XII.
Reading edition
Það var dimt og þögult á Sæfaranum fyrst í stað eftir þetta. Ferðinni var haldið áfram. En hvort var haldið í suður eða norður? Ég vissi það ekki og hirti ekki um að vita það. Mig hrylti við Núma skipstjóra. Hversu mikinn órétt sem hann hafði orðið að þola af öðrum mönnum, þá var rangt af honum að hefna sín á þennan hátt. Enda þótt ég ætti engan þátt í þessu verki, hafði ég þó verið sjónarvottur að því, sem gerðist og það var meir en nóg. Ljósi var brugðið upp aftur í skipinu, þegar liðið var nær hádegi. Reyndi ég þá að hressa mig upp og fór því inn í salinn. Þar var mannlaust. Ég leit á mælingaverkfærin. Sæfarinn stýrði í norður, með 7 sæmílna hraða á klukkustundinni, og var ýmist upp við yfirborð, eða í 10 metra dýpi. Við vórum komnir út úr Ermarsundi og fórum norður með Írlandsströndum. Mér kom ekki dúr á auga næstu nótt. Ég lagðist fyrir að vísu, en endurminningar nýafstaðinna viðburða vóru mér svo ríkar í hug, að ég varð andvaka. Sæfarinn hélt í hægðum sínum norður Atlantshafið næstu daga á eftir. Niðdimm þoka var yfir hve nær sem við litum til veðurs. Var nú ferðinni heitið til Norðurskautsins? Eða til Spitzbergen? Eða til Nowaja Semlja? Það var ekki á að ætla. Tíminn leið, en ég fylgdist ekki með í tímatalinu. Ég var hættur að hafa hugmynd um, hvort heldur var kvöld eða morgun, nótt eða dagur. Mér fanst eitthvað ógeðfelt við alt, sem í kringum mig var. Ég var hneptur undir yfirráð og hugsunarhátt óskyldrar, hálfsiðaðrar þjóðar, sem ég gat ekki haft samneyti við í hugsun eða athöfnum. Ég veit ekki með vissu hve langan tíma þessi ferð hefir tekið; líklega hálfan mánuð eða þrjár vikur. Það er ekki unt að segja hvar þetta hefði lent, hefði ekki komið fyrir óvæntur atburður, sem batt á þetta endahnútinn. Núma skipstjóra sá ég ekki allan þennan tíma; ekki heldur næstráðanda né neinn af skipverjum. Við vorum allajafnan í kafi. Þegar við komum upp úr til þess að skifta um loft, vóru hlerarnir opnaðir með vélaútbúnaði. Ekki vissi ég heldur hvar við vórum staddir, því leiðin var ekki mörkuð á kortið. Ned Land var orðinn svo úrvinda af leiðindum, að ekki var hægt að fá út úr honum orð. Jafnvel Konsæll fór ekki varhluta af ógleði þeirri, sem á okkur hvíldi. Við félagarnir vórum hættir að hafa afskifti hver af öðrum. Við sátum hver í sínu horni fullir örvæntingar. Þetta gat ekki gengið svona til lengdar. Eina nótt svaf ég fram á morgun,—ég veit ekki hvaða dag það var. Þegar ég vaknaði stóð Ned Land við hvílustokkinn og laut yfir mig.
„Nú verðum við að flýja“, hvíslaði hann.
„Hve nær?“ spurði ég og þaut upp í rúminu.
„Í nótt, þeir eru hættir að hafa gætur á okkur. Eruð þér tilbúinn?“.
„Já; hvar erum við staddir?“
„Það sér til lands,—ég tók eftir því áðan,—í svo sem tveggja mílna fjarlægð á bakborða“.
„Hvaða land ætli það sé?“
„Það veit ég ekki, enda skiftir það engu. Héðan verðum við að komast“.
„Já“.
„Það er úfinn sjór og talsverður stormur“, sagði Ned Land. „En þó slarkfært. Ég hefi laumað nokkrum vistum upp í bátinn og fáeinum vatnsflöskum“.
„Það er ágætt“.
Ned Land gekk út að svo mæltu. Þegar ég var kominn í fötin fór ég upp á þilfar. Skipið ruggaði svo ákaft, að ég átti fult í fangi með að standa. Hvassviðri var á og ljótt útlit í lofti. Ég grilti land gegnum þokubræluna. Nú urðum við að láta til skarar skríða; það mátti ekki dragast lengur. Mér var farið að leiðast og líða illa á Sæfaranum og vildi öllu til hætta, að komast á burt sem fyrst. Ég fór aftur niður í salinn. Mig hálf-langaði að sjá Núma skipstjóra einu sinni enn og kveið þó fyrir því í aðra röndina. Hvað átti ég að segja við hann? Gat ég dulið skap mitt fyrir honum? Nei, það var hyggilegra að finna hann ekki,—reyna að gleyma honum. Mér fanst dagurinn—að líkindum sá síðasti, sem ég átti eftir að lifa á Sæfaranum,—vera hræðilega lengi að líða. Ég var einn allan daginn, því félagar mínir vöruðust að koma inn til mín, til þess að vekja ekki grun um áform okkar. Miðdegisverð borðaði ég ekki fyr en kl. 6 og var þá svo lystarlaus, að ég varð að neyða ofan í mig nokkrum munnbitum, til þess að halda kröftum. Klukkan hálf sjö kom Ned Land inn til mín.
„Við sjáumst ekki aftur fyrir flóttann“, sagði hann. „Tunglið verður ekki komið upp kl. 10; við verðum að láta myrkrið skýla okkur. Þá skuluð þér koma upp í bátinn. Við bíðum yðar þar“.
Ned Land fór út, en ég gekk inn í salinn, til þess að athuga mælingaáhöldin. Við vórum á fimmtíu metra dýpi og fórum með fullum hraða í norður-landnorður. Ég rendi augunum yfir salinn í síðasta sinn og virti fyrir mér öll listaverkin, sem hann hafði að geyma og hin fágætu náttúruundur og aðrar vísindagersemar, sem ekki lá annað fyrir en týnast í hafinu ásamt manni þeim, sem þeim hafði safnað. Hryggur í huga snéri ég til dyra og fór inn í herbergið mitt. Ég hafði fataskifti og fór í skjólgóðan klæðnað, tók saman öll ritverk mín og stakk þeim inn á mig. Ég hafði ákafan hjartslátt og fann að ég mundi ekki geta dulið geðshræringar mínar fyrir Núma skipstjóra, ef ég hitti hann. Svo lagðist ég fyrir í rúmið og reyndi að sefa skap mitt. Tókst það vonum framar, en hugur minn hvarflaði frá einu til annars og vakti upp endurminningar frá veru minni á skipinu, um ýmsa atburði illa og góða, sem þar höfðu komið fyrir. Mér fór smátt og smátt að finnast meira um Núma skipstjóra. Hann var þó indverskur þjóðhöfðingi, hvað sem öðru leið. Enda þótt það í sjálfu sér væri engin afsökun, gat það þó meðfram verið orsök þess, að hann beitti valdi sínu svona, til að koma fram miskunnarlausum hefndum. Hin djúpsæja og víðtæka speki hans, þrek og hugrekki, hófu hann í áliti mínu hátt upp yfir aðra almenna indverjahöfðingja, yfir þjóð hans alla, jafnvel yfir alt mannkynið. Hann var yfirmenskur afburðasnillingur.
Klukkan sló hálf tíu.—Ég fann til þyngsla í höfðinu og tók um það báðum höndum, lét aftur augun og reyndi að beina hugsuninni að einhverju lítilvægu efni. Nú var að eins hálftími eftir—hálftími, sem ætlaði að firra mig vitinu. Á þessu augnabliki bárust forte-píanóhljómar að eyrum mér innan úr salnum. Það vóru stórfeldir samhljómar innan um hrærigraut af lónum, sem skáru hver annan. Svo jafnaðist lagið smátt og smátt og leið eins og hægur draumur. Það var eins og í því lægi sárasta sorg, sem í brjósti getur búið, eins og hyldýpi harma og hugarangurs, og dó svo út hægt og blíðlega í viðkvæmu, sármjúku samræmi. Svo kom hressandi lag, stuttur, magnþrunginn hergönguslagur. Það var sem hnífi væri stungið í brjóstið á mér, Númi skipstjóri var í salnum! En gegnum salinn varð ég að fara, til þess að komast út. Ég hlaut að hitta hann og mátti búast við að hann tæki mig tali. Útlit mitt og jafnvel eitt einasta orð af vörum mínum gat komið upp um mig, og þá var öll von úti. Klukkan sló tíu. Ég varð að fara. Ég opnaði hurðina með mestu hægð og virtist þó verða af því hræðilegur hávaði. Ég læddist fram eftir ganginum og staðnæmdist í öðru hvoru spori til að jafna mig. Loks komst ég að saldyrunum og opnaði þar. Þar var myrkur inni. Skipstjóraklefinn var andspænis og hurðin hnigin á gátt. Lagði ljósskímu um gættina inn í salinn. Ég læddist á tánum gegnum salinn og gægðist inn í klefa skipstjórans. Gegnt dyrunum var stór mynd, að líkindum af konu hans og barni. Sjálfur sat hann við skrifborðið, niðursokkinn í störf sín. Dyrnar að bókaklefanum stóðu opnar. Þar fór ég í gegn og út í ganginn í áttina til bátsins. Ég skundaði upp stigann og tróð mér upp um opið í þilfarinu til félaga minna.
„Af stað! Undir eins!“ sagði Ned Land.
Hlerinn var lagður yfir þilfarsopið og festur vandlega með skrúfum. Hleraopið í botninum á bátnum sömuleiðis. Ned Land fór að losa um skrúfurnar, sem tengdu bátinn við skipið. Þá heyrðist alt í einu þrusk mikið neðan úr skipinu, köll og mannamál. Vóru skipverjar orðnir áskynja um flótta okkar? Ned Land fékk mér hníf í hendina. Hann hætti að skrúfa um stund. Ég varð þess brátt vísari, að þessi gauragangur stóð ekki í sambandi við flóttatilraun okkar. Réð ég það af orði einu, sem nefnt var hvað eftir annað. Það var ekki úr óþektu máli, því ég skildi það vel. Röstin! var sagt. Mér er sem ég heyri það enn í dag. Röst—einmitt á þessu augnabliki, þegar við vórum að losa bálhornið okkar frá Sæfaranum. Við vórum komnir inn í röst, og gat það naumast annarsstaðar verið en við Lófótinn. Fyrir vangá—eða jafnvel af ásettu ráði—var Sæfarinn kominn inn í röstina. Hann fór að snúast í harðri hringiðu og færðist smátt og smátt inn að henni miðri. Báturinn fylgdist með—fyrst í stað. Skipið sveiflaðist með fleygiferð og við stóðum, á öndinni af ótta.
Boðaföllin beljuðu með þrumandi hávaða.
„Við verðum að vera þar sem við erum komnir“, sagði Ned Land og fór að skrúfa á aftur rærnar, sem hann var búinn að losa. En í því kvað við hár brestur. Síðustu skrúfurnar hrukku sundur og báturinn þeyttist eins og steinn úr slöngu út í hringiðuna. Ég steyptist á höfuðið niður í bátinn og féll í öngvit.
Ég veit ekki hverju fram fór eftir þetta, hvernig báturinn komst út úr röstinni og hvernig við náðum landi. En þegar ég raknaði við aftur, lá ég í rúmi í kofa fiskimanns eins við Lófótinn. Ned Land og Konsæll stóðu við hvílustokkinn. Eftir lítinn tíma var ég kominn til Parísar.