar.

Tollheimtumaðr skýrði oss frá, að eigi væri tiltök að fara nú yfir þvera eyna, eins og vér höfðum ætlað oss; væri hætta að ganga langt á land upp, helzt fylgdarlaust, sakir veiði-véla inna innlendu manna. Eru það bogar þeirra, er svo eru kœnlega faldir, að stundum falla þeir sjálfir í þá, er lagt hafa. Bjarnar-bogar meiða menn stundum til dauðs.—Hann sýndi oss garð sinn, og hafði hann rœktað þar hvítkál, næpur og rófur af ýmsum tegundum, grœnkál, salat, redikur, kartöflur og margt fleira. Kartöflurnar voru stórar og góðar. Hvítkálið var fullþroskað og væn kálhöfuðin, og hafði þó eigi sáð verið til þeirra fyrri en í ágúst, svo líklegt er að tvær uppskerur mætti af þeim fá á sumri.—Stjórnin á mörg hús á Kadíak; eru það forn herforðabúr Rússa, og ýmis hús, er höfð voru til bústaðar fyrir foringja þeirra, embættismenn og hermenn; stendr það nú autt alt. Við fengum að velja úr þeim hvert, er við vildum, til bústaðar fyrir þá af oss, er eftir kynnu að verða. Rússneskir hituofnar eru í flestum þeirra, en eigi eldstó nein,—Mikið lét tollari yfir ómensku og leti innlendra manna; kvað þá betligesti tíða, en þó versna hvívetna, er þeim væri nokkru vikið. Eigi lofaði hann kaupmenn mikið; enda ljúka flestir upp um þá einum munni. Þó hefir verzlunarstjóri Commercial-kompanísins reynzt oss í öllu vel. Hann heitir Smith og er rússneskr gyðingr.[16] Þetta var á laugardag að við komum, og fórum við til skips aftr um kvöldið.

Sunnudag, 25. okt., vórum við á skipi til kl. 3. e.m. að við fórum í land og höfðum vistir með oss. Gengum við austr í holtin um kvöldið með axir vorar og hjuggum við til eldsneytis. Við bjuggumst svo um í húsi voru.

Mánudag, 26., var rigning og ófœrt út að fara. Héldum vér kyrru fyrir, nema hvað einn af oss (P.B.) gekk niðr á bryggju-sporða og dróg þorska úr sjó til matar.—Eigi þarf annað, ef mann langar hér í fisk, en að skreppa ofan á bryggju-sporð og sœkja hann með fœri sínu; má beita hverju því, sem rautt er, reyktum laxi eða rauðri klæðispjötlu.

Þriðjudaginn, 27. okt., var þoka um morguninn og ýrði úr lofti með köflum fyrra hlut dags. Við Ólafr og Páll fórum upp eftir fjallinu fyrir ofan bœinn, en eigi þó upp á háfjallið, og inn eftir því til vestrs og suðrs uns vér komum í dal einn, er gengr til vestrs (og norðrs). Dalrinn er eigi allvíðr, hæðóttr og tjarnir á milli í lautum, og lœkir margir smáir. Á rann eftir dalnum (English River). Birkirunnar voru hér og hvar í dalnum, en eigi annar skógr; en grösugr er hann, og hæðir allar þaktar grasi og lyngi og ýmsar tegundir berja á því; sunnan til í honum er vatn eigi all-lítið. Við tókum dagverð á hól einum og nefndum Dögurðar-hól, en dalinn Dögurðar-dal. Eigi gengum við inn í botn hans. Við gengum síðan út fjörur og komum heim kl. 4. e.m.

Ég, Jón Ólafsson, gekk beint upp á fjallið að krossmarki því, er reist er á hæð einni, og svo vestr eftir háfjallinu og upp á hæsta hnjúkinn, síðan vestr og nokkuð norðr á við yfir fjallið; þar er það flatt fyrst, en svo ýmist hæðir eða djúpar lautir; gekk ég svo unz vötn féllu til vestrs; þá var niðaþoka; en ég hafði með mér áttavita, er Páll átti. Ég fylgdi lœkjargili niðr af fjallinu og niðr að sjó; þá er ég gekk niðr hlíðarnar rofaði upp í svip, og sá ég í fjörðinn og sýndist hann ganga frá norðri (og austri) til suðrs (meira en vestrs). Þess ber að gæta við áttavita hér, að declination nálarinnar er í St. Paul á Kadíak vel 26°; er norðr þeim mun austar, en nálin vísar til. Ég gekk lítið eitt með sjó fram til suðrs, og kom ég því innar á fjallið er ég kom til baka aftr, en ég hafði áðr verið. Síðan kom ég niðr af fjallinu og kom niðr í fjörur, skamt fyrir innan St. Paul. Fjörðr þessi hefir verið Marmot-fjörðr. Þá var af nóni, er ég kom aftr. Gekk ég því aftr upp á fjall til norðrs, og kom þar til, er ég sá yfir fjörð og gekk þar niðr að sjó; mun það verið hafa botninn á Devils Bay, er vér síðar nefndum Króksfjörð; síðan gekk ég sama veg til baka. Hæst á fjallinu, er upp á það er komið, er sumstaðar bert, melar eða klappir,[17] en þó víðast lyng, en gras, þegar er niðr dregr beggja vegna. Skógr er minni norðanmegin á fjallinn, en birkirunnar víðast í lautum og með giljum fram. Bláber voru svo mikil uppi á fjalls-brúnum, að eigi varð um gengið nema troða á berja-torfum í hverju spori; einnig voru þar ýmsar aðrar berja-tegundir. Gras var kafgnœgt hvervetna, er niðr af blá-brúnum dróg. Þá er upp rofaði sá ég af háfjallinu austr á Skóg-ey (Spruce Island) og suðr á Viðey (Woody Island) og eyjarnar í kring. Það hygg ég, að þá er veðr er bjart og gott, sé þaðan af fjallinu svo fögr útsjón, sem mannlegt auga má líta. Ég kom niðr að St. Paul laust fyrir miðaftan.

Miðvikudag, 28. okt., gengum við norðr og austr á tanga þann, er gengr út frá bœnum. þar er alt þakið skógi stórum og víða jarðvegr grasi vaxinn milli trjánna; gnœgð er þar og tjarna og stöðuvatna. Vér gengum út á odda til sjóvar og snérum þá inn í skóginn aftr, en snérum til norðvestrs. Skógrinn er hér geysi-þykkr og stórvaxinn og víða fögr rjóðr og grösug, en hvervetna tjarnir og lœkir með köldu, svalandi, góðu vatni. Við gengum þar til, er við komum til Devils Bay (Djöfuls-fjarðar); skýrðum við hann um og kölluðum Króks-fjörð. Vér gengum inn með firði; þar er grösugt mjög milli skógar og sjávar, og land ið frjósamasta og fegrsta að sjá. Er það ið björgulegasta land, er við höfum enn séð í landi hér. Vér sáum norðr yfir Skógey. Hinu megin fjarðarins og inn með honum var lítill skógr að sjá, en alt grösugt, fjöllin há og grasi þakin upp úr gegn; fjörðrinn er tiltakanlega víkóttr og krókóttr.—Vér snérum svo heim yfir hálsana, og komum heim í myrkrí að St. Paul, kl. 7½ e.m.

Fimtudag, 29. okt., var rigning mest af; en er upp rofaði um hádegisbil, fórum við á bát út með landi svo sem mílu og höfðum eitt fœri með oss. Drógum við á skammri stund 19 þorska, 1 grjót-þorsk (rock-cod) og 1 smálúðu.

Föstudag, 30. okt., fórum við Jón og Páll á báti út um eyjarnar inar smærri, er liggja fyrir utan St. Paul; eru þær sumar þaktar smáum skógi, en sumpart grösugar með tjörnum og lœkjum; allar eru þær byggilegar og björgulegar. Síðast fórum við yfir á Viðey, hittum formann ísfélagsins og höfðum tal af honum. Hann hefir 5 hesta og tvo múla; sáir hann höfrum og þroskast þeir því sem næst; en eigi er mikil rœkt við þá lögð; eru þeir eigi þresktir, heldr skornir sem hey handa hestunum, svo sem siðr er til að gjöra í California. Við gengum suðr eftir eyju og þar inn í skóginn og lengi gegn um hann, unz hann varð svo þykkr, að okkr þótti torfœrt lengra. Undirskógr er þar meiri, en nokkurstaðar annarstaðar er vér höfum hér komið, og skógrinn sjálfr geysi-stór. Mældum við digrð á mörgum trjám, er voru tvo feðminga ummáls og talsvert þar yfir; hæðin gizkum við á að verið hafi að minsta kosti 100 fet. Þetta, voru skrúðfuru-tré. Þá er við komum aftr, skoðuðum við ísvatnið og sögunar-mylluna, er þar er; komum síðan við í leiðinni á skipinu, og fengum vistir í viðbót við það, er vér höfðum áðr fengið og þá var mjög upp gengið.

Ég, Ólafr Ólafsson, fór þennan dag upp á fjall og inn eftir háfjallinu til suðvestrs. Þá var veðr bjart og útsýni ið fegrsta yfir firði, dali og eyjar. Ég sá suðr yfir flóann, og sá, að inn úr honum ganga þrír firðir og dalir af fram til fjalla, eigi langir, að því er ég fékk séð. Fjöll vóru há til lands að sjá og luktu fyrir dalina; voru sum þeirra með snjósköflum í; heldr virtust þau ógreið til yfirgöngu. Gróðr á fjöllum þeim, er ég fór yfir, var líkr því, er áðr er lýst.

Laugardaginn, 31. októb., fengum við bát frá skipinu með sex hásetum og einum undirforingja. Fórum við á bátnum þvert yfir allan flóann (Chiniak Bay), og lentum norðan megin á nesi því eðr skaga, er gengr út fyrir sunnan flóann (Cape Greville). Við komum á land kl. 10. f.m. og gengum á land upp vestr með vatni eðr tjörn, sem þar er fyrir ofan, er vér lentum; vorum við varaðir við, að þar væri bogar lagðir víða um nesið og urðum því að fara varlega og þreifa fyrir oss með löngu priki. Einn af oss (P.B.) varð viðskila við hina og gekk vestr með strönd og til híbýla innlendra manna, er þar höfðu stöðvar skamt frá við bogveiðar. Skoðaði hann þar um kring, og var grösug mjög ströndin; gekk hann síðan til báts aftr og beið hinna.

Við Jón og Ólafr beygðum suðr með vestrenda vatnsins og suðr yfir fjallhálsinn, sumpart yfir mýrar-blár alþaktar hán grasi og sumpart yfir lyngmóa og gegnum skóga. Gengum við yfir skagann til sjávar að sunnan. Skógr var þéttr, en eigi stórvaxinn. Við fundum þar "cranberries" auk annara berja-tegunda. Jarðvegr var frá 1½ til 2½ fet á dýpt, feitr og frjór. Við gengum í kring austr fyrir háls, yfir skagann nálægt ströndinni, og komum fyrir austrenda vatnsins austan fjörur til báts. Þá var af nóni. Héldum svo heim aftr til St. Paul, og komum þar í svarta myrkri. Hvervetna á skaganum voru lœkir og gnœgð ins bezta vatns.

Sunnudaginn og mánudaginn, 1. og 2. nóvember, bárum við saman dagbœkr vorar og sömdum í hasti eftir þeim skýrslu-ágrip þetta og bjuggumst á annan hátt til skilnaðar, er það var af ráðið að við, Ólafr og Páll, yrðum eftir á Kadíak vetrarlangt fyrir það fyrsta, en að ég, Jón Ólafsson, fœri til baka aftr, til að skýra frá árangri ferðarinnar og reyna að vinna hvað ég gæti í hag þeim, er fýstust að fara vestr hingað.

Laxveiði er viðlíka góð og mikil á Kadíak eins og við Cooks-flóa, nema hvað laxinn er hér smærri. Hásetar af skipinu veiddu um 60 laxa á svipstundu með höndunum, því þeir höfðu engin veiðarfœri, rotuðu þeir laxinn með spítum og skutu hann með skammbyssum, er hann óð uppi í lœknum. Gnœgð er af þorski og heilagfiski alt árið um í kring.—Veiðiskapr er talsverðr á Kadíak, fuglar og dýr. Þelselr og sæ-otr kvað fást eigi langt frá eyjunni. Að dœma eftir loftslagi og jarðvegi verðr engin ástœða séð til, að eigi geti hér þrifizt alt, sem þrífst og grœr í Skotlandi og á Hjaltlands-eyjum og Orkneyjum.

Beitiland og heyskaparland er hér svo gnœgt og gott, að enginn efi er á, að Íslendingar, sem fara miklu betr með skepnur, en hér er títt, mundu verða hér inir öflugustu fjárbœndr.

Þá er vér berum saman það, er vér höfum lesið í ritum manna, sér í lagi í bók Dalls, um Alaska, við það, er vér höfum nú sjálfir séð og á annan hátt kynt oss og komizt að raun um, þá verðum vér að segja, að bók Dalls er í einu og öllu verulegu sönn og rétt lýsing landsins og auðsjáanlega ritin af inni mestu samvizkusemi. Kadíak hefir í nálega öllu stóra yfirburði yfir Ísland; sér í lagi er loftslag mildara á vetrum, en þó eigi heitara að neinum mun á sumrum; sumarið er hér lengra talsvert og vetr ólíku styttri.

Vér hikum því eigi við, að ráða þeim löndum vorum, er þegar eru í Ameríku, og eins þeim, er á annað borð eru einráðnir í að flytja af Íslandi, til að koma hingað og kljúfa til þess tvítugan hamarinn; því hér er léttara að byrja búskap með litlum eða engum efnum, en nokkurstaðar ella, er vér þekkjum til. Og vér gefum þetta ráð eftir ná-kvæma og samvizkusamlega íhugun á öllum málavöxtum, í þeirri fastri sannfœring, að það verði þeim til góðs, er því fylgja. Landið sýnist beinlínis skapað handa Íslendingum og svarar í því efni fyllilega til allra vona vorra.

Það er sannfœring vor, að Kadíak sé betr lágað land fyrir Íslendinga, enn nokkurt annað land, er vér þekkjum, á jörðunni.

Vér svikjum þá, er oss sendu, vér svikjum sjálfa oss og vér svikjum sannleikann, ef vér segðum annað en vér höfum sagt.

Ritað í Saint Paul, Kadiak Island, Alaska, 2. dag nóvember-mánaðar 1874. JÓN ÓLAFSSON. ÓLAFR ÓLAFSSON. PÁLL BJÖRNSSON.

Explore with AITake your curiosity a little further.

Reading settings