← Table of contents
Húsabætur á sveitabæjum

Húsið E.

Reading edition

Húsið E.

10×11-½ alin.

Máttarviðir. kr. a.

2 trje i aurslár (fótstykki) 23 feta 5×5 þml., fetið á 14 aura 6 44

14 trje í gólfslár og bita 20 feta 5×5 þml., fetið á 14 aura 39 20

4 trje í sillur og »lausholt« 23 feta 4×4-½ þml., fetið á 12 aura 11 04

2 trje í sama 21 fets 4-½×4-½ þml., fetið á 12 aura 5 04

14 trje í grindina 14 feta 4×4 þml., fetið á 10 aura 19 60

7 trje í grindina 10 feta 4×4 þml., fetið á 10 aura 7 00

21 trje í stafi og sperrur 11 feta 4-½×4-½ þml., og 7 trje 12 feta 4-½×4-½ þml., fetið á 12 aura 40 44

16 trje í skástoðir 16 feta 4-½×4-½ þml., fetið á 12 aura 25 60

2 trje 23 feta, 2 trje 19 feta og 4 trje 18 feta 4×4 þml., fetið á 10 a. 15 60

Plankar.

8 plankar 14 feta 2×4 þml., fetið á 5 aura 5 60

10 plankar 15 feta 2×7 þml., fetid á 10 aura 15 00

Borðviður.

19 tylftir af plægðum borðum, óhefl., 12 feta 5/4×6 þml., tylftin á kr. 8,25 156 75

11 tylftir af samskonar borðum 11 feta á 7,57 83 27

46 tylftir af sænskum þilborðum 11 feta ⅝×4 þml., tylftin á kr. 4,59 211 14

13 tylftir af samskonar borðum 8 feta á 3,35 43 55

7 tylftir af samskonar borðum 12 feta 5,00 35 00

7 tylftir af málsborðum 14 feta 5/4×7 þml., tylftin á kr. 9,00 63 00

7 tylftir af málsborðum 14 feta 1×7 þml., tylftin á kr. 8,00 56 00

12 tylftir af strik. og plægð. þilborðum 8 feta 5/4×6 þml., tylftin á kr. 6,28 75 36

8 tylftir af gólfborðum 12 feta 5/4×6 þml., tylftin á kr. 8,25 66 00

6 tylftir af samskonar borðum 11 feta á 7,65 45 90

2-½ tylft af gólflistum (Fodpanel) 12 feta á 6 kr., 2-½ tylft af dyra- og gluggalistum (gerikt) á 6 kr. 30 00

Pappi og fleira.

680 □ álnir af pappa (Panelpap), al. á 8 aura 54 40

Naglar: 6 þús. 4 þml. á 2,30; 3 þús. 3 þml. á 1,20; 10 þús. 2 þml. á 0,65; 2 þús. 1-½ þml. á 0,40; 1 þús. 1þml. á 0,25; 5 þús. 2-½ þml. á 0,90; 1 þús. ½ þml. á 0,15; 8 þús. af pappasaum á 0,25 31 60

66 rúður 14×15 þml. á 0,30 19 80

10 pd. kítti á 0,18; 13 stofuskrár á 1,50; 2 klefaskrár á 0,65; 2 klinkur á 1,50 25 60

8 pör galvaníseraðar gluggahjörur á 0,40 3 20

20 pd. zinkhvíta á 0,28 5 60

4 pd. svartur farfi á 0,35; 5 pd. rauður farfi á 0,35 3 15

40 pottar fernisolía á 0,70 28 00

Reykháfur: 600 danskir múrsteinar á 5 a. 30,00; kalk og vinnulaun 25,00 55 00

Þakjárn: 73 plötur 8 feta á 2,00; 42 pl. 7 f. á. 1,75; 46 pl. 6 feta á 1,50 288 50

Þakjárnsnaglar 1650 á 70 a. hdr., og blýhringir á kr. 3,00 14 55

1000 galvaníser. 1-½ þml. naglar 1 75

Hurðarhjörur: 15 pör á 40 a., 1 par (ytri) á 65 a., 2 gross skrúfur 80 a. 8 25

1 eldavjel með 3 pottstæðum og vatnskatli 30 00

1 hitavjel með 1 pottstæði, sívöl, á 4 fótum 10 00

2 hitavjelar á 15,00 30 00

10 reykpípur (járnrör) með knje á, 68 a. hver 6 80

10 áln. beinar reykpípur á 1,30 alinin 13 00

1 reykhurð á 1,15; 1 hreinsunarhurð á 1,00; 3 krókar á 0,20;1 þakgluggi á 6,00 8 75

Smíðakaup 450 00

2144 48

Báðar stofurnar, forstofa og skrifstofa með þiljulopti; tvöfalt þil eptir miðju húsi endilöngu og þvers um milli stofu og eldhúss. Grind í milliveggjum, sperrur og skammbitar úr 4×4 þml. trjám, annarsstaðar úr 4-½×4-½ þml.; bitar og gólfslár úr 5×5 þml. trjám. Mála þarf forstofu, skrifstofu og báðar stofurnar niðri. Annað ferníserað. Einn þakgluggi, sem lýsa á geymsluherbergið, ef vill; annars rúða á þili yfir stiganum.

Til þess að fá geymsluskúr með allri norðurhlið hússins (E), verður að hafa þá glugga, sem eru á stofunni (til sömu hliðar og eldhúsið) á stafni hússins (hægra megin, er gengið er inn í forstofuna), og veit þá sá stafn í austur. Taka má skúr þann í burt, sem er á uppdrættinum, og hafa innganginn til eldhúss í vesturenda skúrsins og þá þegar á hægri hönd inn í eldhúsið. Fellur þá hurðin inn í eldhúsið á sama stað og hún nú er, en til hægri: en stiginn er til vinstri handar.

Explore with AITake your curiosity a little further.

Reading settings