← Table of contents
Húsabætur á sveitabæjum

Húsið A

Reading edition

Húsið A

6×8 álnir.

Máttarviðir. kr. a.

2 trje í aurslár (fótstykki) 16 feta 5×5 þml., fetið á 14 aura 4 48

10 trje í gólfslár og bita 12 feta 5×5 þml., fetið á 14 aura 16 80

4 trje í sillur og »lausholt« 16 feta 4×4 þml., fetið á 10 aura 6 40

8 trje í grindina 12 feta 4×4 þml., fetið á 10 aura 9 60

2 trje í grindina 13 feta 4×4 þml., fetið á 10 aura 2 60

20 trje í stafi og sperrur 9 feta 4×4 þml., fetið á 10 aura 18 00

8 trje í skástoðir 10 feta 4×4 þml., fetið á 10 aura 8 00

Plankar.

6 battingsplankar 12 feta 2×4 þml., fetið á 5 aura 3 60

8 battingsplankar í gluggakistur 14 feta 2×5 þml., fetið á 6 aura 6 72

Borðviður.

9 tylftir af plægðum borðum, óhefl. 14 feta 5/4×6 þml., tylftin á kr. 10,00 90 00

5 tylftir af plægðum borðum, óhefl. 12 feta 5/4×5 þml., tylftin á kr. 8,57 42 85

14 tylftir af sænskum þilborðum 14 feta ¾×4 þml., tylftin á kr. 6,00 84 00

3 tylftir af málsborðum 12 feta 5/4×7 þml., tylftin á kr. 9,00 27 00

3 tylftir af málsborðum 14 feta 1×7 þml., tylftin á kr. 9,00 27 00

4 tylftir af strik. og plægð. þilborðum 14 feta 5/4×6 þml., tylftin á kr. 11,00 44 00

4 tylftir af gólfborðum 16 feta 5/4×6 þml., tylftin á kr. 12,00 48 00

1 tylft af gólflistum (Fodpanel) á 6 kr., 1 tylft af dyra og gluggalistum (gerikt) á 6 kr. 12 00

Pappi og fleira.

335 □ álnir af pappa (Panelpap), al. á 8 aura 26 80

Naglar: 3 þús. 4 þml. á 2,30; 2 þús. 3 þml. á 1,20; 6 þús. 2 þml. á 0,65; 1 þús. 1-½ þml. á 0,40; 1 þús. 1 þml. á 0,25; 1 þús. 2-½ þml. á 0,90; 1 þús. ½ þml. á 0,15; 5 þús. af pappasaum á 0,25 16 15

12 rúður 14×14 þml. á 0,30 og 12 ruður 12×12 þml. á 0,25 6 60

5 pd. kítti á 0,18; 2 stofuskrár á 1,50; 3 klefaskrár á 0,65; 2 klinkur á 1,50 8 85

4 pör galvaníseraðar gluggahjörur á 0,40 1 60

10 pd. zinkhvíta á 0,28 2 80

1 pd. svartur farfi á 0,35; 2 pd. rauður farfi á 0,35 1 05

10 pottar fernisolía á 0,70 7 00

Reykháfur 9 áln. á 5,50=49,50. Eða 550 danskir múrsteinar á 5 a.27,50; kalk 12,00; vinnulaun 10,00 49 50

Þakjárn: 40 plötur 6 feta á 1,50; 38 plötur 7 feta á 1,75 126 50

Þakjárnsnaglar 800 á 70 a. hdr., og blýhringir á 2 kr. 7 60

1000 galvaníser. 1-½ þml. naglar 1 75

Hurðarhjörur: 6 pör á 40 a., 1 par (ytri) á 65 a., 1 gross skrúfur 80 a. 3 85

1 eldavjel með 3 pottstæðum og vatnskatli 26 00

1 hitavjel með 1 pottstæði, ferstrend, á 4 fötum 10 00

4 reykpípur (járnrör) með knje á, 68 a. hver 2 72

6 áln. beinar reykpípur á 1,30 alinin 7 80

2 reykhurðir á 1,15; 1 hreinsunarhurð á 1,00; 3 krókar á 0,20 3 90

Smíðakaup 170 00

931 52

Kjallari undir eldhúsi og búri (eða öllu húsinu) 2 áln. 6 þml. neðanjarðar, 18 þml. ofanjarðar, eins og grunnurinn segir til.

Aurslár, gólfslár og bitar með 5×5 þml. gildleika; allir aðrir viðir í grindinni 4×4 þml., nema 2×4 þml. í skúrinn, þó 4×4 þml. í undirgrindinni i skúrnum.

Undir lopt niðri 3-½ alin (undir bita), stafir 9 fet á hæð og sperruleggir sömul. 9 fet.

Öll milliþil í húsinu einföld, úr 5/4 þml. borðum, strikuðum og plægðum. Þrjár óstrikaðar spjaldahurðir: 1 niðri, 2 uppi.

Frá hitavjelinni í stofunni má leggja reykpípu (járnpípu) upp um loptið, til þess að veita hita í efra herbergið, og láta hana liggja inn i reykháfinn 8 þml. frá þaki.

Upp í grindina milli þilja skal troðið fornu heyi, en óskemmdu þó og vel þurru, eða þá vel þurrum reiðing og moldarlausum. Utan á grindina skulu lögð 5/4 þml. borð, þurr og plægð, en óhefluð, og pappi þar utan yfir, næst járninu. Innan á grindina skal einnig leggja pappa og þilja síðan innan með strikuðum þilborðum, ⅝ eða ¾ þml. á þykkt. Sami borðviður í þak (undir járnið) og veggi. Leggja skal vel þurrt og moldarlaust torf milli sperra, festa því þar með þverlistum, er klemmt sje milli sperrukjálkanna, og mega þeir (listarnir) ekki standa inn af sperrunum. Þá skal negla pappa innan á sperrurnar og þilja síðan innan með plægðum þilborðum.

Tvö aðalherbergin skulu máluð og gluggar allir þrímálaðir utan og innan. Hin herbergin ferníseruð tvívegis, nema geymsluherbergi.

Í heilu gluggunum 14×14 þml. rúður, en hinum 12×12 þml. Allt járnið nr. 24.

Hafa má auðvitað skúr við báðar hliðar hússins að endilöngu. Þá breytist auðvitað áætlunin nokkuð. Og þá verður að færa búrgluggann á eldhússtafninn. Þá verður allt loptið uppi ein baðstofa. Stiginn má vera þar sem hann er á myndinni, en reykháfinn verður að færa út í aðra hliðina, eins og sýnt er á baðstofuhúsinu nr. 1.

Explore with AITake your curiosity a little further.

Reading settings