← Table of contents
Sæfarinn (Ferðin kring um hnöttin neðansjávar)

IX.

Reading edition

Klukkan sex morguninn eftir fórum við að búa okkur til burtferðar. Var þá hin langa heimskautsnótt að færast yfir og orðið hálfrökkvað. Stjörnur vóru að koma í ljós á himninum og skein hið fagra stjörnumerki, „Suðurkrossinn“ skærast á miðju hálofti.

Vindkulið var helkalt og 30 stiga frost á mælinum. Rekaísinn varð þéttari og þéttari og milli jakanna var að myndast dökkleitur lagnaðarís. Eftir lítinn tíma hlaut sjórinn að vera allagður og engin leið að komast að heimskautslandinu.

Sökkviklefarnir vóru fyltir og seig Sæfarinn niður í þrjú hundruð metra dýpi. Skrúfan tók að snúast og skipið rann af stað í norðurátt. Um kvöldið vórum við komnir langa vegu inn undir hafþökin.

Ég eyddi tímanum við lestur, því gluggarnir á salnum vóru byrgðir að utan. Var það gert til að fyrirbyggja að ísjakar rækjust í þá. En oft dvaldi hugur minn við þessa viðburðaríku heimskautsför og alt sem á dagana hafði drifið þessa fimm mánuði, sem við vórum búnir að vera neðansjávar. Við vórum búnir að fara sjö þúsund mílur og sjá margt afar merkilegt og fágætt. Ég hafði grætt mikinn og margvíslegan fróðleik á þessari ferð. Vakandi og sofandi sökti ég mér niður í nýstárlegar og furðulegar rannsóknir, sem hafið gaf mér tilefni til að stunda.

Klukkan þrjú um nóttina vaknaði ég við snöggan kipp. Ég þaut upp í rúminu, horfði út í myrkrið og hlustaði, vissi ég þá ekki fyr til en ég fleygðist úr rúminu fram á mitt gólf. Sæfarinn hlaut að hafa rekist á eitthvað og hrokkið afturábak.

Ég klæddi mig í snatri og skreiddist meðfram þilinu inn í aðalsalinn. Þar var bjart inni. Ýms húsgögn lágu þar á víð og dreif um gólfið, en til allrar hamingju vóru dýrustu myndastytturnar og borðin, með merkustu gersemunum svo vel fest, að þau hafði ekki sakað. Veggmyndirnar á bakborða héngu langt út frá þiljunum að neðanverðu. Sæfarinn lá á stjórnborðshlið og hreyfðist ekki heldur en jarðfastur klettur.

Framan úr skipinu var að heyra þrusk mikið og mannamál. Ég ætlaði að fara út úr salnum, en þá komu þeir Konsæll og Ned Land í flasið á mér.

„Hvað er um að vera?“ spurði ég.

„Ég ætlaði einmitt að fara að spyrja húsbóndann að því sama“, svaraði Konsæll.

„Það fór eins og mig grunaði“, sagði Ned Land. „Sæfarinn hefir rent upp á grynningar og liggur svo illa sem hugsast getur“.

„Vitið þið hvort við erum ofansjávar?“ spurði ég.

„Nei“, svaraði Konsæll.

„Við skulum fara og vita hvers við verðum vísari!“

Ég skundaði þangað sem þrýstimælirinn var, og varð ekki lítið forviða þegar ég sá að við vórum staddir á þrjú hundruð og sextíu metra dýpi.

„Hvernig í ósköpunum stendur á þessu!“ varð mér að orði.

„Við skulum fara og spyrja skipstjórann“, sagði Konsæll.

„Það er nú svo, en hvar er skipstjórinn?“ spurði Ned Land.

„Komið þið með mér!“

Við fórum út úr salnum og inn í bókasafnsklefann. Hann var mannlaus. Datt mér þá í hug að Númi mundi náttúrlega vera við stýrið. Við kusum heldur að bíða en fara þangað og snérum því aftur inn í salinn.

Ned Land brann í skinninu. Ég lofaði honum að rausa og geysa, eins og hann vildi og svaraði engu. Ég sat og hlustaði stundarkorn þangað til Númi alt í einu vatt sér inn úr dyrunum. Það var óvanalegur asi á honum og lét sem hann sæi okkur ekki, en fór að athuga þrýstimælirinn og áttavitann. Þegar hann var búinn að því, snéri ég mér að honum og spurði hvað fyrir hefði komið.

„Óhappa slys“, svaraði hann.

„Eru mikil brögð að því?“

„Um það er ekki full vissa fengin enn“.

„Hefir skipið laskast?“

„Já“.

„Hvernig vildi það til“.

„Því valda ófyrirsjáanleg atvik. Jafnvægislögmálið fylgir sínum kreddum og má ekki fyrir því gera“.

Ég skildi ekki enn hvað hann fór.

„Hver eru þau óhappaatvik, sem þér talið um?“ spurði ég.

Númi mælti: „Þegar straumar mæða lengi á stórum fjalljökum, þá eyðast þeir að neðan, eins fer ef þeir berast út í hlýjan sjó, þá bráðnar utan af þeim hlutanum sem í kafi er. Fer þá svo að lokum að þeir steypast kollhnýs. Það er svona atvik, sem við höfum orðið fyrir nú. Fjalljaki hefur kolloltið og lent á skipshliðinni annari. Skipið hefir hrokkið fyrir, byltst til og orðið ofan á nokkrum hluta jakans.“

„Mætti ekki létta skipið með því að tæma sökkviklefana?“ spurði ég.

„Það er einmitt verið að því núna“, svaraði skipstjórinn. „Sæfarinn er að lyftast upp, eins og þið sjáið á þrýstimælinum. En jakinn lyftist líka að sama skapi, svo við erum engu nær fyr en ef svo vill til, að hann rekst á eitthvað“.

Það fór eins og Númi hafði sagt. Áttum við nú á hættu að jakinn bærist með skipinu upp undir fastaísinn og molaði það þar.

Þegar þessu hafði farið fram um hríð, kom alt í einu önnur hreyfing á Sæfarann. Hann var að rétta við. Veggmyndirnar lögðust smátt og smátt að þilunum. Við stóðum þegjandi og biðum þess sem verða vildi. Liðu svo tíu mínútur. Þá var Sæfarinn kominn á réttan kjöl.

„Við erum á réttum kili“, sagði ég.

Númi samsinti því og gekk á dyr.

„En erum við á floti?“ spurði ég.

„Það hlýtur að vera“, svaraði skipstjórinn. „Það er verið að létta á sökkviklefunum og Sæfarinn er því á uppgaungu“.

Rétt eftir að Númi var farinn út stöðvaðist skipið. Var það hyggilegt af Núma að láta ekki berast hærra upp, því ella gátum við átt á hættu að rekast upp undir fastaísinn. En það varð hann að forðast.

„Er okkur borgið?“ spurði Konsæll.

„Já“, svaraði ég. „Lánið var með okkur í þetta sinn og mátti ekki miklu muna, að við yrðum innibyrgðir og köfnuðum í loftleysi.“

„Það er nú svo“, sagði Ned Land.

Í þessu var hlerunum skotið frá gluggunum og lagði inn birtu utan að. Sæfarinn var á floti. En í tíu metra fjarlægð frá báðum borðum vóru þverhníptir, gljáandi ísveggir, sömuleiðis fyrir ofan skipið og neðan. Jakinn sem við flúðum undan hafði rekist á fastaísinn og við vórum komnir inn í geil eða göng, þrjátíu metra á hæð og breidd. Var nú ekki annað fyrir en komast út úr göngunum, aftur á bak eða áfram, síga nokkur hundruð metra niður í djúpið og halda svo ferðinni áfram.

Ljósið í salnum var slökt, en inn um gluggana lagði svo sterka birtu, að full-ljóst var eftir sem áður. Birta þessi stafaði frá ljóskerum Sæfarans, en magnaðist margfaldlega af geislabrotinu í ísnum. Hver ójafna, sprunga og nibba í ísnum ljómaði í ótal litbrygðum eins og kristalsgler væri. Það var eins og við værum staddir í afarstórum helli, alsettum bláum, rauðum og grænum gimsteinum, sem skáru í augun af ljósmagni og litbrygðum.

Þessi sjón var svo fögur og tíguleg að Ned Land varð hrifinn af henni, hvað þá við hinir. En á þessu varð skjót breyting. Konsæll hljóðaði upp yfir sig og við tókum ósjálfrátt höndunum fyrir augun.

Sæfarinn var lagður af stað og skreið hratt. Öll þessi ógnamergð ljósgeisla og lita var komin á hreifingu. Var því líkast sem dynjandi eldregn flýgi fyrir gluggann, og stungu geislarnir augun eins og nálaroddar.

Hlerunum var skotið fyrir gluggana og gátum við þá tekið hendurnar frá augunum, en sviðatilkenning höfðum við í sjáaldrinu lengi á eftir.

Klukkan fimm um morguninn urðum við varir við snöggan kipp. Gátum við þess til, að framstafn skipsins hefði rekist í ísnibbu, og mundi það hæglega geta sneitt fyrir hana. En brátt varð ég þess var, að skipið skreið aftur á bak.

„Við förum aftur á bak!“ sagði Konsæll.

„Já“, svaraði ég. „Göngin hafa verið byrgð í þennan endann. Við verðum að leita útgöngu annarsstaðar“.

Ég var í mikilli geðshræringu, en reyndi að dylja hana fyrir félögum mínum. Mér eirði ekki að sitja lengur. Ég fór inn í bókaklefann, þaðan inn í salinn og svo inn í bókaklefann aftur, tók bók og fór að blaða í henni, en las ekki stakt orð.

Konsæll kom inn til mín.

„Er það skemtileg bók, sem húsbóndinn er að lesa núna?“ spurði hann.

„Já, mjög skemtileg“, svaraði ég.

„Mér datt það í hug. Það er víst 'Um leyndardóma undirdjúpanna'“.

Bókin mín! Ég skelti aftur bókinni og gekk inn í salinn.

Ég beið með óþreyju þess sem verða vildi og var alt af annað veifið að athuga mælingaverkfærin. Á þrýstimælinum sá ég að við vórum alt af í þrjú hundruð metra dýpi, og áttavitinn sýndi að við héldum í suður; en skriðstikan mældi 5 sæmílna hraða á klukkustundinni. Það var hratt farið í svo þröngum farvegi. En Númi skipstjóri varð að hafa hraðann á, því hver mínúta var dýrmæt.

Þegar klukkan var gengin tuttugu og fimm mínútur í níu, rakst skipið á að nýju. Og nú var það skuturinn sem mætti fyrirstöðunni.

Ég fölnaði af ótta, og förunautar mínir spruttu upp og staðnæmdust hjá mér. Ég tók í höndina á Konsæl.

Í sömu svifum kom Númi skipstjóri inn úr dyrunum.

„Við erum innibyrgðir“, sagði hann.

Mér varð litið framan í Núma. Hann var að sjá jafn skaprór og hann átti vanda til. Hann staðnæmdist á miðju gólfinu, brá handleggjunum í kross á brjóstinu og var hugsi um hríð.

Sæfarinn hreyfðist ekki.

Loks tók Númi til máls, jafn stillilega og vant var:

„Það verður líklega út úr, að við köfnum hérna“.

„Er þéttiloftið komið að þrotum?“ spurði ég.

„Við höfum enn nægilegt loft í fjörutíu og átta klukkustundir“.

„Er engin von um að fram úr rakni fyrir okkur, fyrir þann tíma?“

„Við verðum að reyna að brjótast gegnum ísinn. Sæfarinn er nú að leggjast á botninn á þessum göngum. Svo sendi ég nokkra menn út til að grenslast eftir hve ísinn er þykkur og hvar tiltækilegast muni að leita útgöngu“.

Að svo mæltu fór Númi. Sæfarinn seig niður á við hægt og hægt og náði loks botni á þrjú hundruð og fimmtíu metra dýpi.

„Við erum í miklum vanda staddir“, sagði ég.

„Svo er víst“, svaraði Ned Land, „og er nú sízt tími til ill-lynda og nöldurs. Ég get beitt íshöggi engu síður en skutli, og vil nú bjóða Núma skipstjóra liðveizlu mína“.

Við fylgdum Núma þangað, sem skipverjar vóru að fara í kafarafötin. Boði hans var vel tekið, og sá ég ekki að hann væri seinni að búa sig, en hver hinna.

Meðan þessu fór fram, hafði hlerunum verið skotið frá gluggunum á salnum. Gátum við Konsæll því séð, hverju fram fór umhverfis skipið. Að vörmu spori komu tíu menn út úr skipinu og gengu út á ísinn. Mátti sjá hvar þeir fóru, Númi skipstjóri og Ned Land, því þeir vóru öðrum miklu meiri á vöxt.

Áður byrjað væri að brjóta ísinn, var hann kannaður rækilega með löngum ísnöfrum. Fyrst var borað í hliðarstálin til beggja handa, og náði nafarinn 15 metra inn í ísinn, en komst þó ekki í gegn. Þótti þá vonlaust, að reyna frekar í þá átt. Þá var borað niður í botninn. Þar reyndist ísinn að vera tíu metra þykkur. Var nú ekki annað fyrir, en höggva þar gat á ísinn, svo stórt, að Sæfarinn kæmist niður um það. En til þess að það gæti tekist, varð að höggva upp sex þúsund og fimm hundruð teningsmetra af ís.

Var nú umsvifalaust tekið að brjóta ísinn. Númi markaði fyrir um svo stóran blett, sem svaraði ummáli skipsins. Þegar farið var að höggva ísinn, kom í ljós einkennilegt fyrirbrygði, sem varð mikill hægðarauki við vinnuna. Klakaflísarnar, sem losnuðu, vóru léttari en vatnið, og leituðu því upp á við jafnharðan og staðnæmdust upp við ísþekjuna í göngum þessum. Varð hún því að sama skapi þykkari, sem gólfið varð þynnra.

Eftir tvær klukkustundir kom Ned Land inn í salinn aftur, og var þá all-dasaður orðinn. Tók þá við nýr flokkur manna af hinum, og vórum við Konsæll í þeirra hóp. Þeim flokki stýrði næstráðandi skipsins.

Mér þótti sjórinn kaldur fyrst í stað, en mér hitnaði brátt af erfiðinu. Var mér þó furðu hægt um hreyfingar allar, þrátt fyrir þrjátíu loftþyngda þrýsting, sem hvíldi á okkur.

Þegar ég kom inn í skipið aftur, að liðnum tveim stundum, til að hvílast og matast, fann ég talsverðan mun á því, hve loftið í skipinu var verra en það loft, sem við höfðum andað að okkur við vinnuna. Í herbergjum skipsins hafði ekki verið skift um loft í fjörutíu og átta klukkustundir, og var það því orðið talsvert mengað af kolsýru.

Fór svo fram um tólf stundir, að flokkarnir skiftust á um að brjóta ísinn. Var þá dældin orðin einn meter á dýpt. Með sama áframhaldi þurfti enn að vinna í fimm nætur og fjóra daga, til þess að ljúka verkinu.

Fimm nætur og fjóra daga! Það vóru illar horfur. Og nú áttum við ekki meira loft eftir en svo, að vart mundi endast í tvo sólarhringa.

„Já, og ekki nóg með það“, sagði Ned Land, þegar ég hafði orð á þessu við hann, „þó við höfum af að komast niður úr ísnum, erum við engu bættari, fyr en við komumst út úr ísnum og náum lofti í auðum sjó“.

Ástæður okkar vóru óneitanlega slæmar, en við vórum samhuga um það allir, að duga eftir mætti fram á síðustu stund.

Um nóttina var dældin enn dýpkuð um einn meter. En þegar ég byrjaði að vinna morguninn eftir, veitti ég því eftirtekt, að ísgeilin, sem við vórum í, var að þrengjast. Hliðarnar færðust nær. Ennþá einn háskinn á ferðinni! Það var ekki um að villast, sjórinn umhverfis okkur var að frjósa, og hlaut sá endir á því að verða, að frostið kreisti Sæfarann saman í heljargreipum sínum.

Þegar ég kom inn í skipið aftur, vakti ég máls á þessu við Núma skipstjóra. En kjarkur þessa manns var óbilandi.

„Ég veit það“, sagði hann. „En við því er ekki annað að gera, en vinna hraðar en frostið,—verða á undan því“.

Þann dag vann ég marga tíma af mesta kappi. Vinnan hélt við hugrekki mínu, og svo var annað, sem hvatti mig til vinnunnar. Loftið í Sæfaranum var orðið æði þungt og þrungið af óheilnæmi, en við vinnuna höfðum við hreint loft, sem tekið var úr loftforða skipsins og látið í lofthylkin, sem við bárum á bakinu.

Um kvöldið vórum við enn komnir einum meter dýpra. En loftið í Sæfaranum var nú orðið svo fult af kolsýru, að Númi varð að opna einn þéttiloftsklefann og hleypa hreinu lofti út í skipið.

Daginn eftir tók ég til starfa að nýju. Var nú ísinn kominn svo nærri til beggja hliða og að ofan, að mér duldist ekki að hann mundi læsa sig utan um skipið áður en við gætum bjargað því. Ég var að því kominn að láta hugfallast. Til hvers var að strita lengur, fyrst svo átti að fara hvort sem var, að þetta steingerða vatn kreisti úr okkur lífið! Það var því líkast sem óargadýr væri að leggja skoltana utan um okkur.

Í sama bili gekk Númi hjá mér. Ég benti með hendinni á ísinn. Á stjórnborða hafði ísinn þokast nær um fjóra metra. Númi skildi hvað ég átti við og benti mér að koma með sér. Snérum við inn í skipið aftur, fórum úr kafarafötunum og gengum inn í aðalsalinn.

„Við verðum að finna eitthvert úrræði, prófessor góður; ella er úti um okkur“.

„Já, en hvað á það að vera?“

„Ég vildi að Sæfarinn væri sterkari en ísinn!“ sagði Númi. „Þá mundi hann geta sprengt ísinn, eins og ís sprengir stein, og við þyrftum ekkert fyrir að hafa“.

„Nei færum við að reyna það, þá yrði Sæfarinn að járnklessu“.

„Já, satt er það. Við verðum að hamla frostinu að ná okkur. Það er ekki einungis til hliðanna, sem ísinn færist nær, heldur einnig til beggja enda“.

„Hve mikið loft er eftir?“

„Ekki meira en svo, að leyfarnar þrjóta í fyrramálið“, svaraði Númi dræmt og leit til mín.

Mér spratt kaldur sviti í enni. Var þó þetta engin nýjung, því ég vissi vel að svona hlaut að fara. Nú vóru liðnir fimm sólarhringar síðan hreint loft var tekið seinast.

Ég leit á Núma og sá að hann var annars hugar. Það var að sjá sem honum hefði hugkvæmst eitthvað, sem hann var að velta fyrir sér.

Eftir nokkra þögn mælti Númi; „Það er ekki mikill sjór umhverfis okkur. Ef heitu vatni væri dælt út úr skipinu, ætti það að geta hamlað upp á móti frostinu“.

„Það ættum við að reyna“.

„Komið þér með mér“.

Númi fór með mig inn í matreiðsluklefann. Þar vóru stór og margvísleg eimingaráhöld, sem höfð vóru til að ná neyzluvatni úr sjónum. Eimíkerin vóru fylt vatni og hleypt gegnum þau sterkum rafmagnsstraumi. Hitnaði þá vatnið svo að segja á augabragði og mátti þegar í stað dæla því út sjóðheitu.

Að liðnum þrem stundum sýndi mælirinn utan á skipinu sex stiga frost. Það var einu stigi minna en þegar tilraunin byrjaði. Enn liðu tvær stundir, og var þá frostið ekki orðið meira en fjögur stig.

Þegar leið á nóttina var frostið orðið að eins eitt stig. Hærra var ekki unt að komast. En þetta dugði, því saltvatn þarf tveggja stiga kulda til að frjósa. Var því nú afstýrt að við frysum inni á þennan hátt.

Að kvöldi hins næsta dags var búið að höggva svo mikinn ís, að þróin var orðin sex metra djúp. Þá vóru eftir fjórir metrar,—sama sem fjörutíu og átta klukkustunda vinna.

Loftið í skipinu varð nú ekki endurnýjað oftar. Það sem til var af óspiltu lofti, varð að treina handa þeim, sem unnu að klakahögginu. Loftið var því nær banvænt orðið.

Ég varð altekinn af þróttleysi og doða, sem ætlaði að gera út af við mig. Klukkan þrjú um daginn elnaði ógleði mín og sóttu á mig geispar svo tíðir og langir, að við sjálft lá að kjálkarnir gengju úr eðlilegum skorðum. Því næst kom yfir mig doðamók, svo nærri lá að ég misti meðvitundina. En ég átti hauk í horni þar sem Konsæll var. Hann hélt í höndina á mér og reyndi á allan hátt að hughreysta mig og var hann þó jafn illa haldinn og ég.

Þegar svona var orðið ástatt í skipinu má geta nærri að við urðum fegnir að komast út til vinnunnar. Okkur stóð á sama þó verkið væri erfitt, þó við yrðum yfirkomnir af þreytu. Við gátum dregið andann meðan stóð á vinnunni, og það var aðalatriðið.

Þegar þessi dagur var á enda vóru eftir að eins tveir metrar milli lífs og dauða. En loftið var á förum.

Það var óttaleg nótt sem í hönd fór, og næsti dagur þó enn verri. Ég kvaldist af höfuðverk og svima og reikaði eins og drukkinn maður, þegar ég stóð upp.

En Númi skipstjóri lét ekki hugfallast af stritinu og þrautunum, sem hann átti sömu hlutdeild í og við.

Hann einn réði betur fram úr vandræðunum en við allir hinir. Hann afréð að gera tilraun til að bjarga okkur á auðveldari hátt en íshöggið var. Þróin sem búið var að höggva, var á stærð við Sæfarann að innanmáli og í botninum var ísinn að eins einn meter á þykt. Númi lét nú bora göt gegnum ísinn til og frá. Að því loknu skipaði hann að lyfta Sæfaranum þaðan sem hann lá og sökkva honum niður í þróna. Þegar skipverjar vóru komnir inn í skipið, var hlerunum lokað vandlega og vatni hleypt inn í sökkviklefana. Klefarnir rúmuðu eitt hundrað teningsmetra af sjó. Við það varð skipið tvö þúsund tíufjórðungavættum þyngra en áður.

Við biðum óþreyjufullir úrslitanna.

Þrátt fyrir suðið í eyrum mér, heyrði ég glögt ísinn bresta undan kjölnum á Sæfaranum. Alt í einu brast hann allur sundur með braki miklu, og skipið sökk eins og steinn í djúpið.

„Við erum komnir niður úr“, sagði Konsæll.

Ég kom ekki upp orði, en tók í höndina á Konsæl fast og alúðlega.

Sæfarinn féll eins og steinn í lausu lofti, sökum vatnsþyngslanna, sem í honum vóru.

Dælurnar vóru settar af stað á augabragði til að þrýsta út sjónum úr skipinu. Dró því brátt úr fallhraðanum og eftir stutta stund mátti sjá á þrýstimælinum að skipið var farið að leita upp á við aftur. Var nú vélin sett af stað og haldið áfram norðureftir með fylsta hraða.

En nú var eftir að vita hve langt var norður úr ísnum. Lengur en einn dag enn var óhugsandi að nokkur maður í skipinu héldi lífi.

Ég var hættur að vita hvað tímanum leið. Ég vissi það eitt, að ég var kominn fram í andarslitrin og hlaut að deyja.

Skyndilega lifnaði yfir mér aftur og ég teigaði að mér hreint loft. Vórum við komnir út úr ísnum og upp á yfirborðið?

Nei, ekki var því að heilsa. En Ned Land og Konsæll höfðu fundið ögn af lofti í einu kafarahylkinu og létu mig anda því að mér, í stað þess að neyta þess sjálfir.

Ég ætlaði að ýta því frá mér, en þeir héldu á mér höndunum meðan ég var að svelgja hreina loftið.

Mér varð litið á klukkuna. Hún var ellefu. Það var liðið nær hádegi, hinn 28. marz. Ég fann að skipið hristist ákaft af átökum vélarinnar.

Eftir þrýstimælinum að dæma vórum við ekki nema tuttugu fet fyrir neðan yfirborð sjávar. Ísinn var orðinn tiltölulega þunnur og ekki óhugsandi að takast mætti að brjótast upp úr honum. Að minsta kosti ætlaði Númi að gera tilraun til þess. Sæfarinn lagðist skáhallur, svo stafninn vissi upp á móti ísnum. Til að ná þeirri aðstöðu þurfti ekki annað en fylla sökkviklefa aftur í skipinu. Svo rann hann undir ísinn og beitti stáltrjónunni. Gekk svo um hríð og brotnaði ísinn að mun í hverri atrennu. Loks rann hann í gegnum ísinn og upp á skörina, sem þegar brast undan þunga skipsins.

Þiljuhlerunum var hrundið upp í einni svipan og hreint loft lagði niður í skipið.

Explore with AITake your curiosity a little further.

Reading settings