← Table of contents
Sæfarinn (Ferðin kring um hnöttin neðansjávar)

XIII.

Reading edition

Svona er nú sagan um þessa merkilegu ferð. Ætli nokkur maður leggi trúnað á hana? Ég get ekkert um það sagt, enda gildir mig það einu. Ég hefi sagt frá viðburðunum eins og ég hefi reynt þá, og hvergi hallað réttu máli. Og nú þekki ég hafið. Ég hefi farið á tæpum tíu mánuðum umhverfis hnöttinn neðansjávar og séð öll undur og stórmerki, sem falin eru í skauti hafsins. En hvað er orðið af Sæfaranum? Hefir hann losnað úr heljargreipum rastarinnar? Er Númi skipstjóri enn á lífi? Hafa ekki blóðfórnirnar sefað enn að fullu hefndarþorsta hans? Ætli öldurnar skoli ekki eitt sinn handritasafni hans á land, svo vitneskja fáist um þennan merkilega mann og æfiferil hans? Ég vona að svo fari. Ég vona að undraskipið sem gert hefir undirdjúpin að alfaravegi, hafi komist klaklaust út úr ægisvelg rastarinnar, sem svo mörg skip önnur hafa farist í. Ég vona að Númi lifi enn í þessum nýju heimkynnum sínum, úthöfunum, og haldi þar áfram að rannsaka „leyndardóma undirdjúpanna“. En þá hefir enginn átt kost á að rannsaka eins vel og Númi skipstjóri og ég.

Explore with AITake your curiosity a little further.

Reading settings