Baðstofuhús nr. 2.
Reading edition
Baðstofuhús nr. 2.
13×6-½ alin.
kr. a.
8 trje 32 feta, 4 trje 26 feta 4×5 þml. á, 12 a. 43 20
4 trje 26 feta, 4 trje 13 feta 4×4 þml. á 10 a. 15 60
32 trje 8 feta, 8 trje 9 feta 4×4 þml. á 10 a. 32 80
45 plankar 10 feta, 28 pl. 9 feta 2×4 þml. á 5 a. 35 10
9 plankar 14 feta 2×6 þml. á 9 a. 11 34
6 tylftir 14 feta borð á 9,92; 6 tylftir 12 feta gólfborð á 8,50 110 52
7 tylftir 14 feta borð á 9,63, 21 tylft 12 feta borð plægð, en óhefluð á 8,25 240 66
5 tylftir 8 feta borð í milliþil, strikuð og plægð, á 6,29 31 45
4 tylftir 12 feta borð 7×5/4 þml. óhefl., 4 tylftir 14 feta borð 7×1 þml. óhefl. 8,57 68 56
20 tylftir þiljuborð 12 feta 4 þml. 5,00, 52 tylftir 8 feta þiljuborð á 3,39 273 68
940 □ al. af pappa á 8 a. 75 68
148 þakjárnsplötur á 2.00, 1600 naglar á 70 a. 307 20
6 þús. 4 þml. á 2,30, 2 þús, 3. þml. á 1,20, 3 þús. 2-½ þml. á 0,90, 9 þús. 2 þml. 0,65 a., 1 þús. 1-½ þml. á 0,40 a., 1 þús. 1 þml. á 0,25 a., 1 þús. ½ þml. á 0,15 a., 9 þús. af pappasaum á 0,25 a., 2 þús. af galvanís. 1-½ þml. nögl. á 1,75 31 30
10 pd. zinkhv. á 0,35 a., 6. pd. kítti á 0,18 a., 5 pd. blýhvítu á 0,28 5 98
1 klinka 1,50, 5 pt. fernisolía á 70 a. 5 00
7 pör galv. gluggahjörur á 40 a., 5 stofuskrár á 2,25 14 05
2 klefaskrár á 65 a., 6 pör hurðarhjörur á 40 a. 3 70
2 pör ytri hjörur á 65 a., 1 gross skrúfur á 80 a. 2 10
Gler, eldavjel, reykpípur, hreinsunarhurð og 2 reykhurðir 50 00
Reykháfur, með vinnu 40 00
Smíðakaup 250 00
Samtals: 1647 92
Á húsinu nr. 2 ætti framstafninn að snúa í suður. Sje annar endi baðstofunnar þiljaður af, kemur gluggi á þakið austanvert.
Hita má fá í baðstofuna á vetrum, með því að eldavjelin sje flutt inn. Einnig getur reykháfurinn verið í sama stað í húsinu nr. 2 sem í nr. 1, og hitanum hagað þar eptir. Glugga a húsi og skemmu má hafa á hliðum hússins.
Reykhlíf við reykháfinn beggja megin. Öll önnur gerð sem við hús nr. 1
Á húsi nr. 2 má ef vill setja port á baðstofuna og hækka þakið, láta bita yfir og gólf, til þess að hafa baðstofu uppi; þilja síðan þá baðstofu, sem er á uppdrættinum, í sundur, fyrir stofu, eldhús og búr, en hafa skúrana til geymslu, inngangs í húsið, fyrir svefnherbergi og fleira.