← Table of contents
Alaska

TIL LANDA MINNA.

Reading edition

Langan formála fyrir lítilli bók skal ég ekki rita.

Það, sem ég vildi sérlega taka fram hér, er það: að það er ekki tilgangr minn með riti þessu, að hvetja fólk til útflutninga af Íslandi alment, eins og hver og einn getr séð, er les síðari hlut kvers þessa; heldr að eins: að benda þeim, er á annað borð ætla að flytja vestr, á þann stað, er ég ætla þeim sjálfum og þjóðerni voru bezt hentan. Hins vegar hefi ég álitið það skylt að verja réttmæti útflutninga.—Það er, ef til vill, eins hentugt fyrir lesandann, að lesa fyrst síðari hlut kversins: "Um stofnun ísl. nýlendu."

Höfuðrit það, er ég hefi við stuðzt, er: "Alaska, and its resources. By Wm. H. Dall, Director of the Scientific Corps of the late W.U. Telegraph Expedition. Boston. 1870." (xii + 628 bls. stórt 8º með myndum og korti.) Auk þessa hefi ég yfir farið og lesið í vetr yfir 100 bœklinga, rit og blöð um Alaska eða að því lútandi meira og minna.

Ég kann öllum þakkir, er hafa stutt mig í samningi bœklingsins, um fram alt mínum ógleymanlega vini Marston Niles, Esq., lögfrœðingi í New York, fyrrum foringja í sjóhernum; þar næst inum ágæta vísinda-manni og frœga Alaska-fara W.H. Dall, og eins yfirstjóra strandmælinga-skrifstofunnar, og öllum öðrum, er mér hafa lið og aðstoð sýnt,—að ég ekki nefni hér sérstaklega, hve þakklátan ég finn mig við Forseta Banda-ríkjanna og sjóliðs-ráðherrann og ráðherra inna innlendu mála.

Ef nokkuð gott leiðir af bók þessari, þá er það mest öðrum að þakka, en mér, og hefi ég þó lagt í sölurnar fyrir mál þetta það lítið, er mér var unnt. En guð veit ég hefi gjört það í góðum tilgangi, og að ég tel mér þá fullu launað, ef árangrinn mætti svo blessast löndum mínum sem ég ann þeim bezt.

Ritað í febrúar-mán. 1875,

Washington, D.C.

JÓN ÓLAFSSON.

TIL MINNIS.

1 fet enskt = 135.115 Parísarlínur.

1 fet danskt = 139.13 Parísarlínur.

1 míla ensk = 5280 ensk (= 5127 dönsk) fet.

1 míla dönsk = 4-1164/1709 enskar mílur.

1 jarðmíla = 1 dönsk míla = 1/15 mælistigs (af miðbaugi).

1 "knútr" (knot) = 1 míla, 885 fet, 6 þuml. enskir. ["Knútr" = sjómíla ensk.]

30 knútar (hér um) = 34.75 mílur enskar.

1 samfella (league) = 3 knútar.

1 □ jarðmíla = 21.16 □ mílur enskar.

→ Lesarinn ætti jafnan að hafa í hug, að hérumbil er:

1 míla dönsk = 4-2/3 enskar mílur.

6 knútar = 7 enskar mílur.

1 samfella = 3 knútar.

1 □ míla dönsk = 20 □ mílur enskar (liðugar).

1 dollar ($1.00) er 100 cent. þá er punktr sker tvo stafi aftan af tölunni, táknar það dollara fyrir framan, en cent fyrir aftan punktinn; t.d.: $175.50 þýðir 175 doll. og 50 cent; $10.00 þýðir tíu dollara og engin cent. $1.00 í gulli gengr oftast um 3 krónur, 67 aura (þ.e.: 11 mörk); en pappírs dollar um 3 krón. 33 aura (þ.e.: 10 mörk) í dönskum peningum.

→ Grœnuvíkr-baugr liggr 18° 9' 23" austar, en Ferró-baugr. (Grœnavík = Greenwich.)

Explore with AITake your curiosity a little further.

Reading settings