VIII.
Reading edition
Hinn 14. marz sáum við fyrst ís á floti. Út við sjónhringinn í suðri var hvítleitt belti og glampaði á það í sólskininu. Það var hafís. Fram úr þessu fórum við að sjá reglulega fjalljaka. Grænar gárur vóru í sumum þeirra, eins og eirgræna, en sumir vóru kristallsglærir. Jökunum fjölgaði eftir því sem lengra dró suður.
Númi var stöðugt á þiljum uppi og athugaði leiðina gaumgæfilega. Við hittum fyrir ákaflega stóra fjalljaka, og fór þeim alt af fjölgandi. Var svo að sjá stundum, sem allar leiðir væru lokaðar. En alt af fann Númi eitthvert sund.
Hinn 16. marz kl. 8. árdegis fórum við yfir heimskautsbauginn. Jakaísinn var nú orðinn svo mikill og þéttur, að lítt hugsandi var að komast lengra. Sumir jakarnir stóðu sjötíu og áttatíu metra upp úr sjónum. En alt af varð Núma eitthvað til. Alt af hélt hann áfram lengra og lengra, þó þröng væru sundin sumstaðar.
Við vórum nú úr öllum efa um það, að Númi mundi ætla sér að komast alla leið að suðurheimskautinu.
En brátt var öllum sundum lokað og ómögulegt að komast lengra áleiðis. Fram undan vóru hafþök af samfeldum ís og engin geil eða smuga sjáanleg.
Númi var þó ekki alveg á því, að hætta við svo búið. Hann rendi Sæfaranum á ísinn hvað eftir annað, með svo miklu afli, að klakaflísarnar flugu í allar áttir og dundu niður á okkur eins og haglél. Stundum rendi hann skipinu upp á ísinn, svo hann brotnaði undan þyngslum þess. Ruddi hann sér braut dálítinn spotta á þennan hátt. Biksvört þoka lagðist yfir. Fylgdi henni ákafleg fannfergja og stormhviður af ýmsum áttum.
Loksins eftir langt strit og erfitt sat Sæfarinn fastur í ísnum og mátti sig hvergi hræra. Það var 18. marz.
Hvert sem litið var, var ekki annað að sjá en ís. Var hann ákaflega úfinn og ósléttur. Sumstaðar stóðu hundrað feta háar ísstrýtur upp úr breiðunni. Sumstaðar hólar og höfðar, þverhníptir íshamrar og afarstórar jakahyrnur. Sumstaðar vóru slétt svell og klakaþil, sem sendu geisla eins og spegilgler, ef til sólar sá. Dauðaþögn hvíldi yfir þessari ísauðn; lífsmörk sáust ekki.
Ég stóð á þiljum og sá að vökin, sem Sæfarinn flaut í, var alt af að þrengjast og skarirnar að færast nær skipinu. Frostið var svo hart, að ekki var viðlit að halda vökinni þýðri til lengdar.
Númi skipstjóri vatt sér að mér og tók mig tali.
„Jæja, herra prófessor, hvernig lízt yður nú á?“
„Mér lízt svo á, að við förum ekki lengra“.
„Því á ég bágt með að trúa. Ég ætlaði mér að komast að suðurheimskautinu“.
Það vissi ég vel að Númi var áræðinn, blátt áfram ofdirfskufullur. En hér var farartálmi, sem engin leið var til að yfirvinna.
„Sæfarinn getur ef til vill flogið“ sagði ég.
„Nei“, svaraði Númi, „en kafað getur hann“.
„Já, auðvitað“.
Mér flaug þegar í hug hvað Númi mundi ætla sér.
„Já, við skiljum víst hvor annan“, sagði Númi og brosti. „Hæstu jakarnir eru ekki yfir hundrað metra á hæð. Þeir standa því ekki öllu lengra niður en þrjú hundruð metra. Og hvaða tálmi er það fyrir Sæfarann!“
„Sama sem enginn, herra skipstjóri“.
„Nei, en erfiðleikinn er innifalinn í því, að vera lengi í kafi, og geta ekki endurnýjað loftið í skipinu“, svaraði Númi.
„Loftklefarnir í Sæfaranum rúma mikið, svo það verður að líkindum nægjanlegt“.
„En þá er eftir að vita, hvort það er auður sjór við heimskautið. Ef til vill komumst við ekki upp og verðum að snúa aftur“.
„Heimskautið og kuldaskautið liggja ekki saman“, sagði ég, „svo vel getur verið, að við finnum auðan sjó“.
„Það er einmitt það, sem ég hafði hugsað, hr. prófessor. Nú er um að gera, að nota tímann vel“.
Númi kallaði á næstráðandann og töluðust þeir við um hríð, á máli, sem ég skildi ekki eitt orð í.
Ekki sá ég að næstráðanda brygði, hvort sem það nú kom til af því, að honum var áður kunn ætlun Núma, eða hinu, að honum óx ekki í augum áhættan.
Þó var enginn eins skaprór og Konsæll. Þegar ég sagði honum að ætlun okkar væri, að komast til heimskautsins, varð honum ekki annað að orði en þetta: „Eins og húsbóndanum þóknast“. Þar með var það mál útkljáð af hans hálfu.
Ned Land tók þessu alt öðruvísi. Hann ypti öxlum og sagði í hálfkæringi:
„Mér þykir mikið fyrir að heyra þetta, vegna yðar og þessa Núma skipstjóra“.
„Þér haldið ef til vill að við náum ekki heimskautinu?“
„Það er mjög líklegt, að við komumst þangað, en þaðan aftur komumst við ekki“.
Ned hvarf til klefa síns, „til að valda ekki vandræðum“ að hann sagði.
Nú var tekið til að búa alt undir þessa glæfraför. Loftdælurnar vóru settar af stað og loftinu þjappað svo í klefana, sem unt var.
Tólf skipverjar komu upp á þilfar, með haka og járnkarla og tóku að brjóta lagnaðarísinn frá skipinu. Var það auðgert, því ísinn var þunnur enn, þó 20 stiga frost væri á. Klukkan fjögur fóru allir niður í skipið. Hlerarnir vóru látnir aftur og festir ramlega með skrúfum. Sjó var hleypt inn í sökkviklefana og Sæfarinn seig niður í djúpið.
Ég tók mér sæti við gluggann í aðalsalnum og Konsæll við hlið mér. Á þrjú hundruð metra dýpi komumst við niður úr ísnum, eins og Númi hafði fyrir sagt. En Sæfarinn fór ekki að halda í áttina fyr en hann var kominn niður í átta hundruð metra dýpi. Leiðin sem við áttum fyrir hendi að fara, var tvö hundruð og fimmtíu mílufjórðungar. Sæfarinn hélt af stað með tíu mílna hraða á vökunni. Við gátum því búist við að verða komnir til heimskautsins að liðnum tuttugu og fjórum klukkustundum, ef alt gengi vel.
Ég var á fótum kl. fimm morguninn eftir og fór þegar út að glugganum. Ég varð þess var að Sæfarinn leitaði upp á við, hægt og gætilega, með því að dælt var sjó út úr sökkviklefunum. Hjá mér glæddist þegar von um, að nú mundum við hitta fyrir auðan sjó, en hún brást skjótlega. Snöggur kippur gaf til kynna, að skipið hefði rekist á ísinn. Ég hraðaði mér að þrýstimælinum. Við vórum staddir í fjögur hundruð metra dýpi. Ísinn var miklu þykkari hér. Fjögur hundruð og fimmtíu metra þykk hafíshella lá yfir okkur. Þetta var lítið gleðiefni.
Sæfarinn reyndi fyrir sér hvað eftir annað þennan dag, en hitti jafnan ís fyrir. Stundum náði ísinn niður í sjö hundruð og fimmtíu metra dýpi. Þar var því ísinn níu hundruð metra þykkur,—eitt hundrað og fimmtíu metrar stóðu upp úr sjó.
Svo liðu þessar tuttugu og fjórar klukkustundir, að ekki vænkaðist útlitið. Alt af varð ís fyrir okkur á fjögur til fimm hundruð metra dýpi. Enn var nægilegt andrúmsloft í skipinu. En hve lengi gat það enzt?
Mér kom ekki dúr á auga næstu nótt. Ég var sí og æ að athuga þrýstimælirinn, og alt af var Sæfarinn að reyna fyrir sér. Klukkan þrjú um morguninn sá ég loks að Sæfarinn „rak sig ekki upp undir“ fyr en á fimmtíu metra dýpi. Ísinn var að þynnast!
Ég hafði ekki augun af þrýstimælinum. Undirborð íssins fláði upp á við, svo smátt og smátt grynkaði á skipinu. Við fórum svo nærri ísnum sem unt var. Ísinn glampaði og glitraði fagurlega í geislum rafljóssins og varð mun þynnri við hvern kílómeter, sem lengra dró.
Loks kom Númi inn í salinn klukkan 6 um morguninn—þann 19. marz—og flutti mér fagnaðartíðindi:
„Auður sjór!“
Ég hraðaði mér upp á þilfar. Ísjakar vóru á reki til og frá umhverfis okkur, annars var autt haf á alla vegu, ýmist sægrænt eða dökkblátt á lit. Aragrúi fugla sveimaði í loftinu yfir okkur og út í frá. Hafísinn var langt að baki okkur og sá að eins móta fyrir honum við sjónhvörf í norðri.
„Erum við nú komnir í heimskautið?“ spurði ég.
„Ég veit það ekki“, svaraði skipstjórinn, „við sjáum til um hádegið“.
„Ef við verðum þá svo hepnir að sjá til sólar“.
„Það þarf ekki nema ofurlítinn geisla“.
Í suðri mótaði fyrir hæðum, nokkur hundruð metra háum. Það var auðsjáanlega land. Sæfarinn stefndi þangað. Við fórum hægt, af ótta fyrir skerjum. Að stundu liðinni náðum við ströndinni.
Land þetta var eyja og fórum við í kring um hana á tveim stundum. Land var að sjá í suður frá eynni og mjótt sund á milli. Hve stórt það var gátum við ekki séð fyrir þokudumbungi.
Sæfarinn lagðist að landi og varpaði akkerum. Sandur var upp frá ströndinni og klettafell fyrir ofan. Báti var skotið út og fórum við í hann fimm saman, Númi skipstjóri, Konsæll og ég og tveir skipverjar; þeir fluttu með sér mælingaáhöld. Ned Land lét ekki sjá sig. Klukkan var tíu þegar við létum að landi.
Eftir nokkur áratog rendi báturinn upp í sandinn. Konsæll ætlaði að hlaupa í land, en ég hélt honum aftur.
„Núma skipstjóra ber fyrstum manna að stíga fæti á land suðurheimskautsins“, sagði ég.
Númi stóð upp í bátnum og leit í kringum sig brosandi.
„Hér hefir enginn áður komið“, sagði hann, steig upp á hástokkinn og stökk á land. Við Konsæll hlupum á eftir honum.
Fyrir ofan sandinn tók við brimsorfið stórgrýti, en illfærar hraunurðir, brunagrjót og gjall þegar lengra dró. Var ekki um að villast, að þar mundi vera eldgígur allskamt á burtu. Brennisteinssvælu lagði upp úr gjótum og glufum hér og hvar. Mátti af því ráða að jarðeldur sá, sem að líkindum hafði myndað landið, mundi ekki vera kulnaður með öllu. Af jurtagróðri sá ég þar ekki annað, en nokkrar óverulegar mosategundir á steinum í stöku stað og að eins eina tegund af þangi, sem brimið hafði kastað upp á ströndina.
Hafið hlaut að vera mjög fiskisælt. Réði ég það af því, að alt var krökt af fugli. Þar vóru álkur, veiðibjöllur, fýlungar, endur og fjöldi annara fuglategunda. Alt úði og grúði í fugli, jörð loft og lögur, og alstaðar eilíft garg og kliður.
Þoka var stöðugt svo mikil, að byrgði alla útsýn. Um hádegið vissum við ekki einu sinni í hverri átt sólar var að leita. Við gátum því ekki að þessu sinni vitað, hvort við vórum staddir í heimskautinu eða ekki, og olli það Núma skipstjóra mikillar gremju.
„Við reynum aftur á morgun“, sagði hann, þegar við snérum á leið til bátsins aftur. Snjór tók að falla úr þokunni, og varð brátt af hlaðkafald svo mikið, að varla sá handa skil.
Daginn eftir var blind-bilur, og ekki fært upp á þilfar. Heyrði ég niður í salinn gargið í veiðibjöllunum og fleiri fuglum, sem hröktust fyrir ofviðrinu úti. Sæfarinn skreið í hægðum sínum suður með landi. Einu sinni sáum við bjarma af sól, niður við hafflöt í norðri, en ekki var birtan meiri en svo, að vel var ratljóst. Við færðumst suður um tíu mílur þann dag.
Daginn eftir var stytt upp, og gátum við búist við að geta gert athuganir. Þokan var horfin og komið hreinviðri með tveggja stiga frosti.
Við fórum á land klukkan um ellefu. Jarðvegur var samur hér, og þar sem við höfðum áður komið; urðir, klettar og hraun. Fuglar vóru hinir sömu, en auk þeirra var hér mikið um sel og önnur sæspendýr. Selir og rostungar lágu uppi á ströndinni og á ísjökum, sem flutu nærri landi. Ekki stygðust þeir þó við kæmum nær, en gláptu á okkur stórum augum og forvitnislegum.
Við klifruðum upp á blágrýtisklett, skamt frá ströndinni og færðum þangað mælingaáhöldin. Við stóðum lengi og störðum í norður. Við vissum að sólin var komin upp; en niður við sjónhringinn var þokubakki, sem geislar hennar megnuðu ekki að rjúfa.
Leið svo af hádegi að við sáum ekki til sólar, og þótti okkur nú illa áhorfast. Var nú útséð um að við gætum ákveðið jarðlegu staðarins þennan daginn. En daginn eftir var jafndægurt. Það var seinasti dagurinn, sem unt var að gera athuganir, því eftir það gekk sólin undir með öllu og kom ekki upp aftur fyr en að liðnum sex mánuðum.
En við þessu mátti enginn gera, og urðum við að snúa aftur til skipsins við svo búið.
Morguninn eftir var ég á fótum klukkan fimm og fór þá upp á þilfar. Þar var þá staddur Númi skipstjóri.
„Hann er að létta til“, sagði Númi. „Tilraunir okkar hljóta að lánast í dag. Við förum í land eftir morgunverð“.
Ég fór niður til að hitta Ned Land og telja hann á að vera með í förinni. Honum óx gremja og geðvonzka með hverjum degi, upp á síðkastið, og gat ég með engu móti fengið hann til að fara. Mér þótti vænt um það í aðra röndina, því uppi í fjörunni var krökt af sel og hefði víst veitt full erfitt að halda Ned Land frá óþörfum blóðsúthellingum.
Við fórum á land að enduðum morgunverði. Sæfarinn hafði þokast einni mílu sunnar um nóttina og lá nú fram undan felli, fjögur til fimm hundruð metra háu. Tveir hásetar fóru með okkur og báru mælingaáhöldin, klukku, sjónauka og loftvog.
Við lentum kl. níu. Var þá komið heiðskírt veður og síðustu skýbólstrarnir að hverfa niður í suðri. Við lögðum af stað upp á fellið, því þar ætluðum við að gera mælingarnar. En gangan var erfið upp þangað, eintómar urðir og skriður, brúnhvassar hraunhellur og afsleppir hnullungar á víxl. Við vórum tvær klukkustundir að komast upp á fellið.
Loks komumst við upp á efstu hæðina. Var fagurt útsýni þaðan. Í suðurátt var að sjá yfir endalausar flatneskjur, sem nýfallin mjöllin lá yfir, hrein og bláhvít. Þegar langt dró suður hækkaði landið unz við tóku fjöll og firnindi, fannabungur og skriðjöklar, en kolsvartir tindar og drangar mændu upp úr jöklinum hér og hvar. Himininn var skafheiðríkur og sló rauðbleikri slíkju á blámann. Í norðri stóð sólin við sjónhring, eins og afarstór skygður eirskjöldur og snart neðri röndin hafsbrúnina. Nær landi var sjórinn dimmblár og spegilsléttur. Þar lá Sæfarinn eins og sofandi hvalur innan um drifhvíta hafísjaka. En yzt út við sjónhvörf sást samfeldur hafís, eins og tindóttur fjallgarður.
Hið fyrsta sem við gerðum var að mæla hæðina með loftvoginni.
Fjórðungi stundar fyrir hádegi var sólin hæst á lofti og varpaði daufum geislum út yfir þessa eyðimörku, sem enginn maður hafði áður fótum troðið.
Númi skipstjóri horfði stöðugt á sólina gegnum sjónaukann, meðan hún var að ganga undir aftur. Væri sólin hálf gengin undir klukkan tólf, var það merki þess, að við værum í heimskautinu. Ég hélt á klukkunni og beið þess með óþreyju að vísirinn þokaðist á töluna tólf.
„Hádegi!“ kallaði ég.
„Suðurheimskautið“, svaraði Númi og fékk mér sjónaukann. Var þá réttur helmingur sólkringlunnar siginn í sjó.
Ég lét sjónaukan síga og horfði hugfanginn út yfir víðáttuna, auða og kyrra, sem síðustu sólgeislarnir sendu skilnaðarkveðju um langan tíma.
En ég hafði fleira í huga en hrikafegurð náttúrunnar. Sólsetrið við hafísinn minti mig á þjóðirnar fyrir norðan ísinn, í heimlöndunum gömlu og þektu. Ég dáðist að starfsþreki þeirra, fróðleiksfýsn og óþreytandi elju. Ég sá þá í anda senda skip til fjarlægra, óþektra staða. Hvalveiðar teigðu skipstjórana norður og suður. Vindar og straumar höfðu, á þeim tímum, þegar siglingalistin var á lágu stigi, hrakið menn til heimskautalandanna og orðið þeim svo að aldurtila. Svo komu leiðangrar, vel búnir að vistum og fararefnum, í þeim tilgangi einum að finna ný lönd. Margar hugprúðar hetjur höfðu barist við óblíðu náttúrunnar í þessum köldu löndum og látið lífið fyrir það að komast nokkrum skrefum lengra, en áður hafði verið farið. Og baráttan færðist breiddarstig af breiddarstigi, alt af lengra og lengra, meðan áratugir og aldir liðu fram. Og nú var ég staddur hér, á því takmarki, sem allir höfðu eftir kept. Og hingað var ég kominn fyrir hyggindi, fróðleik og hugdirfð eins einasta manns.
Ég fékk hlýjan hug til þessa merkilega manns, og ég dáðist að honum. Mig langaði alt í einu til að segja honum frá því og tjá honum þakklæti mitt með handabandi. Ég snéri mér að Núma í því skyni. Hann var í þungum hugleiðingum, en rankaði við sér, þegar ég hreyfði mig. Hann leit á mig og var ánægjublandinn sigurhróssvipur í augnaráðinu. En það stóð ekki nema eitt augnablik. Á næstu sekúndu var kominn yfir hann sami kæruleysis og hörkusvipurinn, sem hann bar jafnan, svo kaldur og fráfælandi, að mér féllust orð og hendur.
Ég þagði eins og steinn, en Númi benti í norður. Sólin var að hverfa og skuggar að teygja sig út yfir landið niður undan okkur. Það var kominn tími til að halda af stað til skipsins og fórum við því að feta okkur niður fjallshlíðina.