V.
Reading edition
Sæfarinn hélt áfram förinni. Hann rann um veglausan sægeiminn eins og kólfi væri skotið, dag eftir dag. Ég sat lengstum í salnum við lestur og rannsóknir. Nóg var úr að velja í bókasafni skipsins. En mest var þó vert um hina miklu bók náttúrunnar, sem Númi skipstjóri fletti upp fyrir mér á hverjum degi, á þann hátt að renna hlerunum frá gluggunum. Sjórinn sjálfur og sædýraríkið var óþrotlegt rannsóknarefni fyrir mig. Ég fann það brátt, að rit mitt „Um leyndardóma undirdjúpanna“ þurfti mikilla umbóta við, því margt reyndist mér þar rangt eða ónákvæmt. Svo hafði ég mörgu við að bæta, svo næsta útgáfa hlaut að verða miklum mun stærri.
Leiðin sem við fórum var mörkuð á kortið daglega, eins og Númi hafði sagt. Ég fylgdi stefnunni með athygli, vegna rannsókna minna, því á þeim hafði ég allan hugann og gætti naumast dagatals eða tímalengdar.
Númi stýrði gegnum Persaflóann og þaðan inn í Rauðahafið. Hann hélt stöðugt í norðurátt og þótti mér það furðu gegna, þegar svona var langt komið.
Lesseps var að grafa Suezskurðinn mikla um þetta leyti, en hann var ekki kominn nærri alla leið gegnum eiðið. Hvað ætlaði skipstjórinn fyrir sér? Ég var stöðugt að hugsa um það, því mér var farið að þykja nóg um.
Dag einn kom Númi inn í salinn og spurði ég hann þá þegar, hvert hann ætlaði að fara.
„Hvers vegna spyrjið þér svona! Ég ætla auðvitað yfir í Miðjarðarhafið“, svaraði hann snúðugt. „Ég býzt við að komast þangað á morgun“.
„Á morgun?“
„Já, prófessor góður. Eruð þér hissa á því?“
„Það er nú komið upp úr á mér að vísu, að falla í stafi, þó eitthvað furðulegt beri við á skipi þessu. En—þá megið þér herða skriðinn freklega, ef þér ætlið að sigla suður fyrir Afríku og verða kominn inn í Miðjarðarhaf á morgun“.
„Suður fyrir Afríku, segið þér hr. prófessor!—Hvaða erindi eigum við þangað?“
„Ég hélt að Sæfarinn væri ekki vel fallinn til að ferðast landveg. Og komist hann ekki yfir eiðið . . . . ?“
„Þá fer hann undir það“.
„Er það fært?“
„Já, ég hefi fundið göng mikil neðansjávar, sem liggja gegnum eiðið, djúpt í jörðu. Þau kalla ég Arabisku göngin“.
„Hvernig stóð á því að þér funduð þau?“
„Það skal ég segja yður“, svaraði skipstjórinn. „Ég hafði veitt því eftirtekt að í Miðjarðarhafinu og Rauðahafinu vóru nokkrar fiskitegundir af sama tagi. Kom mér þá til hugar að samband mundi vera milli hafanna. Nú er sjávarhæðin meiri í Rauðahafinu og hlaut því að falla straumur úr því yfir í Miðjarðarhafið. Ég gerði tilraun til að ganga úr skugga um þetta á þann hátt, að ég veiddi nokkra fiska nálægt Suezeiðinu, festi eirhringi við sporðinn á þeim og lét þá svo lausa. Þegar ég kom upp undir Sýrlandsstrendur nokkrum mánuðum seinna, var ég svo heppinn að rekast á nokkra af þessum fiskum. Ég átti nú ekki annað eftir en finna opið á göngunum á botni Rauðahafsins, og það hepnaðist mér um síðir. Ég hætti mér inn í göngin og komst í gegnum þau slysalaust. Síðan hefi ég farið um þau mörgum sinnum“.
Mér þótti þessi frásaga næsta merkileg og flýtti mér að segja félögum mínum af þessu. Konsæll komst á loft af ánægju, en Ned Land ypti öxlum.
„Neðansjávargöng“, át hann eftir; „slíkt og þvílíkt hefi ég aldrei heyrt talað um!“
„Hafið þér heyrt talað um Sæfarann?“ spurði Konsæll. „Til er hann þó, og hitt er engu ótrúlegra, að þessi göng séu til“.
„Já, við verðum víst að vona að svo sé“, sagði Ned, „því fljótar komumst við inn í Miðjarðarhafið“.
Um hádegisbil daginn eftir fór Sæfarinn upp að yfirborðinu. Við félagarnir fórum þegar upp á þilfar. Land var að sjá langt til austurs, en ógreinilega þó, því þokuslæðingur lá yfir.
Við vórum að spjalla saman nokkra stund. En alt í einu þagnaði Ned Land og benti út yfir hafið.
„Lítið þið á“, sagði hann.
„Ég sé ekkert“, svaraði ég. „Ég hefi ekki augun yðar“.
„Sjáið þér ekkert á hreifingu framundan á stjórnborða?“
Ég neytti sjónarinnar af fremsta megni og kom loks auga á stóra skepnu, með langan og dökkleitan skrokk.
„Koma fyrir hvalir í Rauðahafinu?“ spurði Konsæll.
„Það ber við að þeir flækjast þangað“, svaraði ég.
Ned Land hafði ekki augun af dýrinu. „Þetta er ekki hvalur“, sagði hann. „Ég þekki hvalina og þeir þekkja mig“.
Sæfarinn nálgaðist skepnuna óðfluga.
„Hvaða herjans dýr er þetta!“ hrópaði Ned Land. „Það hefir ekki klofinn sporð, eins og hvalur, og önnur sundfæri þess líkjast klunnalegum útlimum á landdýri“.
„Það er sækýr, ef húsbóndanum þóknast“, sagði Konsæll.
„Nei, það er ekki sækýr“, sagði ég. „Það er eins konar hvalur af höfrungakyni, sem er orðinn mjög fágætur. Hann er kallaður dýkingur.“
Ned Land hafði ekki augun af hvalnum. Honum stóð alveg á sama um nafnið. En svona hval hafði hann ekki séð áður, og brann nú í skinninu af vígahug.
„Svona hval hefi ég aldrei drepið“, sagði hann.
Í þessum svifum kom Númi skipstjóri upp á þiljur og heyrði hvað Ned Land sagði.
„Munduð þér vera fáanlegur til að taka upp fyrri starfa yðar, rétt í þetta sinn?“ spurði Númi.
Ned Land þreif ósjálfrátt báðum höndum til skutulsins.
„En ég vil ráða yður til að missa ekki marks. Það getur riðið yður sjálfum á miklu“, bætti Númi við.
Ned Land setti upp kæruleysis- og fyrirlitningarsvip, en svaraði engu.
„Eru þeir illir viðureignar, dýkingarnir?“ spurði ég.
„Já, í meira lagi“, svaraði Númi. „Það eru dæmi þess að þeir hafa ráðist á hvalveiðamenn og hvolft bátunum undir þeim. Ég er ekki hræddur um Ned Land, þó ég segði svona. Ég sagði það af því ég veit, að honum þykir gott kjöt, en kjötið af dýkingnum er mesta sælgæti“.
Númi kallaði niður í skipið og komu þá 7 menn upp að vörmu spori. Þeir losuðu bátinn og settu hann á flot. Sex menn settust undir árar en einn fór að stýrinu. Við félagarnir þrír komum okkur fyrir í skutnum. Númi varð eftir í Sæfaranum.
Skipverjar ýttu frá og lögðust á árarnar. Sóttist róðurinn fljótt og vórum við komnir í námunda við hvalinn innan lítillar stundar. Þegar fáir faðmar vóru eftir, hægðum við ferðina. Ned Land fór fram í stafninn og stóð þar með reiddan skutulinn. Skutultaugin var ekki föst í bátnum, eins og vanalegast er, heldur var endinn á henni festur við dufl, sem flaut á yfirborðinu, en línan var í sjó. Mátti sjá af því hvað skutlinum leið.
Þessi dýkingur var óvanalega stórvaxinn, ýkjulaust 10 álnir á lengd. Hann lá í sjóskorpunni og hreyfði sig ekki, heldur en hann væri sofandi. Mátti því komast mjög nærri honum.
Báturinn nálgaðist smátt og smátt, þangað til ekki vóru eftir nema 3 faðmar; þá vóru árarnar lagðar upp.
Ned Land stóð í stafni með reiddan skutulinn. Alt í einu heyrðist hvinur mikill og hvarf dýkingurinn í sömu svipan. Skutullinn hafði auðsjáanlega geigað frá beinni stefnu.
„Fari hann í sjóðbullandi!“ öskraði Ned Land í bræði sinni. „Hann slapp undan skutlinum“.
„Ekki alveg“, sagði ég. „Hann hefir fengið skeinu talsverða, því sjórinn er blóðlitaður“.
„Skutulinn!“ hrópaði Ned Land.
Hásetarnir þrifu árarnar og reru þangað sem duflið flaut. Þegar skutullinn var kominn upp í bátinn var farið að elta dýkinginn.
Hann var ekki særður til muna, því hann synti hratt. Hásetarnir lögðust á árarnar af öllum mætti. Við komumst í skotmál hvað eftir annað, og Ned Land var að því kominn að kasta skutlinum, en þá fór dýkingurinn jafnan í kaf, svo að við mistum hans. Þessi eltingaleikur stóð yfir í fulla klukkustund. Ég var farinn að halda að við yrðum að hætta við svo búið, en þá varð sú breyting á, að dýkingurinn snéri við alt í einu og kom rakleitt á móti okkur.
Ned Land var viðbúinn að taka á móti honum.
„Varið ykkur piltar!“ sagði hann.
Stýrimaðurinn sagði nokkur orð á sínu máli, sem að líkindum þýddu eitthvað svipað því sem Ned Land hafði sagt.
Það fór eins og við höfðum búist við, að dýkingurinn réði þegar á bátinn og velti honum á annað borðið svo sjór féll inn. Var það snarræði stýrimannsins að þakka, að bátnum hvolfdi ekki. Hvalurinn beit því næst í borðstokkinn og vó bátinn á loft með kjaftinum, hvað eftir annað. Ned Land hélt sér með annari hendi, en í hinni hafði hann skutulinn og lét hann ganga jafnt og þétt í skrokkinn á hvalnum. Við kútveltumst hver um annan þveran í bátnum og hefðum eflaust bráðlega hlotið meiðsl eða bana, ef Ned Land hefði ekki tekist að leggja dýkinginn í hjartað. Hann linaðist í átökunum, tennurnar urguðu við járnið; svo misti hann taksins og sökk.
Duflinu skaut upp að vörmu spori og hvalnum rétt á eftir. Hann var þá dauður. Við festum taug við sporðinn á honum, og hinum endanum við bátinn. Svo rerum við í áttina til Sæfarans með hvalinn í eftirdragi.
Seinna um daginn átum við kjöt af honum að miðdagsverði. Var það bragðgott og engu líkara en nautakjöti.
Daginn eftir héldum við áfram norður á bóginn, í hægðum okkar. Um náttmálaskeið var Sæfarinn við yfirborðið og fór ég þá upp á þilfar. Mig var farið að langa til að sjá sægöngin sem skipstjórinn hafði sagt mér af, og fór nú að athuga hvar við værum staddir. Þoka var yfir og myrkt af nóttu. Ég sá grylla í rauðleitt ljós í nokkurri fjarlægð.
„Fljótandi viti“, var sagt við hliðina á mér.
Það var Númi skipstjóri sem talaði.
„Þetta er vitinn í Suez“, sagði hann. „Við erum þá og þegar komnir að göngunum“.
„Er ekki vandfarið gegnum göngin?“ spurði ég.
„Ójú, ég er vanur að vera í stýrisklefanum sjálfur og segja fyrir um stefnuna. En nú verðum við að fara niður“.
Þegar við vórum komnir niður, var öllum hlerum lokað og búið um vandlega. Sjór var tekinn inn í einn klefann og sökk þá Sæfarinn niður í 6 faðma dýpi.
Ég ætlaði að hverfa til herbergis míns, en Númi skipstjóri kallaði á mig.
„Langar yður ekki til að koma með mér inn í stýrisklefann, prófessor góður?“ spurði hann.
„Jú, ég tek mér til þakka“.
Stýrisklefinn var 3 álnir á hvern veg og lítið eitt hærri. Stýrishjólið var í honum miðjum. Glerrúður kúptar og sterkar vóru á hverri hlið og mátti sjá út um þær í allar áttir frá skipinu.
Ekkert ljós var þar inni. En skímu lagði inn um gluggana frá ljóskerunum utan á skipinu. Maður stóð við stýrishjólið og hélt báðum höndum um húnana. Hann var mikill vexti og þreklegur.
Rafmagnsþræðir láu úr klefanum niður í vélrýmið og var sá umbúnaður við endana, að Númi gat ráðið stefnu skipsins og hraða með mestu nákvæmni. Hann hægði þegar ferðina að miklum mun.
Ég stóð við gluggana á bakborða, og virti fyrir mér háa hamra, sem við fórum með fram. Númi hafði ekki augun af áttavitanum. Hann sýndi stýrimanni með bendingum hvernig hann ætti að stýra.
Þegar klukkan var 15 mínútur gengin í 11 tók skipstjórinn sjálfur stýrið. Sáum við þá eins og hellismunna heljarstóran fram undan okkur. Inn í hann stefndi Sæfarinn. Úti fyrir heyrðist óvanalegur hávaði og straumur. Það var sjórinn úr Rauðahafinu, sem hallans vegna braust með heljar afli gegnum göngin, út í Miðjarðarhafið. Sæfarinn barst með straumnum eins og kólfi væri skotið og hafði þó vélin aftur á af öllum mætti.
Ég var með öndina í hálsinum af undrun og aðdáun. Göngin vóru svo þröng, að skipið straukst nærri með hliðveggjunum. Var sem eldrákir með öllum litum regnbogans flýgju fyrir gluggana, vegna birtunnar sem lagði á bergið frá skipinu.
Klukkan 5 mínútur yfir hálf 11 slepti Númi stýrishjólinu og snéri sér að mér.
„Miðjarðarhafið!“ sagði hann.
Ferðin undir eyðið hafði ekki staðið yfir nema 20 mínútur.
Morguninn eftir hitti ég Ned Land og Konsæl á þilfarinu. Þeir höfðu sofið báðir á leiðinni gegnum sægöngin og ekki haft hugmynd um hvað fram fór.
„Þá erum við nú komnir í Miðjarðarhafið“, sagði ég.
„Ekki held ég það sé nú orðið enn“, sagði Ned Land.
„Svo er það ei að síður“, sagði ég. „Ströndin sem við sjáum móta fyrir í suðri er Egiptaland“.
„Já, annað hvort það, eða eitthvað annað“, svaraði Ned.
„Úr því húsbóndinn segir að svo sé, þá verðið þér að trúa húsbóndanum“, sagði Konsæll.
„Þér, Ned Land, sem hafið svo hvassa sjón, hljótið að sjá hafnarvirkin í Port Said“, sagði ég.
Ned Land horfði þangað stundarkorn. „Jæja, það er fyrirtak“, sagði hann. „Við erum þá í Miðjarðarhafinu í raun og veru. Heyrið þér prófessor, við getum þá farið að ráða ráðum okkar“.
Ég vissi vel hvað Ned Land átti við, en ég lét sem ég skildi hann ekki.
„Er ekki einmitt núna tækifæri til að strjúka frá Sæfaranum?“ hélt hann áfram.
„Það er nú hægar ort en gert“, sagði ég.
Ned Land var bráðlátur eftir frelsinu, og orðinn heldur skapstyggur upp á síðkastið.
„Það getur nú verið“, sagði hann. „En einhver endir verður að vera á þessu“.
Ég vissi það vel, að Ned Land átti óþolandi æfi á skipinu. Hann var vanur sjálfræði og svaðilförum á hvalaveiðum. Það lamaði þrótt hans og heilsu, að vera einangraður svona í iðjuleysi. En ég reyndi að draga flóttann á langinn, því ég átti margt eftir óséð og órannsakað í hafinu.
„Alt hefir einhvern enda“, sagði ég. „Þegar við komum í námunda við Frakkland, England eða Norður-Ameríku, getur vel farið svo að betra færi bjóðist, þegar minst varir“.
„Þegar við komum þangað eða þangað“ sagði Ned og ygldi brúnina. „En nú erum við í Miðjarðarhafinu.—Er það ekki eins gott og allir hugsanlegir staðir aðrir?“
Ned hafði rétt að mæla, svo að ekki varð á móti borið. Ég vissi ekki hverju ég átti að svara.
„Hvað heldur Konsæll um þetta?“ spurði Ned Land.
Konsæll sagði það sannast, að hann hefði enga hugmynd gert sér um þetta. Hann átti enga vini eða ættingja, sem þráðu hann. Hann var allur þar sem ég var. Hans skilningur á málinu var, í fám orðum sagt, „eins og húsbóndanum þóknaðist“.
Ég var neyddur til að fastákvarða eitthvað.
„Ég er hræddur um, að við getum ekki bygt neitt á Núma skipstjóra“, sagði ég. „Okkur er kunnugt um leyndarmál hans og þess vegna lætur hann okkur ekki lausa. Við verðum því að nota fyrsta færi sem gefst til að strjúka frá Sæfaranum“.
„Það er einmitt það sem ég hefi í hyggju“, svaraði Ned.
„En fyrsta tilraunin verður að lánast“, sagði ég. „Lánist hún ekki, verður okkar gætt svo vandlega, að færið gefst aldrei aftur. Við verðum að fara varlega“.
„Rétt er það“, sagði Ned Land. „En gefist gott tækifæri,—ætlið þér þá að vera tilbúinn að nota það?“
„Já“.
Ned Land hafði hugsað sér, að annaðhvort yrðum við að synda í land, ef Sæfarinn flyti nálægt landi að nóttu til, eða við tækjum bátinn og rerum til lands á honum. En þetta hvorttveggja var ógerlegt, eins og nú stóð á. Sæfarinn hélt sig langt frá löndum og var lengstum í kafi; rétt eins og skipstjórinn hefði eitthvert hugboð um ráðagerð okkar.
Einn dag sem oftar var ég sokkinn niður í rannsóknir mínar, inni í salnum. Við vórum þá komnir suður fyrir Krít. Kom þá yfir mig svo mikill hiti, að ég varð að losa um föt mín. Ég skildi ekki í því hvaðan sá hiti stafaði. Við vórum staddir á 10 faðma dýpi, en þar er hitinn litlum breytingum háður. Mér datt í hug að einhver veiki væri að leggjast á mig. En hélt þó áfram við iðju mína; en hitinn óx og varð með öllu óþolandi. Ég ætlaði að fara burt úr salnum, en í því kom Númi skipstjóri inn, og gekk að hitamælinum.
„Fjörutíu og tvö stig“, sagði hann.
„Já, hvaðan sem þessi hiti stafar, þá er hann óþolandi“, sagði ég.
„Hann verður ekki meiri en við viljum vera láta“, sagði Númi.
„Þá finst mér að þér ættuð að draga úr honum“, sagði ég.
„Það get ég ekki“, sagði skipstjórinn. „En ég get siglt burt frá honum“.
„Kemur hann utan að?“ spurði ég.
„Já, skipið flýtur í sjóðheitum sjó“.
Í sömu svipan var gluggahlerunum skotið frá. Sá ég þá að sjórinn var hvítur umhverfis Sæfarann. Alt var ein gufuólga eins og í sjóðandi hver.
Ég studdi hendinni á rúðuna, en varð að kippa henni að mér hið bráðasta, vegna hitans.
Númi sagði að við værum í nánd við eldfjall neðansjávar, sem væri að gjósa.
Ég leit út um gluggann. Sæfarinn lá kyr, því engin leið var að komast lengra, vegna hitans. Sjórinn breytti lit og roðnaði smátt og smátt. Stafaði sá litur frá síndri og ösku sem þyrlaðist í sjónum eins og ryk í lofti. Brennisteinsfýlu megna lagði um skipið, en í nokkurri fjarlægð brutust fram lyfrauðar logatungur, svo bjartar, að rafljós Sæfarans varð að engu fyrir þeim.
Nú var ekki viðlit að haldast við lengur vegna hitans.
Númi skipaði að snúa við. Stundarfjórðungi síðar drógum við að okkur svalt og hreint loft á yfirborði sjávar.