← Table of contents
Alaska

V. KAFLI.

Reading edition

STEINA OG MALMA TEGUNDIR.

Því er miðr, að hvorki er hér rúm til að skýra frá jarðarfrœði Alaska, enda mun mentun flestallra lesenda þessa kvers vera á því stigi, að þeir hefðu þess lítil not; ég verð líka að játa vankunnáttu mína í þessu efni svo mikla, að þó ég hafi rit annara til að fara eftir í þessu efni, þá er svo margt, sem mönnum ber eigi saman um í inni vísindalegu kennig um uppruna jarðlaganna, myndun þeirra og aldr, að eigi verðr skynsamlega dregið saman úr því neitt ágrip, nema maðr hafi nœgilega þekking á jarðarfrœði (geology), til þess að meta sjálfr rökin og gjöra sér glöggva hugmynd um efnið sjálfr; en kunnátta mín í þessu efni er sára-mögr; og mér er ekki um gefið að hætta mér staflaust á hálan ís, og reyna að kenna öðrum það, er ég hefi eigi glögt skyn á sjálfr; hafði ég og það ætlað, að ég skyldi ekkert það fullyrða í þessu kveri, er ég væri eigi sannfœrðr um sjálfr.

Svo mikið er víst, að endr í árdaga hefir verið miklu heitara á jörð vorri en nú er; þá hafa grös og tré gróið í heimskauta-löndunum og dýr lifað þar, sem nú lifa og þróast að eins í tempraða beltinu og hita-beltinu. Finnast leifar þeirra nú steingjörðar. Þetta var áðr eignað því, að jarðhitinn hefði þá verið meiri; en nú þykjast menn vita að sú tilgáta sé hégómi. Sumir hafa sagt, að t.d. fílar þeir, er leifar hafa af fundizt í Síberíu, gæti hafa borizt norðr þangað í sjóflóði, en hefðu aldrei lifað þar. En í Alaska finst slíkr urmull af leifum fíla og annara slíkra dýra innan um leifar af gróðri (vegetation) sem samsvarar eðlisháttum þeirra og að öðru leyti á þeim stöðvum og í því ástandi, er fullkomlega sýnir, að slík dýr hafa lifað þar, og gróðr jarðar og loftslag vorið þar eftir. Síðan hefir komið tímabil, þá er kuldi var miklu meiri á jörðinni, en nú er; þá hefir allr norðrhluti Ameríku verið þakinn einlægum jökli, svo sem Grœnland er nú; síðan hefir aftr orðið mildara, og er svo nú á jörð vorri.—Vísindin hafa enga skýlausa fullnœgjandi úrlausn enn á því, hvað valdið hafi þessum breytingum á loftslagi. Ein in nýjasta og, að mér virðist, sennilegasta getgáta þessu viðvíkjandi er sú, er Dr. Oswald Heer hefir fram sett. Dr. Heer kvað hafa ransakað steingjörvinga ins heita tímabils gaumgæfilegar en nokkur annar jarðarfrœðingur fyrr eða síðar. Hans kenning er þessi:

Það er stjörnufrœðingum kunnugt, að sólkerfi vort gengr í afarstórum hring um einhvern fjarlægan miðpunkt, og að það kemr þannig ávalt inn í nýtt og nýtt rúm; oss ber frá ókunnu rúmi, og oss kastar inn í ókunnugt rúm; en það vitum vér með óyggjandi vissu, að sólkerfi vort er sem stendr í rúmi í himingeiminum, sem er strjál-bygt af stjörnum. Það er engin ástœða til að efast um, að sólkerfi vort hafi einhvern tíma gengið í gegn um eitthvert af þeim héröðum himingeimsins (ef svo mætti að orði komast), sem vér sjáum í sjónglerum að eru miklu þéttskipaðri af stjörnum, en það rúm, sem sólkerfi vort er í nú sem stendr. En allar þessar stjörnur eru skínandi sólir, og inn meiri eða minni fjöldi þeirra hlýtr því að hafa nokkur samsvarandi áhrif á hita loftsins í rúminu umhverfis þær í himingeiminum. Vér getum þannig ætlað, að á heita (miocene) tímabilinu hafi sólkerfi vort verið í rúmi í himingeiminum, sem var þéttskipað stjörnum, og hafi þannig jörð vor orðið aðnjótandi heitara loftslags, er þar af leiddi, svo að jafnvel löndin við heimskaut hennar fengu gróðr þann, sem nú finst að eins um miðbik hennar. En sól vor hélt á fram sinni óstöðvandi rás og fylgdi henni allr hennar herskari af plánetum, og svo sem aldir liðu fram, bar sólkerfi vort inn í ný héruð í himingeiminum, er voru þunnskipuð mjög af stjörnum og því köld; það olli því, að eftir miocene-tímabilið kom ísöldin eða ið kalda tímabil; en sólkerfi vort hélt á fram, og loks kom það í rúm í himingeiminum, er var þéttskipaðra stjörnum en ið síðasta, en þó þunnskipaðra en það, er það hafði fyrst í verið, og þar sem hitinn því var í meðallagi milli þess, er verið hafði á inum fyrri tveim tímabilum, og á þessum stað er það nú sem stendr, og af því leiðir loftslag það, er nú er á jörðinni.[13]

En hversu sem er nú um þetta alt, þá er það víst og vafalaust, að jöklarnir í Alaska eru alt af að mínka og loftslagið að verða þurrara og heitara. Hver sem orsökin er, þá er þetta svo ljóslega reynt og auðsætt, að það er hafið yfir allan efa; svo þó menn gefi lítið út á allar getgátur vísindanna, þá verða menn þó að játa, að reynslan er ólygin.

Það þykir nú engum efa bundið, að alt Alaska (og eyjarnar) fyrir vestan 150° v.-l. fr. Gr. sé að hefjast og hækka smátt og smátt; sama er að segja um austrstrendr Síberíu; og ið sama virðist eiga sér stað að minsta kosti í öllum austrhlut Bærings-hafs og Bærings-sunds og enda norðr í Íshaf, að sjóinn er að smágrynna. Er það þannig eigi ósennileg spá, að sá tími geti komið, þó fjarri sé, ef til vill, enn, að Ameríka og Asía vaxi saman að norðan, og yrði þar þá efni í allra-fallegasta landa-þrætumál handa einhverjum ókomnum þrándi vefara til að skera úr, því eigi mundi af veita "tólf-kónga-viti" til þess!

Eldfjöll eru mörg í Alaska, en mörg eru nú útbrunnin, og sýnist þeim altaf vera að fækka. Um 50 eldfjöll hafa gosið þar síðan Rússar námu landið; en nú eru að eins 11 þeirra, er eigi eru álitin út brunnin.

Jarðskjálftar eru tíðir, en engar sögur eru af, að þeir hafi nokkru sinni verið svo miklir að neitt hafi kveðið að þeim; þeir eru rétt svo, að þeir merkjast. Þeir eru ávalt að verða fágætari og fágætari ár frá ári. Helzt verða menn þeirra varir í október. Það varð vart við einn ómerkilegan í Viðey (við Kadíak) meðan við dvöldum þar (í lok október-mánaðar 1874).

Hverar eru ótalmargir í Alaska; er hiti þeirra ýmislegr; sumir eru að eins 94° Fahr. (+27° 5 Réaum.); aðrir eru 167° F. (+60° R.) og ef til vill þar yfir. Sumir þeirra eru sagðir "nálega jafnir inum stœrstu og merkustu hverum annarstaðar í heiminum."

Kol finnast mjög víða í Alaska, en beztir eru þó námarnir við Cooks-flóa. Kolin eru hér frá miocene-jarðmyndun (tertiary) eins og flest kol í vestrhlut Ameríku. Flest kol af þeirri myndun eru rýrari, en þau kol, er kölluð eru "carboniferous." Taflan hér á eftir sýnir gœði þeirra í samanburði við önnur kol í Vestr-Ameríku og við beztu "carboniferous" kol í Pennsylvania og á Englandi:

------------------------------------------------------------------------ Stöðvar. |Vatn- |Fast | Skjót-|Aska. |Brenni-| Einkunn. | sefni.|kolefni, | brenn.| |steinn.| | |(carbon.)| andi | | | | | | efni.| | | ------------------------------------------------------------------------ CARBONIFEROUS. | | | | | | Pittsburgh, | 2.34 | 55.82 | 34.31 | 7.16 | ? |Bituminous. Pennsylvania | | | | | | Ormsby, | 4.00 | 66.56 | 26.93 | 2.50 | ? |Bituminous. Pennsylvania | | | | | | Kentucky | 2.00 | 56.01 | 37.89 | 4.10 | ---- |Cannel. Lehigh, | 2.34 | 88.05 | 2.94 | 6.66 | ---- |Anthracite. Pennsylvania | | | | | | Newcastle, | 0.99 | 61.70 | 33.55 | 3.75 | 0.23 |Bituminous. England | | | | | | ------------------------------------------------------------------------ CRETACEOUS | | | | | | Nanaimo, | 2.98 | 46.31 | 32.16 |18.55 | ? |Lignitic. Vancouver Island.| | | | | | Bellingham Bay | 8.39 | 45.69 | 33.26 |12.66 | ? |Lignitic. Mount Diabolo, | 14.69 | 46.84 | 33.89 | 4.58 | ? |Lignitic. California, | | | | | | beztu svört | | | | | | demants-kol | | | | | | ------------------------------------------------------------------------ MIOCENE TERTIARY | | | | | | Goose Bay, | 20.09 | 41.98 | 32.59 | 5.34 | ? |Lignitic. Oregon | | | | | | Carbon Station } | 11.60 | 51.67 | 27.68 | 6.17 | 2.90 |Lignitic. (Pacific-járnbr)} | | | | | | Weber River } | 9.45 | 26.21 | 58.32 | 3.64 | 2.40 |Lignitic. Cook's Inlet, | 1.25 | 49.89 | 39.87 | 7.82 | 1.20 |Lignitic. Alaska | | | | | | ------------------------------------------------------------------------

Þessi tafla sýnir betr, en nokkur lýsing, að kolin við Cooks-flóa eru betri en öll "miocene" eða "cretaceous" kolin í Vestr-Ameríku; hún sýnir og að kolin við Cooks-flóa innihalda að eins 0.37 hundruðustu pörtum minna af brennanlegu efni og að eins 0.66 hundruðustu pörtum meiri ösku, en góð, "bituminous" Pittsborgar-kol, og er það meira en unnið upp aftr við það, að Pittsborgar-kol innihalda 1.09 hundruðustu pörtum meira af vatni. Í kolunum við Cooks-flóa er og minna af brennisteini en í beztu kolum við Kyrra-Hafs-brautina, og vatnsefni þeirra er minna, er nokkurra annara kola í Ameríku, sem töflur taka yfir.

En þess ber að minnast, að verð kola liggr eigi eingöngu í gœðum þeirra. Sé kolalagið minna, en 3 feta þykt (af hreinum kolum), þá eru þau einskis virði til verzlunar, og svarar þá að eins kostnaði að hafa þau til heima-brúkunar. (Kolalögin við Cooks-flóa kváðu vera 3 til 7 feta þykk); fjarlægð frá markaði, ástand og lengd flutnings-vegarins, ýptin ofan á þeim, og margt fleira hefir áhrif á verð þeirra og verðr að taka þetta alt til greina.

Eigi er annað auðið að sjá, en að kola-námarnir við Cooks-flóa muni vel borga fyrirhöfnina við að vinna þá; en að hve miklu leyti, verðr reynslan að sýna. Þeir hafa eigi verið svo kannaðir til hlítar enn, að um það verði sagt með vissu; en vel er af þeim látið.

Rafr finst víða í kola-lögunum, saman með surtarbrandi. Það er algengt á Alíaska-skaga, finst og á Kadíak og víða í Alaska; sumstaðar mikið af því.

Steinolía (petroleum) hefir fundizt í Alaska. Finst hún fljótandi í þykkri brá ofan á vatni einu nálægt Katmai-vík á Alíaska-skaga, gagnvart Kadíak-ey. In "specifiska" vigt hennar er 25° (Beaume); hún er alveg lyktarlaus og ágætr áburðr á verkvéla-málm óhreinsuð, eins og hún finst. Það er enda sagt það megi brenna henni óhreinsaðri.

Hvítr marmari finst við Sitka, góð tegund og dýrmæt.

Gull og silfr finst í Alaska, en smátt er um það, að því er menn enn þekkja til. Silfrið er oft blandað saman við kopar. Gull hefir fundizt víða, meðal annars í Kaknú-fljóti við Cooks-flóa og á Kadíak; en eigi hefir það þótt vera svo mikið, að borgaði að verka það. En athugandi er að enginn praktískr gullnemi hefir enn reynt það né ransakað; svo lítið er um það kunnugt.—Töflugrjót, sumt með æðum af kvarz, finst á Kadíak.

Kopar finst á ýmsum stöðum; en ugglaust er mest af honum við Attu- eða Kopar-fljót, sem fyrr er um getið í kveri þessu. Þar hlýtr að vera fjarska-mikið af honum.

Blý hefir fundizt nálægt Sitka, og líka skamt frá St. Paul á Kadíak; en að eins er það lítið eitt.

Járn finst víða, en hvergi svo, að menn ætli það borgi sig að vinna það.

Graphit hefir fundizt á Kadíak, á Alíaska-skaga og víðar.

Brennisteinn finst víða gnœgða-gnógur; meðal annars kvað hann hafa fundizt á Kadíak (?). Fyrir brennistein mundi góðr markaðr í California og víðar á Kyrra-Hafs-ströndum.—"Nitrum" finst og í Alaska.

Ýmsir aðir málmar finnast í Alaska, þótt hér sé eigi nefndir.

Landið má enn heita alveg ókannað að kalla, og enginn kann að segja, hver óþrjótandi uppspretta af málmum þar kann að felast. Jarðlögin og myndunin benda til, að Alaska muni auðugt land af málmum.

Ýmsir gimsteinar finnast og þar í landi; má þar til nefna amethyst, zeolit, tourmalin, spinel, kristall o.m. fl. Sagt hefir verið að demant hafi fundizt á Únga; en það kvað eigi satt vera. Ýmsar marmara-tegundir finnast allvíða.

Ís hefir lengi verið verzlunarvara þaðan. Á vatni einu í Viðey (Woody Island) við Kadíak er ís skorinn; þó er það stundum í góðum vetrum, að ís-uppskeran bregzt. Ís hefir og tekinn verið úr jöklunum á suðr-ströndinni. Árið 1868 var fluttr til San Francisco ís fyrir $28 000. Eigi hefir eftirsókn eftir ís vaxið að mun síðustu árin. En enginn efi er á, að selja má mikið af ís í Mexico og Suðr-Ameríku og eins í Asíu, ef hann væri þangað fluttr. Eins og nú stendr er ís fluttr frá austustu ríkjunum í Ameríku til Indlands og Sínlands í Asíu; er það vegr miklu lengri, og lengri ferð gegn um heit lönd, og hlýtr því flutningr að verða dýrari og meira að spillast á leiðinni, en ef flutt væri frá Alaska. Er því efalaust, að ísverzlun getr orðið mikil auðsuppspretta fyrir landið, ef einhverjir koma til að nota sér það.

Explore with AITake your curiosity a little further.

Reading settings