Húsið B.
Reading edition
Húsið B.
7×9 álnir.
Máttarviðir. kr. a.
2 trje í aurslár (fótstykki) 18 feta 5×5 þml., fetið á 14 aura 5 04
10 trje í gólfslár og bita 14 feta 5×5 þml., fetið á 14 aura 19 60
3 trje í sillur og »lausholt« 18 feta 4×4 þml., fetið á 10 aura 7 20
8 trje í grindina 14 feta 4×4 þml., fetið á 10 aura 11 20
2 trje í grindina 15 feta 4×4 þml., fetið á 10 aura 3 00
20 trje í stafi og sperrur 10 feta 4×4 þml., fetið á 10 aura 20 00
8 trje í skástoðir 11 feta 4×4 þml., fetið á 10 aura 8 80
Plankar.
6 battingsplankar 14 feta 2×4 þml., fetið á 5 aura 4 20
9 plankar í gluggakistur 14 feta 2×5 þml. fetið á 6 aura 7 56
Borðviður.
18 tylftir af plægðum borðum, óhefl., 12 feta 5/4×5 þml., tylftin á kr. 8,57 154 26
21 tylft af sænskum þilborðum 12 feta ¾×4 þml., tylftin á kr. 5,00 105 00
4 tylftir af málsborðum 14 feta 5/4×7 þml., tylftin á kr. 9,00 36 00
3-½ tylft af málsborðum 14 feta 1×7 þml., tylftin á kr. 8,00 28 00
5 tylftir af strik. og plægð. þilborðum 14 feta 5/4×6 þml., tylftin á kr. 11,00 55 00
8 tylftir af gólfborðum 12 feta 5/4×6 þml., tylftin á kr. 8,25 66 00
1 tylft af gólflistum (Fodpanel) á 6 kr., 1 tylft af dyra- og gluggalistum (gerikt) á 6 kr. 12 00
Pappi og fleira.
420 □ álnir af pappa (Panelpap), al. á 8 aura 33 60
Naglar: 4 þús. 4 þml. á 2,30; 2 þús. 3 þml. á 1,20; 7 þús. 2 þml. á 0,65; 1 þús. l-½ þml. á 0,40; 1 þús. 1 þml. á 0,25; 4 þús.2-½ þml. á 0,90; 1 þús. ½ þml. á 0,15; 5 þús. af pappasaum á 0,25 23 10
18 rúður 14×14 þml. á 0,30 og 14 rúður 12×12 þml. á 0,25 8 90
5 pd. kítti á 0,18; 2 stofuskrár á 1,50; 3 klefaskrár á 0,65; 3 klinkur á 1,50 10 35
3 pör galvaníseraðar gluggahjörur á 0,40 1 20
10 pd. zinkhvíta á 0,28 2 80
1 pd. svartur farfi á O,35; 2 pd. rauður farfi á 0,35 1 05
15 pottar fernisolía á 0,70 10 50
Reykháfur: 9 áln. á 5,50=49,50. Eða 550 danskir múrsteinar á 5 a. 27,50; kalk 12,00; vinnulaun 10,00 49 50
Þakjárn: 90 plötur 7 feta á 1,75 157 50
Þakjárnsnaglar 950 á 70 a. hdr., og blýhringir á kr. 2,25 8 90
1000 galvaníser. 1-½ þml. naglar 1 75
Hurðarhjörur: 6 pör á 40 a., 2 pör (ytri) á 65 a, 1 gross skrúfur 80 a. 4 50
1 eldavjel með 3 pottstæðum og vatnskatli 26 00
1 hitavjel með 1 pottstæði, ferstrend, á 4 fótum 10 00
4 reykpípur (járnrör) með knje á, 68 a. hver 2 72
6 áln. beinar reykpípur á 1,30 alinin 7 80
2 reykhurðir á 1,15; 1 hreinsunarhurð á 1,00; 3 krókar á 0,20 3 90
Smíðakaup 220 00
1126 93
Sömu aths. eiga við um þetta hús og húsið A, nema hvað stafir og sperrur verða að sínu leyti lengri—3 áln. 16 þml. undir bita í húsinu B.
Herbergjaskipunin í þessu húsi sama og í húsi A, en herbergin öll stærri og 2 gluggar á stofunni. Hafa má stofuna niðri styttri, ef vill, og leggja til lengdarinnar á búri og eldhúsi á báðum húsunum (A og B).
Hafa má loptið uppi óhólfað sundur, í baðstofu stað, en færa þá reykháf og búrglugga eins og á A; hafa svo geymsluskúra við báðar hliðar hússins eptir endilöngu.
Úr gangi þeim, sem gengið er inn í gegn um skúr til eldhúss, geta einnig verið dyr til stofu. Skúrinn þeim mun lengri.
Sje loptið einungis notað fyrir baðstofu (óhólfað sundur), verður áætlunin nálægt 40 kr. lægri, og hafa þá 1 heilan glugga á stafni, í stað tveggja hálfra (á myndinni). Þilja fyrir uppganginn alla leið upp undir þak, með hurð á, sem fellur inn í baðstofuna.