VI. KAFLI.
Reading edition
FISKIVEIÐAR.
Meðal allra þjóða eru miklar fiskiveiðar álitnar einhver in ríkulegasta auðs-uppspretta og velmegunar.
Fiskiveiðar Breta er mælt að séu virði 25 miljóna dollara árlega. Fiskiveiðar Frakka eru virði $3 000 000 árlega, og fiskiveiðar Ameríku-manna við austr-strendrnar á álfunni virði $2 000 000 árlega.
In ýkja-mikla gnœgð fiskjar við strendr Alaska vakti þegar forundran inna fyrztu ferðamanna, er þar komu, og allra síðan til þessa dags. Billing, Cook, La Perouse, Lütké, Lisiansky, Belcher, Sir George Simpson, Davidson og Dall hafa allir borið vitni um inn ótrúlega aragrúa af þorski, laxi, heilagfiski og síld, er fylli höfin umbergis Alaska. Fiskr hefir jafnan verið aðalfœða innlendra manna. Veiðiskapr, eða tilburðir til að hagnýta sér þessa óþrjótandi auðsuppsprettu, er þó enn í fyrstu bernsku.
Sjófiska-tegundir eru helztar: þorskr, heilagfiski, síld, "tom"-þorskr, "úlikon" og "mullet."
Af þorski er mest, og hann er sá sjófiskr, sem mest er verðr. Hann veiðist á 25 til 50 faðma dýpi því nær alstaðar, og víða má veiða hann af klöppum við fjöruborðið. Beztu veiðistöðvar eru kring um Kadíak-eyjar, Shumagin-eyjar og Aleuta-eyjar. Grunnin, þar sem fiskr veiðist hér, eru miklu stœrri en við Nýfundna-land (New Foundland) og Ísland til samans; og veiðistöðvarnar við Alaska eru svo langstœrstar og beztar af öllum veiðistöðvum á hnettinum, að eigi kemr til samanburðar við neitt annað. Beztar veiðistöðvar eru við Shumagin-eyjar.
Fram til síðustu tíma var fluttr fiskr frá veiðistöðvum í Atlantshafi til San Francisco. Árin 1863 og 1864 var flutt um 500 "tons" hvort ár til California frá Atlantshafi.
Fiskimenn frá California hafa veitt:
1 skip 1864, 120 "tons" eða ............ 40 000 fiska. (6)? skip l865, 523 "tons" eða ....... 249 000 fiska. 18 skip 1866, 1614 "tons" eða ......... 706 200 fiska. 23 skip 1867, 2164 "tons" eða ........ 947 264 fiska.
Meira en helmingr þessa fiskjar veiddist við Shumagin-eyjar. 1869 veiddust 1 082 000 fiskar, og sé lítið í lagt hafa þeir vegið að minsta kosti 3½ pund (enskt) hver að meðaltali; og kalli maðr pundið eigi meira vert en 5 cent, þá gjörir þetta þó $189 350 í gulli. Nú er fiskrinn að skifta um veg og fer nú aðra leið, er hann ferðast á þurru landi, en áðr; því nú er farið að flytja hann frá San Francisco og til Atlants-hafs. Í april, maí og júní 1868 voru flutt 47 000 pund af fiski og 17 tunnur af tunnu-fiski frá San Francisco til New York. Á sömu mánuðum var fluttr frá útlöndum inn til Ameríku fiskr fyrir $119 127, og sýnir það að nokkur markaðr er enn í Ameríku fyrir fisk. Auk þess selst fiskr í Japan og Sínlandi og víðar í Asíu, og firni gætu selzt í Mexico og Suðr-Ameríku, þar sem svo mikið er af kaþólsku fólki. Engin skortr er á beitu í Alaska. Hingað til hefir verðið á góðum fiski í California verið frá 13 til 7½ cent í gulli fyrir pundið; en líklegt er að verðið lækki nokkúð, er aflinn vex. Þó ber þess að gæta, að Íslendingar gætu ugglaust selt fisk þar betr en aðrir, því enginn kann í Ameríku að verka salt-fisk hálft svo vel sem þeir. Fiskimenn frá California eru þollausir og heimtufrekir við gjafarann allra góðra hluta; þeir vilja grípa upp miljónir á svipstundu[14]; ef það tekst eigi, eru þeir hlœgilega vanþakklátir. Það er einkennilegt að sjá aðra eins þráðfrétt og þessa í San Francisco-blaði: "San Francisco. Skip komandi: Skonnortan N.N. með 35 000 þorska; lætr dauflega af aflanum!" Þorskrinn veiðist alt árið um í kring.
Heilagfiski er smávaxnara vestr í eyjum, heldr en við Sitka og strendrnar þar eystra; þar vega meðal-lúður 300 til 500 pund.
Síldin er sams konar og in norska síld; kemr hún á vísum tíma ár hvert, en stendr skamma stund við. 1. júní koma hafþök af henni, og má ausa henni á land eins og maðr vill í hálfan mánuð. Það er kýmin aðferð, sem innlendir menn hafa til að veiða hana, og bendir það á hver ógrynni af henni eru. Þeir hafa aflangt skaft úr tré og reka í gegn um það þrjá nagla oddhvassa; slá þeir skaftinu niðr í sjóinn, og er fágætt ef eigi stendr síld á hverjum nagla. Einn maðr fyllir hœglega bát sinn á minna en klukkustund með þessum útbúnaði!
"Mullet" er laxtegund, er í sjó lifir og að eins í norðrhöfunum.
"Tom"-þorskr heldr og til í norðrhöfum; hann er góðr til beitu.
"Úlikon" er merkilegr fiskr, lítill, silfrgljár á lit, venjulega um 14 þumlunga að meðallagi á lengd. Hann er við strendr Bretlands-eigna og syðsta part af Alaska-ströndum. Vertíðin fyrir þennan fisk byrjar 20. til 25. marz og stendr yfir um 3 vikur. Lýsi hans er mjög ágætt. Hann er svo feitr, að hann verðr eigi geymdr í vínanda til vísindalegrar skoðunar. Þá er hann er þurkaðr, má hafa hann fyrir kerti; þarf ekki annað en kveykja á sporðinum, og brennr hann þá eins og kerti. Engin lýsing getr gefið hugmynd um þann ógrynnis-fjölda sem af honum er, þá er hann gengr upp í lœkina og árnar; vatnið sýnist bókstaflega lifandi eins og velli í potti. Villidýr taka nœgju sína til átu af honum þannig, að þau slæma hramminum í vatnið og ausa honum upp á jörðina.
Af vatna-fiski í Alaska eru laxinn og hvítfiskrinn merkastir; auk þeirra er "losh" eðr "burbot," "pike" (langa?) og "sucker."
Af laxi og silungi er ótal tegunda. Af handa-hófi má nefna Salmo orientalis, Salmo proteus, Salmo alpinus og rauðfiskinn (Salmo sanguineus). Það þykir lágt í lagt, að telja að innbornir menn í Alaska veiði tólf miljónir laxa á ári. Að eins á Kadíak og við Cooks-flóa er veidd hálf miljón árlega. "Öll mannleg mælska þrýtr og málin vantar orð" til að lýsa fjölda laxins í Alaska. Ógrynni laxíns eru þar svo, að ég get ekki gefið lesandanum betri hugmynd um það með öðru, en því, að segja að það sé meira en nokkur getr gjört sér hugmynd um, nema hann sjái það. Ég verð að játa, að ég gat ekki ímyndað mér annað, en að sögurnar um þetta væru ýkjur, þangað til ég sá það með eigin augum. Við Cooks-flóa er meðalvigt laxins 50 til 60 pund; það eru reglulegar stórskepnur!
Hvítfiskr er, einkanlega norðan til, nærri eins gnœgr og laxinn.
Ég sleppi hér að minnast inna annara tegunda af fiski, þar ég ætla nóg sagt til að gefa lesandanum hugmynd um auðlegð Alaska í þessu tilliti.
Skelfisks-tegundir als konar (nema ostrur), krabba og múslinga er nálega alstaðar að finna.
Eigi skal heldr meira en að eins geta inna miklu hvala, rostunga og sela veiða, er nemr miljónum dala árlega.