III.
Reading edition
Ég fór að una æfinni betur á Sæfaranum þegar fram í sókti. Ég hafði fyrir reglu að fara upp á þilfar á hverjum morgni, meðan verið var að skifta um loft í skipinu. Þar hitti ég vanalega stýrimanninn, sem fékst þar við mælingar og athuganir. Ég reyndi oftsinnis að hafa tal af honum, en það kom fyrir ekki. Hann skildi ekki eða lézt ekki skilja eitt orð af því sem ég sagði. Hann mælti nokkur orð á máli, sem ég skildi ekki, í hvert sinn sem hann ætlaði ofan í skipið aftur.
Ég skildi það sem skipun um að fara niður aftur og hagaði mér samkvæmt því.
Á daginn sat ég lengstum við bóklestur í salnum eða bókasafnsklefanum.
Ég varð lítið var við Núma skipstjóra. Ég hefi ekki í fyrstu hugmynd um, hve fálátur hann var og einförull, og var því farinn að halda um tíma að hann væri farinn af skipinu.
Stöku sinnum hitti ég hann uppi á þilfarinu á morgnana. En oftast var hann þá svo hugsi og fámálugur, að engu tauti var við hann komandi. Þó bar við, að hann var glaðari í bragði. Það var helzt, þegar hann hafði sérstakan áhuga á einhverju, sem hann var að gera, að hann kom og tók mig tali. En þá var hann líka öllum mönnum alúðlegri og liprari. Listir og vísindi vildi hann helzt af öllu tala um.
Hann elskaði hafið. Ég varð þess var einn dag. Við stóðum saman á þiljum uppi og nutum veðurblíðunnar. Loftið var hlýtt og himininn heiður. Öldur úthafsins liðu eftir sæfletinum, eins og spegilgljáandi fjallabungur. Númi benti út yfir öldurnar og gat ekki varist þess, að dázt að hinni stórfenglegu og óháðu tign úthafsins. Hann lauk máli sínu með þessum orðum:
„Frá öldufalli yfirborðsins og niður í myrkustu undirdjúp er hafið á eilífri hreyfingu, þrungið lífi og lifandi verum. Það vekur undrun og ótta mannanna. Þeir hræðast hyldýpið, en ég hræðist það ekki. Þegar ég er á Sæfaranum er mér sama hvar ég hvíli í faðmi hafsins“.
Ned Land og Konsæll komu oft til mín inn í aðalsalinn og hafði ég gaman af heimsóknum þeirra, því þeir vóru sífelt að ybbast og kýta—oftast í góðu þó. Ned Land hafði alt á hornum sér. Hann kunni ekki við að vera innibyrgður, kvartaði undan mataræðinu, hvað það væri tilbreytingarlaust og var sárreiður við Núma skipstjóra, sem lét eins og hann heyrði ekki, þegar sem hæst gekk hranaskapur og umkvartanir Ned Lands.
Konsæll var þvert á móti, ánægður með alt. Hann hafði lag á því að haga sér eftir kringumstæðunum, og mín vegna var hann í sjöunda himni yfir því, hvað mér gæfist gott færi á að rannsaka hafið og sædýralífið. Gluggarnir á skipshliðinni vóru opnir tvo tíma á dag að jafnaði. Þá tíma notuðum við Konsæll kostgæfilega, til að athuga sjóinn. Þegar ég kom auga á einhvern fisk, sem við höfðum ekki séð áður, flýtti Konsæll sér að ákveða hvaða flokki eða tegund hann ætti að teljast með. Konsæll hafði vel vit á því og var heldur en ekki upp með sér af þeirri fræði. Hann sagði oft við Ned Land, að hann væri ekki annað en óseðjandi magi, sem skifti fiskunum í tvo flokka, eftir því hvort þeir væru ætir eða óætir.
En Ned Land þekti fiskana á annan hátt: af eigin reynslu og eftirtekt og hann fór ófögrum orðum um „safnhúsavizku“ Konsæls, sem hann svo kallaði.
Við héldum stöðugt í suðurátt, fórum yfir miðjarðarlínuna og komum loks á siglingaleiðir verzlunarskipanna.
Dag einn sat ég í aðalsalnum og var að lesa í bók. Ned Land og Konsæll sátu við gluggana og horfðu út í sjóinn. Alt í einu spratt Konsæll upp og gekk þangað sem ég var.
„Vill ekki húsbóndinn koma út að glugganum sem snöggvast“, sagði hann og virtist vera mikið niðri fyrir.
Ég brá við og leit út um gluggann. Sá ég þá eitthvert svart ferlíki liggja grafkyrt í sjónum skamt frá skipinu. Ég neytti augnanna því betur, sem nær dró.
„Skipsflak!“ kallaði ég upp yfir mig.
„Já“, sagði Ned Land, „það er sokkið og möstrin eru brotin“. Það var sem hann sagði. Slitrin úr reiðanum héngu á köðlum út af borðunum. Skipið hallaðist á bakborða og var fult af sjó. Það hlaut að vera nýsokkið, því mastrastúfarnir, sem stóðu upp úr þilfarinu, vóru hreinir. Í dyrum eins þilfarsklefans sáum við liggja lík ungrar konu og hafði hún kornbarn í fanginu. Lengra hafði hún ekki komist þegar slysið vildi til. Á þilfarinu láu 4 hásetar dauðir og flæktir í reiðaköðlunum. Var hræðileg sjón að sjá, hvernig þeir vóru útlits. Þeir höfðu barist við að losa sig úr köðlunum fram í andarslitrin.
Við stóðum eins og steini lostnir og horfðum á þessa hroðasjón, meðan Sæfarinn rendi framhjá. Og áður en við mistum sjónar á flakinu, sáum við hákarlana steðja að úr öllum áttum, með glóandi glirnum og gapandi kjöftum.
Þetta var í fyrsta sinn, sem mér varð óhægt innanbrjósts, síðan ég kom á Sæfarann.
Ég fór að leggja þungan hug á Núma skipstjóra og gat þó varla gert sjálfum mér grein fyrir, af hverju það stafaði. Mér hafði hingað til staðið á sama um fálæti hans og fáskifti, ég hafði hugsað mest um rannsóknir mínar og bóklestur. En nú fanst mér alt í einu, sem eitthvað væri óhreint við þetta háttalag skipstjórans og skipverja, eitthvað undarlegt og tortryggilegt.
Það leið heldur ekki á löngu, að þessi skoðun mín fékk nýja átyllu.
Eitt sinn snemma dags kom ég upp á þilfarið. Stóð stýrimaðurinn þar og benti á vissan stað í sjónhringnum, en Númi skipstjóri starði þangað gegnum sjónauka sinn. Svo lét hann sjónaukann síga og fór að ganga um gólf á þilfarinu, án þess að skifta sér af mér. Stýrimaður var allur á hjólum, eins og honum væri mjög mikið niðri fyrir. Hann ávarpaði skipstjórann öðru hvoru á máli, sem ég skildi ekki og Númi svaraði á sama máli. Rétt á eftir tóku þeir sjónaukana aftur og beindu þeim á þenna sama stað. Ég neytti augnanna af fremsta megni, en sá ekkert athugavert. Hljóp ég því ofan í salinn og sótti þangað sjónauka. Þegar ég kom upp aftur setti ég sjónaukann fyrir augun, en í sama vetfangi var hann hrifsaður af mér.
Númi skipstjóri stóð frammi fyrir mér. Hann var rólegur á svipinn, eins og hann var vanur, en hann var meira en rólegur, andlit hans var kalt og stirðnað að sjá, eins og lífvana steingerfingur. Hann kreisti aftur munninn og beit á jaxlana, en augun vóru sem í eldsglóð sæi. Ég fann þó fljótt að hann ætlaði ekki að láta reiði sína bitna á mér. Hann gat ekki haft augun af deplinum, sem hann horfði á áður og bægði mér frá að athuga.
Loks var eins og hann áttaði sig og fengi vald yfir sjálfum sér. Hann sagði nokkur orð við stýrimanninn, sem hvarf þegar ofan í skipið, og snéri sér svo að mér.
„Ég verð að byrgja yður inni“, sagði hann.
„Þér hafið auðvitað vald til þess“, sagði ég. „En má ég spyrja yður einnar spurningar?“
„Nei“.
Númi fór aftur að horfa út yfir hafið. Ég fann að vélin komst á hreifingu og skrúfan tók að knýja skipið áfram með vaxandi hraða.
Ég fór niður til þeirra Ned Lands og Konsæls. Þar vóru fyrir fjórir af hásetum skipsins og fóru þeir með okkur inn í sama herbergið, sem við vórum í fyrsta morguninn, sem við vórum á skipinu. Þeir spurðu mig spjörunum úr, en ég hafði ekki annað að segja en það, sem fyrir mig bar uppi á þilfarinu. Ned Land var í versta skapi.
Að vörmu spori kom þjónn inn og bar mat á borð fyrir okkur. Sefaðist þá vonzkan í Ned Land, um stund. Konsæll hvatti mig til að borða mig vel saddan, „því það er ekki víst að við fáum mat aftur í bráðina“, sagði hann, „það er eins víst að þeir gleymi okkur alveg“.
Ned Land tók þriflega til matar síns, eins og hans var vandi, og ég lét ekki mitt eftir liggja.
Að lokinni máltíð lagðist Ned Land endilangur á gólfið og steinsofnaði. Rétt á eftir lagðist Konsæll fyrir líka og sofnaði. Þótti mér það slæmt, því mér fanst full þörf á að vaka og hafa gát á öllu.
En nú brá undarlega við. Ég varð altekinn af máttleysi og þreytu og varð að leggjast á gólfábreiðuna líka. Hugsunin sljóvgaðist smátt og smátt, og einhver undarleg þyngsli sigu yfir höfuðið á mér, svo ég gat naumast haldið augunum opnum. Ég man það síðast, að ég heyrði að hlerunum var lokað og skipið hætti að velta; en það var merki þess, að það var komið í kaf. Svo misti ég meðvitundina alveg og féll í fastan, draumlausan svefn.
Morguninn eftir vaknaði ég og var þá inni í klefanum mínum. Mér var það nú fullljóst, að Númi skipstjóri hafði blandað svefnlyfi í morgunmatinn okkar daginn áður. Ég reis á fætur og fór inn í salinn, því hann stóð opinn. Bjóst ég við að hitta skipstjórann þar, og fá hjá honum skýringu á máli þessu.
Rétt á eftir kom hann út úr klefa sínum og gekk inn í salinn. Hann var þögull eins og vant var og fór að ganga um gólf, án þess að veita mér nokkra athygli.
En alt í einu staðnæmdist hann frammi fyrir mér.
„Eruð þér læknir?“ spurði hann.
„Já“, sagði ég, „ég stundaði lækningar í mörg ár, áður en ég fékk embætti við jurtasafnið í París“.
„Einn af hásetum mínum er veikur. Viljið þér skoða hann?“
„Já“.
„Komið þá með mér“.
Mér flaug þegar í hug, að veiki þessi mundi standa í sambandi við það, sem gerst hafði daginn áður, og var meira í mun að fá vissu fyrir því.
Númi fór með mig aftur í skipið og lauk upp einum hásetaklefanum. Komum við þar inn í rúmgott herbergi, og var það uppljómað af rafljósi. Maður lá í fleti út við þilið gengt dyrunum. Sá ég þegar, að hann var sár en ekki sjúkur. Ég laut niður að honum og losaði um blóðugan léreftsrenning, sem bundinn var um höfuð honum. Hann kveinkaði sér ekki hið minsta, en starði á mig með stirðu og sljóu augnaráði.
Sárið var hroðalegt. Hauskúpan var brotin og heilinn skaddaður mikið. Bólga var farin að myndast í sárunu og hafði þegar gert manninn alveg tilfinningarlausan.
„Hvernig hefir maðurinn hlotið þetta sár?“ spurði ég.
„Skipið rakst á“, sagði Númi. „Við það brotnaði járnteinn í vélrýminu og féll í höfuð honum“.
Ég horfði steinþegjandi á særða manninn. Hann var ungur að aldri, fríður sýnum og svipmikill og bar sömu þjóðerniseinkenni og aðrir þar á skipinu.
„Hann skilur ekki frönsku“, sagði Númi, „svo yður er óhætt að tala“.
„Hann verður dauður að tveim stundum liðnum“, sagði ég.
Númi skipstjóri brá hendinni fyrir augun og mér virtist ég sjá tár hrynja.
„Verður honum með engu móti hjálpað?“ spurði hann.
„Nei“.
„Jæja, þá þarf ég ekki yðar aðstoðar með“.
Ég fór út úr herberginu, en Númi var eftir hjá manninum dauðvona, niðurlútur og harmþrunginn.
Ég hvarf inn í herbergið mitt aftur, þungt hugsandi. Ég gat ekki um annað hugsað allan daginn en banasængina aftur í skipinu og þennan óskiljanlega árekstur, sem skipið hafði orðið fyrir, meðan við lágum í dvala, undir áhrifum svefnlyfsins.