VII.
Reading edition
Við héldum áfram ferðinni næstu daga og stefndum í suður, eftir miðju Atlantshafinu. Ned Land var ergilegur sem von var, því á þessum slóðum var engin von til að við gætum komist frá skipinu. Land var hvergi í nánd, ekki svo mikið sem eyja eða hólmi nokkurs staðar.
Við vórum þó ekki vonlausir um að Númi mundi sleppa okkur, þegar ferðin umhverfis hnöttinn væri á enda, ef við hétum því þá við drengskap okkar, að þegja yfir leyndarmáli hans. Mér datt í hug, hvort ég ætti að tala við Núma og stinga upp á þessu við hann. Það var að líkindum þýðingarlaust. Númi var svo oft búinn að láta það á sér heyra, að vegna þessa leyndarmáls væri hann til neyddur að halda okkur á skipinu áfram. Ég færði þetta í tal við Konsæl, en hann var engu ráðnari í því en ég, hvað gera skyldi. Okkur kom þó saman um það, að vekja ekki tortrygð Núma með því að brjóta upp á þessu við hann, það mundi verða árangurslaust,—bíða heldur og sjá hvernig skipaðist um atvik og ástæður.
Því lengra sem suður dró, því fastar lagðist sá grunur í mig að mér mundi aldrei framar auðnast að sjá ættjörð mína og ástvini.
Ég varð lítið var við Núma skipstjóra þessa dagana. Hann var niðursokkinn í störf sín og rannsóknir í klefa sínum, og þá sjaldan ég hitti hann í bókasalnum, var hann annars hugar og afskiftalaus.
Sæfarinn hélt sig jafnaðarlega við yfirborðið, og var þar fátt á sveimi. Að eins einu sinni sáum við skip; þar á vóru hvalveiðamenn, og skutu þeir þegar út báti og reru áleiðis til okkar,—héldu auðsjáanlega að þar væri góð veiðibráð, sem við vórum. Númi skipstjóri vildi ekki eyða tíma og kröftum manna þessara að óþörfu og fór því í kaf með Sæfarann. Þetta var atvik, sem Ned Land lét ekki athugalaust fram fara. Ég held honum hafi gramist sárlega, að hvalveiðamennirnir skyldu ekki geta lagt til dauðs járnhvalinn okkar með skutlum sínum.
Það bar við á þessum slóðum, að við hittum fyrir stóra hákarla. Flugu mér þá í hug ýmsar sögur um þá, sem ég svo sagði Konsæl. Það er ef til vill varasamt að trúa öllu, sem farmenn segja frá, en það er dagsatt að það sem hér fer á eftir er haft eftir sjómönnum: Í maga á stórum hákarli fanst einu sinni höfuð af amerískum vísundi og heill kálfur. Í öðrum fundust tvær hnísur og sjómaður í einkennisbúningi. Í þeim þriðja var hermaður með alvæpni og í þeim fjórða hestur með riddara og reiðtýgjum. Þetta er nú að vísu ekki sem trúlegast, en þó get ég ekki samkvæmt eigin eftirtekt sannað að það sé ósatt. Við fengumst sem sé ekki við hákarlaveiðar.
Hinn 13. marz ákvað Númi skipstjóri að gera tilraun eina, sem mér þótti meir en lítið til koma.
Við vórum staddir á 45. breiddarstigi og 37 stigi vestlægrar lengdar, á þeim stað, þar sem ameríska freigátan „Kongress“ stikaði eitt sinn dýpið og hafði ekki botn með fimmtán þúsund eitt hundrað og fjörutíu metrum.
Hér ætlaði nú Númi að reyna að komast til botns, og bjó ég mig undir að athuga nákvæmlega hvernig sú tilraun lánaðist. Gluggarnir á aðalsalnum vóru opnaðir og við nálguðumst hyldýpið.
Það var ekkert viðlit að sökkva skipinu á þann hátt að fylla sjóklefana. Að vísu gat það þyngst svo mikið við það, að það sykki til botns. En þá var eftir að komast upp aftur, og var mikil tvísýna á því, hvort vélarnar mundu geta þrýst vatninu út aftur, undir því voðafargi, sem hlaut að hvíla á skipinu í þessum reginhyl.
Númi lét halla hliðarspöðum skipsins í hálft horn og lét svo skrúfuna ganga með fullum hraða.
Sæfarinn nötraði eins og þaninn strengur á fiðlu undir átökum vélarinnar og skrúfunnar, en áfram rann hann jafnt og stöðugt niður á við.
Við Númi vórum staddir í aðalsalnum og athuguðum þrýstimælirinn. Við vórum komnir á sex þúsund metra dýpi,—langt niður fyrir neðstu takmörk sædýralífsins. Í þessu djúpi gat engin lifandi skepna haldist við. En Sæfarinn hélt áfram niður á við, dýpra og dýpra. Sjórinn umhverfis skipið var auður og aldauða, en aðdáanlega hreinn og tær.
Einni klukkustund síðar vórum við komnir niður í þrettán þúsund metra dýpi og þó sást ekki enn til botns. Á fjórtán þúsund metra dýpi fór að grilla í klettanibbur niður undan okkur. En það gátu verið fjallatindar, eins háir og Mont-Blanc eða Himalaya, og gat því enn verið eftir óskaplegt dýpi.
Sæfarinn hélt enn áfram og var þó þrýstingurinn orðinn voðalegur. Járnþynnurnar svignuðu og ískraði í samskeytunum, járnbitar og bindingar kýttust svo, að brakaði og tísti alt umhverfis.
Við höfðum af að komast niður í sextán þúsund metra dýpi. Var þá þrístingurinn á skipinu orðinn sextán hundruð loftþyngdir, en það er sama sem þrjú þúsund og tvö hundruð pund á hvern fersentímeter á skipinu.
Númi skipstjóri réð af að hætta tilrauninni.
„Við skulum fara upp aftur“, sagði hann, „það tjáir ekki að leggja skipið undir meira farg. Haldið yður fast!“
Ég var ekki nógu fljótur að átta mig á því, hvað Númi meinti með þessari skipun, og vissi því ekki fyr af, en ég lá flatur á gólfinu.
Skipstjórinn hafði fyrirskipað að stöðva vélina og snúa hliðarspöðunum svo, að röndin vissi upp. Sæfarinn flaug upp með feyknahraða, eins og laus lofbelgur, og risti sjóinn svo hvein við. Það var engin leið að gera neinar athuganir. Á örfáum mínútum rann hann þessa sextán þúsund metra leið á enda, flaug eins og kólfur upp úr yfirborði sjávar hátt í loft upp, féll svo aftur í hafið með voðalegum gusugangi og boðaföllum.
Við héldum eftir þetta af stað suður á bóginn—alt af í suður. Þegar við komum á móts við suðurodda Ameríku hélt ég að Númi mundi beygja vestur fyrir, inn í Kyrrahafið og ljúka þar með við hringför sína um hnöttinn. En því var ekki að heilsa. Sæfarinn hélt stefnunni óbreyttri. Hver var svo tilgangur skipstjórans? Ætlaði hann að halda suður í heimskaut, suðurskautið! Það var óðs manns æði! En það var ekki á hann að ætla, Núma skipstjóra, fífldirfsku hans var alt ætlandi. Það var ekki furða þó Ned Land væri ekki hollur í hamsi.
Ned hafði talað fátt upp á síðkastið; fálæti hans ágerðist svo, að varla var hægt að toga út úr honum orð. Ég sá að hann þoldi illa þetta varðhald og fyltist æ meir og meir hatri og lífsleiða. Þegar hann hitti Núma skipstjóra, brann honum eldur úr augum og ég var farinn að verða hræddur um, að í hart slægi milli þeirra bráðlega.
Hinn 14. marz komu þeir Konsæll inn í herbergið mitt. Ég sá að Ned hafði eitthvert erindi og var talsvert niðri fyrir.
„Hvað haldið þér að margir menn séu á Sæfaranum?“ spurði hann.
„Svei mér ef ég veit það“, svaraði ég.
„Það getur varla þurft marga menn, til að stjórna þessum hólk“, sagði Ned.
„Nei, til þess ætti ekki að þurfa nema svo sem tíu menn“.
„Og hvaða ástæða væri þá til að hafa fleiri?“
Ég skildi fullvel hvað Ned Land fór, og hvesti á hann augun.
„Hvaða ástæða!“ endurtók ég. „Eftir því sem mér skilst, er Sæfarinn ekki einungis skip, heldur einnig heimili og griðastaður manna, sem hafa sagt sig úr lögum við mannfélagið, á líkan hátt og Númi skipstjóri“.
Þá tók Konsæll til máls:
„Sæfarinn getur þó ekki rúmað nema vissa tölu manna. Gæti ekki húsbóndinn reiknað út, hvað þeir gætu verið flestir?“
„Hvernig þá, Konsæll minn?“
„Húsbóndinn þekkir burðarmagn skipsins, og getur því reiknað hve mikið loft það rúmar. Þegar svo við bætist að húsbóndinn veit hvað hver maður þarf mikið loft, og að loftið í skipinu verður að endurnýja einu sinni á sólarhring hverjum, þá . . . .“
Konsæll talaði ekki út, en ég skildi hvað hann fór.
„Já, þetta er auðvelt að reikna“, svaraði ég. „En það er hætt við að útkoman verði ekki ábyggileg“.
„Það gerir ekkert til“, sagði Ned Land. Hann vildi komast að einhverri niðurstöðu.
„Jæja“, svaraði ég, „einn maður eyðir um hverja klukkustund öllu því súrefni, sem felst í eitt hundrað lítrum af andrúmslofti, eða sama sem tvö þúsund og fjögur hundruð lítrum af lofti á sólarhring. Þá er eftir að finna, hve mörgum sinnum tvö þúsund og fjögur hundruð lítrar af lofti rúmast í Sæfaranum“.
„Einmitt rétt“, sagði Konsæll og brosti út undir eyru. Konsæll hafði víst hugann meira á því, hve fljótur ég var að reikna, en hinu, hver útkoman yrði. En Ned Land sat hnípinn og óþreyjufullur.
„Burðarmagn Sæfarans er fimtán hundruð smálestir“, bætti ég við; „og hver smálest er eitt þúsund lítrar. Sæfarinn rúmar þá fimtán hundruð þúsund lítra af lofti, sem deilt með tveim þúsundum og fjórum hundruðum gerir . . . .“
Ég flýtti mér að reikna út á pappírsblaði.
„. . . . . gerir sex hundruð tuttugu og fimm. Það er, með öðrum orðum, nægilegt loft í Sæfaranum fyrir sex hundruð tuttugu og fimm menn í tuttugu og fjórar klukkustundir.“
Ned Land hnykti við. „Sex hundruð tuttugu og fimm!“ át hann eftir.
„Já, en það er áreiðanlega ekki einn tíundi hluti þess mannfjölda hér á skipinu“, sagði ég.
„Þó svo sé. Það eru of margir móti þrem mönnum ei að síður“, svaraði Ned.
Ég ypti öxlum ósjálfrátt.
„Þér verðið að vera þolinmóður, Ned“.
Ned anzaði engu, en hristi höfuðið og strauk hendinni um ennið.
Ég kendi sárt í brjósti um Ned, og vildi feginn verða honum að liði. En hvað átti ég til bragðs að taka, eða öllur heldur, hvað gat ég gert?—Ekkert.
Ned Land hafði engu öðru vanist, en sigla frjáls og frí um höfin og drasla í hvaladrápi. Nú var hann hneptur iðjulaus í þröngum klefa, og hafði ekki annað að gera en hugsa. Og hvað gat hann svo hugsað um, annað en það, hvernig hann gæti náð frelsi sínu aftur?
En Númi stýrði stöðugt í suður og var því að svo stöddu engin undankomu von.
Það vildi þó svo vel til, að þennan sama dag kom fyrir dálítill atburður, sem hresti skap Kanadamannsins, og rifjaði upp fyrir honum endurminningar glaðari daga.
Um hádegisbilið flaut Sæfarinn í yfirborðinu. Hittum við þá fyrir hvalatorfu mikla, sem kom á móti okkur. Mér kom það ekki á óvart, því ég vissi að hvalirnir leituðu æ nær og nær heimskautunum, undan hóflausum ofsóknum hvalveiðamanna.
Hvalirnir hafa að þessu leyti haft töluverða þýðingu í landfundasögu jarðarinnar. Við hvalaeltingar hafa fyrst Baskar og Astúrar og seinna Englendingar og Hollendingar ratað á lönd og staði, áður óþekta. Þá er sú saga til, að hvalveiðamenn, sem vóru að elta hval, komust svo langt norður, að ekki vóru nema 10 mílur eftir að norðurheimskautinu. Þetta getur verið lygi, en líklega reynist það samt satt þegar minst varir.
Við sátum uppi á þiljum. Veður var fagurt og særinn spegilsléttur. Ned Land varð auðvitað fyrstur til að koma auga á hvalina, í nokkurra mílna fjarlægð.
„Væri ég nú bara kominn á hvalveiðaskip!“ hrópaði hann upp yfir sig. „Það vildi ég að . . . . . “
Ned stappaði niður fótunum, svo glumdi í járnþynnunum, og jós úr sér formælingum yfir Núma og alt sem hann snerti.
„Yður langar víst alt af á hvalaveiðar?“ sagði ég.
„Langar!“ át hann eftir. „Það er eitt af því sem enginn getur gleymt, herra prófessor“.
„Hafið þér aldrei stundað veiðar hér í suðurhöfum?“
Ned Land lét sem hann heyrði ekki til mín.
„Sjáið þið, hvar þeir koma!“ sagði hann. „Þeir vita sem er að ég get ekkert gert þeim“.
Ned Land var allur á nálum.
„Eru hvalirnir hérna eins stórir og í norðurhöfunum?“ spurði hann.
„Naumast svo stórir“.
„Ég hefi séð hvali hundrað feta langa, herra prófessor. Og ég hefi jafnvel heyrt getið um, að þeir gætu orðið hundrað og fimmtíu feta langir“.
„Það held ég sé nú orðum aukið“, svaraði ég. „Þessir hvalir, eins og líka búrhvelið, eru vanalega minni en sléttbakurinn“.
„Jæja“, sagði Ned, „ég hefi nú samt heyrt að þeir væru sumir ákaflega stórir, jafnvel svo stórir, að menn sem hafa séð þá fljóta í vatnsskorpunni, þakta þangi og skeljum, hafa haldið að það væru eyjar, fárið á land á þeim, kveikt upp eld og . . . “
„Og bygt á þeim hús“, skaut Konsæll inn í.
„Þvaður!“ sagði Ned.
„Þér trúið því þó víst ekki sjálfur?“ sagði ég.
„Það má trúa öllu um hvali“, sagði Ned. „Það er fullyrt að þeir geti synt umhverfis hnöttinn á hálfum mánuði“.
„Það er ekki óhugsandi“.
„Þér vitið ef til vill ekki, prófessor góður, að á þeim tímum þegar jörðin var sköpuð, vóru hvalirnir miklu hraðsyndari en nú?“
„Ónei, ekki vissi ég það, Ned minn. Hvernig stóð nú á því?“
„Það skal ég segja yður, þá var sporðurinn á þeim eins og á öðrum fiskum, og blöðkurnar snéru upp og niður. En þegar Guð almáttugur veitti því eftirtekt, að þeir vóru alt of hraðsyndir, tók hann þá og snéri upp á sporðinn, og síðan hafa þeir verið svona“.
„Er það satt að hvalir geti hvolft skipum?“ spurði Konsæll.
„Því trúi ég tæplega“, svaraði ég. „Það er þó sagt að árið 1820 hafi hvalur ráðist á skipið „Essex“ og rekið það aftur á bak, með svo miklu afli, að það skreið nákvæmlega fjóra metra á sekúndunni, þar til sjórinn fossaði yfir þilfarið aftur á og skipinu hvolfdi“.
Ned leit á mig og kýmdi borginmannlega. Í svona umræðum lét hann ekki fara með sig í gönur.
„Einu sinni sló hvalur svo óþyrmilega undir bátinn minn“, sagði hann, „að við félagarnir, sem í honum vóru, hrukkum tólf álnir í loft upp. En sá hvalur hefir auðvitað verið eins og svolítill hvolpur í samanburði við hval prófessorsins“.
Konsæll réð sér ekki fyrir forvitni.
„Verða hvalirnir gamlir?“ spurði hann.
„Þúsund ára“, svaraði Ned viðstöðulaust.
„Hvernig vitið þér það, Ned?“
„Af því það er sagt svo“.
„Hvernig geta menn sagt um það?“
„Af því menn vita það“.
Hvalirnir færðust nær, og var eins og Ned ætlaði að gleypa þá með augunum.
„Sjáið þið!“ sagði hann, „þeir eru fleiri en einn og fleiri en tveir. Þarna eru tíu, tuttugu, stór hópur. Ilt er nú að vera svona tjóðraður og ná ekki til þeirra“.
„Farið og talið um þetta við skipstjórann“, sagði Konsæll.
Ned Land lét ekki segja sér það tvisvar. Hann þaut eins og örskot niður í skipið til að leita að Núma. Eftir örstutta stund kom hann aftur og skipstjórinn með honum.
„Á ég ekki að skutla einn handa yður?“ spurði Ned, „svona til að gleyma ekki gamalli iðju“.
„Hvaða gagn er að því?“ spurði skipstjórinn og leit yfir hvalatorfuna. „Hvers vegna drepa til gamans og að óþörfu? Ég veit það vel, að það eru sérréttindi, sem mennirnir hafa tekið sér; en ég kæri mig ekki um að hafa dráp til dægrastyttingar. En hvað sem um það er, þá er nóg búið að gera að hvaladrápi, meira en nóg. Hvalirnir eiga nógu marga meinlega óvini, þar sem eru búrhveli og sverðfiskar, svo ég held okkur sé sæmra að láta þá óáreitta“.
Ned Land varð súr á svipinn við þennan siðalærdóm. Að tala svona við veiðimann er að eyða orðum að óþörfu. Ned botnaði auðsjáanlega ekkert í því sem Númi sagði. Hann stakk höndunum í vasana og gekk á burt blístrandi.
Númi virti fyrir sér hvalina um stund og snéri sér svo að mér.
„Nú skuluð þér sjá, að ég hafði rétt fyrir mér, þegar ég sagði, að hvalirnir ættu nóga óvini. Sjáið þér svörtu deplana þarna suður frá?“
„Já“.
„Það eru búrhveli, grimmar skepnur og skaðlegar, sem rétt er og nauðsynlegt að útrýma“.
Ned Land snéri sér við skjótlega og skipstjórinn tók eftir því.
„En það er þarflaust að stofna lífi sínu í voða af þeirri ástæðu“, sagði Númi. „Sæfarinn hefir trjónu, sem er fyllilega eins traust vopn og gott eins og skutull Ned Lands“.
Ned Land dró ekki dulur á tilfinningar sínar. Hve nær hafði annað eins heyrst! Hann ypti öxlum og spýtti út úr sér.
Búrhvelin nálguðust óðfluga. Þau höfðu auðsjáanlega orðið vör við hvalina og bjuggust til atlögu. Það var fyrirsjáanlegt, hver endir mundi verða á þeim leik.
Skíðishvalirnir höfðu engar verjur móti búrhvelunum. Þau vóru afar kjaftstór og höfðu 25 tennur í skoltinum.
Númi hervæddi Sæfarann móti illhvelunum. Hann fór til stýrisins, en við félagarnir þrír settumst við gluggann í aðalsalnum. Að því búnu fór skrúfan að snúast og auka skriðinn á skipinu.
Viðureignin var þegar hafin, er Sæfarinn kom inn í illhvelaþvöguna. Svo var að sjá fyrst í stað, sem búrarnir gæfu ekki mikinn gaum þessum nýja gesti, sem gekk þar ókvaddur að orustu. En það varð annað ofan á, þegar fram í sótti.
Slík og þvílík aðsókn! Það kvað svo ramt að, að Ned Land var frá sér numinn. Númi skipstjóri beitti Sæfaranum eins og heljarmiklum skutli. Hann rann á hvalina og skifti skrokkunum í sundur í miðju, svo bútarnir sprikluðu lifandi í sjónum. Sporðaslögin dundu á Sæfaranum, en þess gætti ekki. Hann gekk á röðina og drap hvern búrann á fætur öðrum, snérist í hring, fór ýmist upp eða niður, ýmist aftur á bak eða áfram, svo hvalirnir gátu á engan veg flúið, en tættust í sundur fyrir stáltrjónu Sæfarans.
Þessi blóðugi bardagi stóð yfir heila klukkustund. Stundum slóu sér saman tíu til tólf hvalir og ætluðu að mylja Sæfarann undir sér. Við sáum út um gluggana upp í gapandi ginin á þeim, alsett tönnum, og heiftþrungnar, rauðar glirnurnar. Ned Land réð sér ekki; hann jós yfir þá óbóta hrakyrðum, því ekki fékk hann annað að gert. Við fundum að þeir réðu á skipið, eins og soltnir hundar á hræ. En Sæfarinn varð ekki forviða. Þeir vóru eins og fis fyrir honum, þó þungir væru og stórvaxnir.
Loks var þessi orusta á enda og við fórum upp að yfirborðinu. Hlerunum var skotið upp og við flýttum okkur upp á þilfarið.
Sjórinn var þakinn sundurflettum skrokkum. Sterkasta púðursprenging hefði ekki tætt kjötþjósir hvalanna meir í sundur. Sjórinn var blóði litaður svo langt, sem til sást. Örfáir hvalir sáust á flótta út við sjónhringinn.
Númi skipstjóri kom upp á þilfarið og snéri sér að Ned Land.
„Jæja Ned Land, hvað segið þér nú?“
„Mikið er að gert að vísu“, sagði hann, „en verkið . . . . .“
„Það eru skaðræðisskepnur, sem ég hefi drepið“.
„Ég vil heldur vera veiðimaður en slátrari“, sagði Ned.
„Þér viljið heldur drepa til gamans, en gagns“.
Ég var orðinn dauðhræddur um að þeim mundi lenda saman í illdeilum, út af þessu. En Ned sýndi nú, eins og áður, fyrirlitningu tóma. Hann var búinn að kalla Núma slátrara og þá var hann ánægður. Hann stakk höndunum í vasana, ofur rólega, snéri baki við Núma og fór niður í klefann sinn.