III. KAFLI.
Reading edition
INNLENDAR ÞJÓÐIR.
Innlendum þjóðum í Norðr-Ameríka eðr frumbyggjum landsins (ef svo má kalla) er eðlilegast að skipta í tvær meginþjóðir. Önnur er sú þjóð, er kallast Indíánar eðr rauðir menn. Á hina hefir lengi vantað hœfilegt eitt nafn. Á fundi í inu ameríska vísinda-félagi (American Association for Advancement of Science) stakk Dall Alaska-fari upp á nafni, er félagið félst á, en það er, að kalla þá Órāríána (þ.e.: Stranda-menn), fyrir því að þeir búa hvervetna með sjó fram, en hvergi langt uppi í landi (að því frá skildu, að þeir byggja œði-langt upp með Yukon-fljóti, en þó að eins með bökkunum fram). Verðr það ljósast, hve vel heiti þetta er valið, ef lesarim vill líta á landkortið, og mun hann þá skjótt gæta þess, að flokkar af þessari þjóð hafa svo bygð sína, að hún er sem belti umhverfis allar strendr Ameríku að norðan og vestan, og aðeins örsjaldan lítið eitt upp í land fram með stórfljótum, t.d. Yukon, en slitnar að eins á sárfáum stöðum, svo sem t.a.m. á norðrströnd Kenai-höfða, þar sem Indíánar hafa bygð á ströndinni; annars byggja Indíánar upplandið, en Órāríánar strendrnar milli Indíána og sjóarins.
Órāríánar deilast í þrjá kynflokka, sem allir eru nokkuð mismunandi.
Fyrst er flokkr sá er nefnist Innuit; af þeim flokki eru Grœnlendingar og Eskimóar þeir, er byggja norðrströnd Ameríku og eyjarnar þar í kring, og sömuleiðis eyjarnar í Bærings-hafi og strendrnar á Alaska að vestan, alt suðr að Elías-fjalli.
Annar flokkrinn er Aleutar; þeir byggja Aleuta-eyjar og Alíaska-skaga austr að 160° v.-l. (fr. Gr.).
Þriðji flokkrinn eru þeir menn, er Túski eru kallaðir. Þeir byggja norðaustr-skagann á Síberíu og eyjar í Bærings-sundi; en annars koma þeir eigi við þetta mál.
Aleutar eru menn friðsamir, svo að undrum má sæta þykja, greindir og fremr námfúsir en latari eru þeir en frá megi segja. Þó mun mest á því bera, þar sem in svo kallaða menning (civilization) hefir spilt þeim. Góðmenni eru þeir in mestu, fámálugir og orðheldnir að náttúrufari, þar sem uppeldi hvítra manna á þeim er eigi orðið náttúrunni yfirsterkara. Flestir eru þeir kristnir að nafni (grísk-kaþólskir). Þeim er flest vel gefið af náttúrunnar hendi. Þeir eru veiðimen góðir og fiskimenn, en forsjálausir, lifa í sukki og als gnœgtum meðan nokkuð er til, en svelta svo þolinmóðir heilu hungrinu þegar harðnar í búi. Útlendir verzlunarmenn hafa náttúrlega spilt siðum þeirra sumra, og drykkjumenn eru þeir nálega allir, er þeir fá nokkurn dropa. Tóbak þykir þeim og sælgæti mikið og borga það dýrum dómum. Það er jafnan svo í heiminum, að spillingin verðr menningunni samfara; syndin grœr á skilnings-trénu.—Aleutar eru hvergi nærri ment þjóð, en þó geta þeir enn síðr heitið vilt þjóð; þeir hafa fasta bústaði og öll þeirra háttsemi er svo, að þeir mega vel kallast að hafa hálf-menningu eðr meira.
Innuit eru sams konar menn sem Grœnlendingar. Standa þeir Aleutum nokkuð á baki bæði að líkamans og sálarinnar atgjörfi. En af því lesendr munn flestir hafa einhverja hugmynd um Grœnlendinga, þá þykir minni þörf á að lýsa þessum kynflokki hér, þó þeir byggi mest það pláss, er ég helzt vil lýsa hér.
Indíánar eru hér líkir því, sem þeir víðast eru; en þeir koma eigi mjög til máls hér, með því þeir byggja lítið sem ekki strendrnar, og byggja als eigi það svæði, er ég einkum vil hér lýsa, en það eru Kadíak-eyjar. Indíánar þeir, sem eru á litlu svæði við Cooks-flóa, eru friðsamir, meinlausir og eigi ógreindir, sumir dáfríðir í sjón.
Aleutar eru ljósir á hörund og sumir dáfríðir menn. Eigi eru þeir skírlífir svo orð verði á gjört. Margir eru því kynblendingar komnir af Rússum í föðurætt; eru sumir kynblendingar fríðir sýnum, og margir þeirra hafa aftr gengið að eiga rússneskar persónur. Margir þeirra eru hagir menn til smíða.