← Table of contents
Alaska

VII. KAFLI.

Reading edition

LOÐSKINN, DÝRAVEIÐAR OG FLEIRA.

Loðskinn frá Alaska hafa verið fræg um allan heim í meira en öld. Saga loðskinna-veiðanna er saga landsins. Þau voru nálega eina orsökin til þess, að landið hefir verið að nokkru kannað; þau hafa verið ið eina, er hingað til dróg hvíta menn þangað, þótt fáir hafi verið. Þetta er inn eini bjargræðisvegr, er kalla má að verið hafi að nokkru hagnýttr; og inn feyki-mikli ágóði af loðskinnunum hefir dregið svo gjörsamlega alla eftirtekt og ástundun til sín, að engu öðru hefir verið skeytt að neinu. Þau hafa verið gullnámr Alaska. Skinna-takan hefir verið drifin af þeirri áfergju og fyrirhyggjuleysi, að hún hefir stórum rýrnað, en er þó enn gullnámum dýrmætari; en auðgefið er að vernda hana með skynsamlegri lagasetning, og er nú verið að reyna það.

Til auðveldara yfirlits skal hér fyrst nefna þau loðskinna-dýr, er í sjó lifa; en það er þelselrinn (Callorhinus ursinus) og sæ-otrinn (Enhydra marina).

1. Sæ-otr og þelselr.

Rússar nefna sæ-otrinn sæ-bjór. Sæ-otrinn er stór skepna; skinnið er mjúkt og dökkt, en löngum hárum hvítum í broddinn skýtr út í milli og eykr það fegrð skinnsins. Feldr af vöxnum sæ-otri er um 6 feta langr og 4 feta breiðr.—Sæ-otrinn er rotaðr, en eigi má skjóta hann, því það fœlir hann. Áðr var gnœgð af sæ-otrum alt frá Kamchatka og hringinn í kring með ströndunum alt suðr að syðri hlut California. Nú veiðast fáeinir við Kamchatka, um 5 eða 6 þúsund við Katrínar- og Alexanders-eyjar og þar á milli, en varla neitt að ráði sunnar.

Sæ-otrskinn kostaði fyrrum $200.00 til 500.00, en þau hafa nú fallið í verði, og kosta nú um $100.00. Aleutum eru borgaðir $20.00 í gulli eða vörum fyrir gott skinn. Ég sá þó skinn á Kadíak, er eigandinn vildi ekki selja fyrir $400.00 til 500.00; hann hafði gefið $20.00 fyrir það.

Þelsela-veiðin var fyrr meir minna um verð, en sæ-otra-veiðin; en nú er hún í raunini miklu meira verð. Nú er það á Pribyloff-eyjum (Girgis-ey og Páls-ey) að mestallr þelselr er veiddr. Þelselrinn er náskildr sæljóninu; mynda þau til samans ættflokk þann, er Otariidæ nefnist á lærðu máli, en það þýðir eyrnaselir; þau hafa útvaxin eyru og þríklóa hreifa, og eru þannig auðgreind frá hárselnum (Phocida). Aleutar veiða þelseli svo, að þeir reka þá á land upp, og geta tveir menn rekið 4 eða 5 hundruð eins og sauða-hjörð; jafnótt og hver þeirra þreytist, er hann rotaðr. 1868 voru þel-skinn verð $7.00 í gulli óverkuð í Lundúnum. Meðalverðið mun vera frá $7.00 til $5.00. Aleutar fá $0.35 fyrir hvert skinn!

Þó það sé fróðlegt í sjálfu sér, að lýsa þessum dýrum smásmuglega, þá er hér eigi rúm til þess, enda varða þau oss hér eigi svo miklu.

2. Land-dýr.

In helztu land-dýr, er dýrmætir feldir fást af, eru þessi: refir, merðir, "mink," bjórar, otrar (land-otrar), "lynx," svarta-birnir og "wolverine." Þessi dýr veiða innlendir menn í tréboga (slagboga, fellu). Auk þessa eru: "whistler," bjórbróðir, hreindýr, villi-sauðfé, geitr, úlfar (í norðr-Alaska), moskus-rottur og hermelín; eru skinn þeirra nokkurs virði, þó eigi sé það að telja í samanburði við hin.

Flest af þessum dýrum finnast á Kadíak og við Cooks-flóa. Fleiri orðum skal eigi um þau eyða.

3. Fleira bjargræði.

Sæljónið (Eumetopias Stelleri) og rostungrinn eru og mikilsverð dýr. Af þeim getr húðir, lýsi og tennr. Árlega vinnast um 100000 pund rostungs-tanna. Bustirnar og gallið af sæljóninu er og fémætt. Sínverjar kaupa það og gefa vel fyrir; hafa þeir bustirnar fyrir tannstöngla, en gallið er haft til silki-tilbúnings.

Fugl og eggtekja er óþrjótandi nálega hvervetna í Alaska, sér í lagi á öllum eyjum. Æðarvarp er víða í norðrhlut landsins; svanir, gásir og als konar fuglar, sem nöfnum kann að nefna; eru yfir 200 ýmislegar fuglategundir í landinu.—Hver vara æðar-dún, svana-dún, fiðr, vængir, fuglshamir, egg, fugla-kjöt o.s.frv. sé, þarf eigi að segja. Íslendingum.

Enn mætti margt og margt til týna, og sumt merkilegt og mikilsvarðandi, er telja mætti til bjargræðis í Alaska, t.a.m. þangtegundir, sem eru svo miklar og góðar þar, að það er sumra manna mál, að hvergi í heimi muni þangbrensla svo arðsöm, sem þar. En einhvern enda verðr hér á að gjöra; og vona ég að ég hafi líklega ritað nóg til að gefa dálitla, en þótt ófullkomna hugmynd um landið og kosti þess. Ég hefi lýst því þannig, að ég skal ábyrgjast að ekkert verulegt sé mishermt; ég hefi lýst því svo, að þeir gallar, sem á því kunna að vera, sjást eins ljóst og kostirnir. En ég vona lýsingin beri með sér, hvort sé meira vert, kostir eðr ókostir.

Explore with AITake your curiosity a little further.

Reading settings