Baðstofuhús nr. 1
Reading edition
Baðstofuhús nr. 1
6×9 álnir.
kr. a.
3 trje 18 feta 4×5 þml., 5 trje 20 feta 4×5 þml. á 10 a. 18 48
3 trje 18 feta 4×4 þml., 3 trje 12 feta 4×4 þml. á 10 a. 9 00
23 trje 7 feta 4×4 þml., 8 trje 8 feta 4×4 þml. á 10 a. 22 50
40 plankar 8 feta 2×4 þml., á 5 a. 16 00
6 plankar 14 feta 2×6 þml. á 9 a. 7 56
15 tylftir 12 feta borð 6×5/4 þml., plægð, óhefluð á 8,25 123 75
5-½ tylft 12 feta borð 6×5/4 þml. í gólf á 8,50 46 75
22 tylftir 12 feta borð 4 þml. í þiljur á 5,00 110 00
4-½ tylft 7 feta borð 6×5/4 þml., strikuð og plægð í milliþil á 5,50 24 75
3 tylftir 6 álna 7×5/4 þml. borð, óunnin, á 8,57 25 71
3 tylftir 7 álna 7×1 þml. borð, á 8,57 25 71
482 □ álnir pappa á 8 a. 38 56
72 þakjárnsplötur 8 feta á 2 kr., 3 plötur 8 feta sljett á 2 kr. 150 00
750 af þaksaum á 70 a., 4 þús. 4 þml. 2 30, 2 þús. 3 þml. 1,20, 1 þús. 2-½ þml. á 90 a., 7 þús. 2 þml. á 65 a., 1 þús. 1-½ þml. á 40 a., 1 þús. 1 þml. á 25 a., 1 þús. ½ þml. á 15 a., 6 þús. af pappasaum á 25 a. 24 60
10 pd. af zinki á 35 a., 6 pd. kítti á 18 a., 5 pd. blýhvíta á 28 a. 5 98
1 þús. galv. 1-½ þml. saumur á 1,75, 1 klinka á 1,50, 5 pt. af fernis á 70 a. 6 75
5 pör galv. gluggahjörur á 40 a., 3 stofuskrár á 2,25, 2 klefaskrár á 65 a. 10 05
6 pör hurðarhjörur á 40 a., 1 par ytri hjörur á 65 a.,1 gross skrúfur á 80 a. 3 85
Gler, eldavjel, reykpípur, hreinsunarhurð og 2 reykhurðir 44 60
Reykháfur, með vinnu 35 00
Smíðakaup 165 00
Samtals 914 59
Á þessu húsi ætti framstafninn að snúa í vestur. Kjallari undir allri baðstofunni, ef svo sýnist. Einn gluggi á suðurhlið. Aurslár og gólfslár 4×5 þml. Sillur, stafir og skástoðir 4×4 þml. Öll lausholt og sperrur 2×4 þml. Ekki má vera meira bil milli sperra en mátulegt fyrir eina torfubreidd. Eldavjelin sje vel þjett (frálaus), höfð í eldhúsi á sumrum, en baðstofu á vetrum, og lengja í reykpípunum. Troða heyi eða negla reiðing upp í millivegginn og þiljur beggja megin.
Þök og útveggir skulu gerðir eptir þeim reglum, som gefnar eru við hús A.
Sje skúr hafður til beggja hliða við baðstofu, verður lagið á húsi nr. 1 eins og á nr. 2. Með því fæst gott geymslurúm, bærinn verður traustari og að mun snotrari og kostnaðarminni að tiltölu.