← Table of contents
Húsabætur á sveitabæjum

Baðstofuhús nr. 3.

Reading edition

Baðstofuhús nr. 3.

10×25 áln.

Þetta hús er einungis fyrir stór-heimili og mun reynast mjög þægilegt, hver sem það notar. Kjallari undir skemmu eða þinghúsi, hvort heldur vill öllu eða nokkrum hluta þess, og beinn stigi úr eldhúsi og niður úr ganginum, sem sjá má á uppdrættinum.

Skúr má hafa norðanvert við skemmu og búr, nema það sem gluggarnir ná til, en hafa má plankagirðing milli skúranna (með hurð) til hlífðar húsinu, ef vill.

Um ytri gerð þessa baðstofuhúss gilda sömu reglur og húsið A.

Þar sem uppdráttur af húsi nr. 3 verður notaður, er gjört ráð fyrir, að stór bær sje rofinn, og notað úr honum allt óskemmt efni, sem líkindi eru til að verði að mun, og smiðurinn gjöri grein fyrir því efni, sem vantar til húsgjörðarinnar. Þykir því engin brýn nauðsyn á sundurliðaðri áætlun.

Explore with AITake your curiosity a little further.

Reading settings