XI.
Reading edition
Þegar komið var norður undir Long-Island, breytti Sæfarinn stefnu og stýrði í landsuður. Ned Land varð óður og uppvægur, en við þessu máttum við ekki gera. Við fórum þvert yfir Atlantshafið á skömmum tíma. Fengum við landsýn af Írlandi og Englandi og stefndum inn í Ermarsund.
Við flutum í yfirborðinu hinn 1. júní. Ég var staddur í aðalsalnum; kom þá svo mikill hvellur, að ég þaut upp á þilfar til að grenslast eftir hvað um væri að vera. Ned Land og Konsæll vóru komnir þangað á undan mér.
„Hvaða hvellur var þetta?“ spurði ég.
„Fallbyssuskot“, svaraði Ned Land og benti á skip, í svo sem mílu fjarlægð, sem stefndi á okkur.
„Þetta er herskip, það þori ég að veðja um“, sagði Ned Land.
„Það vildi ég að hamingjan gæfi að það kæmi og gæti skotið í kaf þennan bölvaðan Sæfara“.
„Hverrar þjóðar er skipið?“ spurði ég.
Ned Land hleypti brúnum og hvesti sjónina af fremsta megni. „Ég get ekki sagt um það, það hefir ekki uppi fána. En eftir reiðanum að dæma er þetta herskip“.
Við stóðum í stundarfjórðung og athuguðum skipið. Það færðist nær smátt og smátt. En ekki var unt að segja með vissu, hvort það hafði tekið eftir Sæfaranum; því síður hvort menn þar höfðu rétta hugmynd um eðli hans.
Eftir nokkra stund fullyrti Ned Land, að þetta væri bryndreki með vígtrjónu og þrennum þilförum. Þykkan kolamökk lagði upp um reykháfinn. Ekki dró það fána á stöng og ekki var unt að sjá litina í toppveifunni.
„Komi það einum mílufjórðungi nær, þá steypi ég mér í sjóinn“, sagði Ned Land. „Ég ræð ykkur til að fylgja mér eftir“.
Ég ætlaði að svara þessu, en þá gaus hvítur reykjarmökkur út úr framstafni skipsins og þungur hlutur skall á sjónum skamt fyrir aftan Sæfarann, svo gusurnar gengu hátt í loft upp. Rétt á eftir heyrðist snarpur hvellur.
„Þeir skjóta á okkur!“ kallaði ég.
„Þetta eru menn að mínu skapi“, sagði Ned Land.
„Með leyfi húsbóndans . . . . . . já já“, sagði Konsæll og hristi af sér sjóinn, sem ný kúla jós yfir hann. „Ég ætlaði að fara að segja, að nú þættust þeir vera að skjóta á náhvelið alræmda“.
„Þeim ætti að vera vorkunnarlaust að sjá okkur“, sagði ég.
„Það hafa þeir gert að líkindum“, svaraði Ned Land.
Mér flaug nýtt í hug. Nú var að líkindum orðið lýðum kunnugt, hvers eðlis þetta náhveli var. Eftir viðureignina við „Abraham Línkoln“ hafði Farragút komist að raun um, að þetta var neðansjávarskip, miklu hættulegra en nokkurt yfirnáttúrlegt sjóskrímsl og nú vóru skip á sveimi um öll höf, til að reyna að eyðileggja þessa morðvél.
Og Sæfarinn var sannkölluð morðvél, þegar Númi beitti honum í hefnda skyni, og var full ástæða til að halda, að hann gerði það. Það hafði hann gert í Indlandshafinu kvöldið góða, þegar við vórum lokaðir inni í klefanum. Af þeirri ástæðu hafði hásetinn sem særðist á höfðinu, látið lífið. Að minsta kosti mæltu allar líkur með því. Það var deginum ljósara að á þessu skipi, sem nú var í nánd, átti Númi ramma óvini, sem ekki hlífðu okkur og sem Númi mundi við engu hlífa.
Skothríðin jókst ákaft; en kúlurnar lentu í sjónum og hittu ekki Sæfarann. Okkur furðaði á því að Númi kom ekki upp. Var þó skothriðin orðin allhættuleg Sæfaranum, því herskipið var komið mjög nærri okkur.
„Við verðum eitthvað til bragðs að taka“, sagði Ned Land. „Ég geri vísbendingu. Ættu þeir þá að geta skilið, að hér er við heiðursmenn að eiga“.
Ned Land tók upp vasaklút og ætlaði að veifa honum. En í sama vetfangi var honum slengt flötum á þilfarið, af afli miklu.
„Afhrakið yðar!“ þrumaði skipstjórinn. „Þér eigið skilið að ég bindi yður framan á stafnfleyginn, áður en ég kaffæri þetta skip“.
Á sama augnabliki skall kúla á þilfarinu, en hrökk af járninu langt út í sjó. Skipstjórinn ypti öxlum.
„Það er ykkur sjálfum verst“, heyrði ég hann segja.
Svo vék hann sér að okkur og sagði:
„Viðureignin er hafin, herrar mínir. Farið þið niður!“
„Ætlið þér að greiða atlögu?“ spurði ég.
Númi kinkaði kolli til samþykkis.
„Gerið það ekki“, sagði ég í bænarrómi.
„Fyrir tilviljun hafið þér orðið margs vísari“, sagði hann. „Farið þér niður“.
Við áttum ekki annars úrkosti en hlýða skipstjóranum. Áður en ég fór niður sá ég nokkra skipverja skipa sér um Núma og horfðu þeir á skipið með reiðulegum svip og látbragði; en kúlurnar dundu á Sæfaranum og umhverfis hann.
Þegar ég var kominn niður í klefann minn fór Sæfarinn af stað og skreið út úr skotmáli. En það fór eins og mig grunaði, að herskipið elti hann. Þegar klukkan var orðin fjögur um daginn eirði ég ekki kyrsetunni lengur. Ég fór út í miðskipsganginn. Hlerarnir vóru opnir og ég hætti mér upp á þilfar. Númi var að ganga um gólf á þilfarinu og gaf gætur að herskipinu annað veifið. Það var nú í einnar mílu fjarlægð og leit út fyrir að Númi væri á báðum áttum, hvort hann ætti að granda því eða ekki. Ég gerði enn eina tilraun til að miðla málum. En ekki var ég fyr búinn að opna munninn en Númi kom rakleitt til mín og staðnæmdist fyrir framan mig. Svipur hans var svo breyttur, sem væri hann orðinn ári eldri en að morgni þessa dags. Hatur og heift skein úr augum hans, þegar hann tók til máls.
„Rétturinn er á mína hlið. Þarna er kúgarinn, hann sem hefir svift mig öllu sem ég elskaði: Föðurlandi og frændum, konu og börnum. Ég hata hann!“
Ég leit í síðasta sinn til herskipsins feiga, sem sótti nú svo ákaft eftir Sæfaranum, og fór svo niður til félaga minna.
„Við skulum flýja héðan!“ sagði ég.
„Hvaða skip er þetta?“ spurði Ned Land.
„Ég veit það ekki. En hitt er víst, að það verður sokkið niður á mararbotn áður þessi dagur er allur. Og af tvennu illu er betra að farast með því, en taka hér þátt í hryðjuverki, sem við vitum ekki hversu réttmætt er“.
„Ég er á sama máli“, sagði Ned Land. „En við verðum víst að bíða með það til næturinnar“.
Leið svo af dagurinn og nóttin færðist yfir. Alt var með kyrð og spekt á Sæfaranum. Hann hélt áfram með jöfnum hraða, alt af í sömu átt, og ruggaði þægilega í öldufallinu.
Við ráðgerðum að flýja þegar herskipið væri komið svo nærri, að við gætum látið heyra eða sjá til okkar. Tungl var í fyllingu og glaðbjart úti. Gerði það okkur hægra fyrir að flýja. Lítil líkindi vóru til þess, að við gætum varið herskipið fyrir áhlaupi Sæfarans, þó við kæmumst út á það. En við ætluðum að gera alt sem í okkar valdi stóð, til að koma í veg fyrir manntjón. Hvað eftir annað héldum við að stundin væri komin. Sæfarinn lét herskipið komast mjög nærri, en fór þá jafnan undan aftur.
Liðu svo nokkrar klukkustundir af nóttinni, að ekkert bar til tíðinda. Við biðum albúnir að grípa hvert tækifæri, sem byðist. Ned Land ætlaði að fleygja sér í sjóinn, en ég fékk hann ofan af því. Ég gerði ráð fyrir, að Sæfarinn yrði ofansjávar, þegar hann réði á herskipið og þá mundi okkur helzt verða undankomu auðið.
Klukkan þrjú um nóttina fór ég upp á þilfar. Númi stóð þar enn og horfði stöðugt á herskipið.
Kyrð og friður hvíldi yfir náttúrunni. Himininn var heiður og hafið spegilslétt. Herskipið fór eftir ljósinu á Sæfaranum og var nú tæp hálf míla á milli skipanna. Ég sá ljóskerið á frammastrinu og hliðarljósin,—grænt og rautt. Á herskipinu var kynt svo ákaft undir kötlunum, að eldbjarma lagði upp um reykháfinn og brá birtu á reiðann. Fylgdi því ákaflega þykkur reykur og neistaflug.
Ég stóð á þilfarinu þangað til klukkan fimm um morguninn. Skipið nálgaðist óðum. Hóf það skothríðina á ný, þegar fór að birta af degi.
Næstráðandi kom nú upp á þilfar og nokkrir menn með honum. Tóku þeir upp handriðið, sem var utan með þilfarinu. Turninum sem ljóskerið var í, var hleypt niður í skipið. Sömuleiðis þeim, sem var yfir stýrishjólinu og byrgt yfir opin vandlega. Var þá skipið orðið alveg ójöfnulaust að utan. Ég fór niður í aðalsalinn. Það var farið að birta. Morgunroðinn brotnaði í bárugjálpinu og sendi öðru hvoru rauðann bjarma inn um gluggann til okkar. Þetta var 2. júní,—dagur sem mér líður aldrei úr minni. Sæfarinn hægði skriðinn. Þóttist ég nú vita að stundin væri komin. Skothríðin jókst ákaft. Kúlurnar ristu sjóinn svo hvein við.
„Nú skulum við leggja af stað!“ sagði ég.
Við gengum gegnum bókasafnsklefann og út í ganginn; en þegar við komum að stiganum var hlerunum skelt aftur. Ned Land ætlaði að ryðjast á hlerann og hrynda honum upp, en ég aftraði honum frá því. Ég heyrði hvin neðan úr skipinu, sem ég kannaðist vel við. Það var verið að fylla sökkviklefana, og Sæfarinn seig nokkra metra niður í sjóinn. Við urðum of seinir fyrir! Sæfarinn fór í kaf til þess að leggja að skipinu sem næst kjölnum, því þar var það ekki brynvarið. Við vórum inniluktir að nýju, og neyddir til að vera sjónarvottar að þeim ægilega hildarleik, sem nú var fyrir hendi. Ég skundaði inn í klefann minn aftur. Ég varð alveg utan við mig,—vissi ekki í þennan heim né annan um stund og hefði víst hvorki heyrt né skilið, þó annarhvor félaga minna hefði talað til mín. Sæfarinn herti skriðinn. Hugsanir mínar og eftirtekt beindust allar að því, að athuga hreyfingar skipsins og atferli. Sæfarinn nötraði fyrir átökum válarinnar og ég bjóst við árekstri þá og þegar. Aldrei hefi ég lifað jafn kvíðvænlega og hryllilega stund eins og þessa.
Ég rak upp hljóð, ósjálfrátt! Ég varð var við kipp, tiltölulega hægan þó. Ég heyrði að stáltrjóna Sæfarans murði í sundur tré og járn og hvað sem fyrir varð. Sæfarinn gekk í gegnum skipið, eins og saumnál í gegn um klæði. Ég spratt upp í otboði og þaut inn í aðalsalinn. Númi var þar fyrir. Í sömu andránni var hlerunum skotið frá gluggunum og ljósin slökt í salnum. Mér varð ósjálfrátt litið út um gluggann. Ég sá eitthvert dökkleitt ferlíki vera að sökkva, svo sem tíu metra frá Sæfaranum. Á því var stór glompa, sem sjórinn beljaði inn um með miklum hávaða. Svo komu raðir af súðgluggum og fallbyssuopum og síðast blasti við þilfarið alskipað lifandi verum, sem börðust við dauðann. Gagntekinn af skelfingu skundaði ég aftur inn í herbergi mitt.