II. KAFLI.
Reading edition
UM SÖGU LANDSINS.
Saga norðvestr-hluta Ameríku er því nær undantekningarlaust saga um verzlun og landa-könnun. Þrældómrinn af verzlunar-ánauð þeirri, er eitt eínokunar-félag lagði á landið, stóð svo lengi yfir, að það er fyrst á síðustu árum, síðan frelsið létti okinu af, að pólitík á nokkurn þátt í sögu landsins. Jafnvel þótt sagan um slíkt sé að vísu eigi uppbyggileg að sumu leyti, tel ég þó mein, að rúmið leyfir eigi að skýra neitt frá sögu landsins að sinni, því hún er þó ekki að öllu ómerkileg í sjálfri sér.
Eignarréttr Rússa til Alaska var bygðr á því, að þeir höfðu fyrstir fundið landið. Pétr mikli Rússa-czar var sjálfr skipasmiðr og kunni til sjómensku; honum var forvitni á að vita, hvort Asía og Ameríka væri áfastar að norðan; því þá var ekki um það kunnugt, hvort svo væri eðr eigi. Einhvern dag ritaði karlinn með eigin hendi á blað þessi fyrirmæli:
"Að byggja einn eða tvo báta, með þiljum, á Kamchatka eðr öðrum hentugum stað; á þeim ætti að gjöra eftirleit um norðrstrendrnar, til að sjá, hvort þær ná eigi saman við Ameríku, þar sem endimörk þeirra eru ókunn; því næst skyldu þeir að því huga, hvort þeir gætu ekki einhvers staðar fundið höfn, sem heyrði til Evrópu-mönnum eðr Evrópu-skip. Einnig ættu þeir að dreifa nokkrum mönnum um, sem skyldu spyrjast fyrir um nafn og legu þeirrar strandar, er þeir finna; halda skyldi nákvæma dagbók yfir alt þetta, og skyldu þeir koma með hana til Pétrsborgar." Þetta blað fékk Pétr í hendr œzta aðmírál sínum, og bauð honum að sjá svo um, að þessu yrði framgengt.[5] En Pétr czar inn mikli dó vetrinn 1725; en Katrín drotning lagði ástundun á, að framkvæma vilja haus. Maðr er nefndr Bæringr (Veit eðr Vitus Bering) og var danskr, fœddr á Hrossanesi í Jótlandi, enda virðist hafa verið í honum hvorki dáð né dugr. Hann var gjör formaðr (Commander) fararinnar og lagði upp frá Pétrsborg 5. febr. 1725 yfir Síberíu og Norðr-Asíu til Kamchatka; var hann yfir 3 ár á leiðinni. 20. júlí 1728 lagði hann í haf og sigldi norðr og austr; hann sigldi all-raglega og hélt sér undir ströndum Asíu; fann hann ey þá, er hann nefndi Lafranz-ey eftir heilögum Lafranzi; það var á Lafranz-messu. Eigi sá hann neitt af Ameríku, og eigi hætti hann sér lengra norðr en á 67° 30' n. br.—Þóttist hann þess nú fullvís orðinn, að Asía væri eigi áföst Ameríku; snéri síðan heim aftr. Minnir þetta ferðalag á það, er Sigurðr Pétrsson kvað um inar dönsku hetjur, er fóru að leita Grœnlands:
"Þeirra' af ferðum rómur rís fyrir rausnar-verkin stóru; þeir sigldu burt og sáu ís, og svo til baka fóru."
Bæringr kom til Pétrsborgar aftr í marz 1730 eftir 5 ára útivist, og þótti garpr mikill orðinn af ferðinni. Eftir Bæringi danska er nefnt Bærings-haf og Bærings-sund.[6] Gwosdew, rússneskr maðr, fann vestr-strönd Alaska 1730.—1741 fór Bæringr enn að leita Ameríku, og komst hann nú í Alaska-flóa og sá Elías-tind. En hann dó úr vesöld á einni eyjunni í flóanum og hvíla þar bein hans. Eyja sú heitir Bærings-ey. Rússar eignuðu sér landið; en eigi var það mikið, er fyrst fanst. En smátt og smátt fanst meira og meira og jukust farir til Alaska til verzlunar. Þó var lítið um að Rússar hefði neina stjórn á verzluninni fyrri, en 1799. Var verzlunin alla tíð síðan seld í hendr einokunar-félagi með einka-leyfi, unz Rússar létu landið af hendi.
Árið 1867 seldu Rússar landið Banda-ríkjunum, en þau gáfu fyrir sjö miljónir og tvö hundruð þúsundir gullpenninga ($7 200 000 í gulli), en það lætr nærri 28 miljónum danskra króna. Kaupsamningrinn er gjör í Washington, D.C., höfuðborg Bandaríkjanna, 30. dag marz-mánaðar 1867, en síðan staðfestr af Rússa-czar.